Morgunblaðið - 09.04.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 09.04.2022, Qupperneq 17
ÚR BÆJARLÍFINU Jónas Erlendsson Vík í Mýrdal Í Mýrdalnum er allt að vakna til lífsins, vorið á næsta leiti, ferðamenn streyma á staðinn og sauðfjár- bændur eru að undirbúa sauðburð- inn. - - - Uppbygging á húsnæði held- ur áfram en verulegur skortur hefur verið á því á staðnum. Hafa atvinnu- rekendur af þeim sökum verið að kaupa upp hluta af því húsnæði sem losnar fyrir starfsfólk sitt. Undirbúningur er hafinn fyrir byggingu á 12 íbúða fjölbýlishúsi við Sléttuveg í Vík, einnig er hrepps- nefnd búin að samþykkja vilja- yfirlýsingu með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, um enn frekari fjölgun íbúða, með það að markmiði að tryggja fjölbreyttan búsetukost. Um er að ræða leiguíbúðir þannig að íbúar yrðu ekki lengur háðir vinnuveitanda með húsnæði, og atvinnurekendur þyrftu ekki að binda fjármagn sitt í íbúðarhúsnæði. - - - Einnig er verið að auglýsa útboð á byggingu nýs og stærri leik- skóla. Um er að ræða 698 fermetra hús með þremur deildum sunnan við grunnskóla Mýrdalshrepps. Vonir standa til að ef næg leik- skólapláss verði fyrir hendi, þá verði auðveldara að laða fjölskyldufólk á svæðið. - - - Eftir erfiðan vetur hvað varðar sandfok í þorpinu í Vík, eru fyr- irhugaðar aðgerðir til að reyna að hefta sandfokið með áburðargjöf snemma vors í fjörukambinn. Einn- ig þarf að setja upp sandgirðingu til að stoppa sandfokið upp úr fjörunni. Fyrirhugað er að reyna að fá allt að 300 heyrúllur til að raða vest- ur af vestari sandfangara. Heildar- kostnaður samkvæmt verkáætlun liggur á bilinu 3,5 til 4,1 milljón króna. Þar til viðbótar kemur svo kostnaður við að stýra ferðamönn- um í fjöruna með girðingum. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Öldugangur Sjórinn fyrir sunnan Vík í Mýrdal hefur róast mikið síðan suðvestanáttirnar duttu niður. Mikil uppbygg- ing áformuð í Mýrdalshreppi Sauðburður Ærin Blæja með þrílembinga sem komu í heiminn í mars. - - - Sauðfjárbændur eru að undir- búa sauðburð í skugga mikilla hækkana á öllum aðföngum, svo sem áburði. Olíustyrknum, sem rík- ið veitti bændum til áburðarkaupa, var afar undarlega úthlutað. Fyrir flesta bændur var upphæðin svo lítil að hún skiptir nánast engu máli þegar upp er staðið. Svo eru dæmi um að bændur fengu styrk sem höfðu ekki keypt neinn áburð. - - - Tveir listar verða í framboði fyr- ir sveitarstjórnarkosningar í Mýr- dalshreppi í vor, A-listi allra og B-listi Framsóknar og óháðra í Mýrdalshreppi. Kosið er um fimm sæti í sveitarstjórninni. Í síðustu kosningum fékk T-listi Traustra innviða þrjá fulltrúa kjörna og L- listi Framtíðarinnar tvo. FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar á sanngjörnu verði og að auki förum við með bílinn þinn í endurskoðun, þér að kostnaðarlausu. taka við upplýsingum á þar til gerðu eyðublaði með rafrænum hætti, eða með sérstöku leyfi Fiskistofu á pappír. Þjónustugjald vegna raf- rænnar aflaskráningar var ákveðið 898 krónur fyrir hvern dag og vegna skila á pappír 2.050 krónur. „Verð ég að lýsa óánægju með og þó ekki síður undrun á að opinber Magnús Jónsson, formaður Drang- eyjar – smábátafélags Skagafjarðar og fyrrverandi veðurstofustjóri, er ósáttur við að Fiskistofa fái að inn- heimta gjald fyrir móttöku aflaupp- lýsinga og hefur sent Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun og matvæla- ráðuneytinu bréf þar sem skorað er á stjórnvöld að falla frá gjaldtök- unni. Fiskistofa hafði tilkynnt að fallið yrði alfarið frá móttöku aflaupplýs- inga í gegnum eigið smáforrit og vef- viðmót frá 1. apríl, en í kjölfar mik- illar umræðu ákvað matvæla- ráðuneytið að breyta reglugerð um skráningu og rafræn skil aflaupplýs- inga. Þannig var Fiskistofu gert að stofnun/stjórnvöld hafi mótað þá stefnu að láta þá aðila sem afla gagna fyrir stofnunina/stofnanirnar greiða fyrir slík gögn,“ skrifar Magnús í bréfinu, sem Morgun- blaðið hefur undir höndum. „Í meira en 100 ára sögu Veðurstofunnar er mér ekki kunnugt um að athugunar- menn á hennar vegum, hvort sem þeir eru á landi, sjó eða lofti hafi nokkru sinni þurft að greiða fyrir að afla henni veðurgagna eða annarra gagna. […] Kostnaður við allan bún- að og áhöld, hvort sem það eru mæli- tæki á staðnum, bækur, leiðbein- ingar, forrit, tölvubúnaður og tengingar hefur alltaf verið að fullu greiddur og/eða þróaður af stofn- uninni eða á kostnað hennar.“ Hann segir „fráleitt að útgerðir/ sjómenn eigi að fara að greiða stórfé fyrir að koma daglegum aflaupplýs- ingum til Fiskistofu og Hafrann- sóknastofnunar“. gso@mbl.is Mótmælir gjaldtöku Fiskistofu - Formaður Drang- eyjar segir málið vekja undrun Eftirlit Magnús Jónsson kveðst ekki sáttur við gjaldtöku Fiskistofu. Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Brýn þörf er á að fjölga dagforeldrum á Akur- eyri. Vinna hefur verið sett í forgang hjá fræðslu- og lýðheilsuráði við mótun tillagna hvernig Akureyrarbær getur brúað það bil sem er á milli þess að fæðingaror- lofi sleppir og þar til leik- skólapláss er í boði fyrir börn. Tillögur sem unnið er að eru bæði til lengri tíma og skemmri. Eva Hrund Einarsdóttir, formaður fræðslu- og lýð- heilsuráðs, segir að þegar fæðingarorlof var lengt í 12 mánuði hafi hafist vinna við að leita leiða til að innrita 12 mánaða gömul börn í leikskóla Akureyrarbæjar. Í fyrrahaust voru eins árs börn í fyrsta skipti innrituð í leikskóla bæjarins, þ.e. sá hópur sem hafði náði eins árs aldri í ágúst það ár. „Það verk- efni hefur gengið vonum framar og ekki síst fyrir góða vinnu okkar starfsfólks,“ segir hún. Erfiðara að fá dagvistunarpláss Eva segir að í kjölfar þessara breytinga hafi dagforeldrum á Akureyri fækkað úr 29 í 13. „Það gerir að verkum að nú er orðið erf- iðara fyrir foreldra sem eiga börn sem ná 12 mánaða aldri eftir inntökudagsetningar að fá dagvistunarpláss. Þessi sami vandi er uppi í mörgum öðrum sveitarfélögum og hefur verið bókað hjá stjórn Sambands íslenskra sveitar- félaga að mikilvægt sé að ríkið taki þátt í þess- um málum, eigi leikskóli að loknu fæðingaror- lofi að verða raunhæfur möguleiki.“ Bæjarstjórn á Akureyri vilji reyna hvað hægt er til að bregðast við þessari þróun og hefur fræðslu- og lýðheilsuráð sótt um aukið fjármagn í dagforeldrakerfið og segir Eva það bæði til að laða að fleiri dagforeldra og eins til að halda þeim sem fyrir eru. „Okkar tillögur snúast um að bjóða upp á aðstöðugreiðslu fyr- ir dagforeldra, stuðning í formi búnaðar til út- láns og tímabundnar launatryggingar. Þá hafa allir leikskólastjórar skoðað aðstæður hjá sér í því skyni að athuga hvort hægt sé að koma fleiri börnum að,“ segir Eva en nýlega voru fjögur börn innrituð í einn skólann og vonast er til þess að hægt verði að bæta örfá- um við til viðbótar. „Framtíðarsýnin er auðvitað sú að reglu- lega yfir árið verði hægt að innrita börn sem náð hafa 12 mánaða aldri inn í leikskólana, þó svo húsakostur þeirra rúmi það ekki við nú- verandi aðstæður, en slíkt þarf að vinna í nánu samstarfi við leikskólastjóra. Við erum líka að leita fleiri leiða til að bregðast við stöðunni því við gerum okkur grein fyrir mikilvægi þess að foreldrar komist út á vinnumarkað að loknu fæðingarorlofi á sama tíma og hugað er að hagsmunum barnanna,“ segir Eva. Dagforeldrum fækkað úr 29 í 13 - Brýn þörf á að fá fleiri dagforeldra til starfa á Akureyri - Brúa þarf bil milli loka fæðingarorlofs og þar til leikskólapláss er í boði - Eins árs börn voru innrituð í leikskóla í fyrsta sinn í fyrrahaust Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Börn Bærinn skoðar hvernig brúa má betur bilið fyrir börn sem bíða eftir leikskólaplássi. Eva Hrund Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.