Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
Davíð Ólafsson,
löggiltur fasteignasali,
leigumiðlari og
viðskiptafræðingur
BERG Fasteignasala | Háholt 14 | Mosfellsbæ
Sími 588 5530 | berg@berg.is | berg.is
VILTU SELJA?
Allar tegundir eigna
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingi
á fasteigna- og fjármálamarkaði.
Frí ráðgjöf og söluverðmat – PANTAÐU VIÐTAL
Traust og persónuleg þjónusta. Hagstæð
söluþóknun. FRÍTT SÖLUVERÐMAT.
766 6633
. Eftirspurn eftir varanlegri búsetu
á hjúkrunarheimili er langt um-
fram framboð og biðlistar lengjast
jafnt og þétt.
. Tap einstaklinga á færni til at-
hafna daglegs lífs (ADL) og
heilsubrestur eru meginástæður
þess að fólk er metið til varan-
legrar búsetu á hjúkrunarheimili.
Líkamleg hrörnun er ein orsaka
þess að fólk tapar færni og nauð-
synlegri heilsu til að búa á eigin
heimili.
. Rannsóknir sýna að hægt er að
bregðast við og hægja á þróuninni
og jafnvel snúa henni við með að-
stoð fagaðila á endurhæfingar-
sviði sem gæti hægt á eftirspurn
eftir hjúkrunarrýmum.
· . Í nýjum stjórnarsáttmála rík-
isstjórnarinnar er lögð áhersla á
forystuhlutverk heilsugæslunnar
sem leiðandi aðila í heilsueflingu
og aðgerðaáætlun um lýðheilsu og
forvarnir. Með virku samstarfi við
heilsugæsluna væri unnt að hefja
forvarnarstarf með því að beina
þeim, sem farnir eru að missa
færni og heilsu, í rétt úrræði sem
tafið geta fyrir óhjákvæmilegum
búferlaflutningi til hjúkrunar-
heimilis.
. Í tölum Landlæknisembættisins
frá því í maí 2021 kemur fram að á
fimmta hundrað aldraðra, sem
hafa gilt vottorð frá færni- og
heilsumatsnefndum landsins þess
efnis að þeir hafi ekki lengur
næga færni til að búa sjálfstætt,
bíða eftir því að fá pláss á hjúkr-
unarheimili. Þrátt fyrir góðan
vilja og hægt fjölgandi hjúkrunar-
rými er þörfin miklu meiri en
framboðið eins og meðfylgjandi
graf frá Landlækni sýnir um þró-
unina frá 2011. Grafið sýnir með-
alfjölda aldraðra á biðlista eftir
varanlegri búsetu á hjúkrunar-
heimili á hverjum ársfjórðungi
2011 til 2020. Svarta línan sýnir
meðalfjölda einstaklinga og sú
ljósgráa meðalfjölda einstaklinga
67 ára eða eldri á hverja tíu þús-
und íbúa.
Hrafnista og Sléttan
sjúkraþjálfun ehf. bjóða
aukna endurhæfingu
Sjómannadagsráð, Hrafnista og
Sléttan sjúkraþjálfun ehf. hafa sent
Sjúkratryggingum Íslands formlega
umsókn um þjónustusamning til að
veita markvissa endurhæfingu fyrir
aldraða í lífsgæðakjarna Hrafnistu,
Sjómannadagsráðs og Reykjavík-
urborgar við Sléttuveg í Fossvogi.
Takmarkið er að hefja starfsemi
heilsumiðstöðvar sem stuðli að
bættri heilsu einstaklinga með því
að veita þeim markvissa þjálfun og
leiðbeiningar og styðja þannig betur
við getu þeirra og færni til að búa
lengur á eigin heimili og draga um
leið úr líkum á því að þeir þurfi á
ótímabærri og varanlegri búsetu á
hjúkrunarheimili að halda.
Hröð fjölgun aldraðra
Miðað við mannfjöldaspá liggur
fyrir að biðlistar eftir hjúkrunar-
vistun muni halda áfram að lengjast
nema brugðist verði við með úrræð-
um sem sporna gegn ótímabærri
hrörnun, sem talin er vera ein aðal-
orsök heilsumissis og nægilegrar
færni til sjálfsbjargar við daglegar
athafnir á eigin heimili. Af þeim sök-
um þarf á ákveðnum tímapunkti að
óska eftir varanlegri búsetu á hjúkr-
unarheimili. Á línuritinu úr talna-
brunni Landlæknisembættisins má
sjá þessa slæmu þróun, þar sem
fjöldi þeirra sem bíða eftir því að
komast á hjúkrunarheimili hefur
þrefaldast á innan við 10 árum, þ.e.
úr 150 manns árið 2011 í að vera 457
árið 2020. Rannsóknir sýna að mark-
viss þjálfun og faglegar leiðbein-
ingar geta hægt á hrörnun og dregið
úr þessari neikvæðu þróun biðlist-
anna. Samkvæmt spá Hagstofu Ís-
lands er búist við að árið 2043 verði
yfir 20% landsmanna eldri en 65 ára
og yfir 25% árið 2061, en þar af fjölg-
ar hraðast í hópi þeirra sem ná
meira en 80 ára aldri. Það skiptir því
verulegu máli að geta brugðist við
með úrræðum eins og þjónustu
heilsumiðstöðvar og draga úr álagi á
núverandi úrræði, bæði á hjúkr-
unarheimilum og ekki síst sjúkra-
húsum, þar sem allnokkur fjöldi
aldraðra býr þótt meðferð þar sé
lokið.
Lífsgæðakjarninn við Sléttuveg
getur aukið þjónustu sína
Umsækjendur um þjónustu
heilsumiðstöðvarinnar telja að nýi
lífsgæðakjarninn við Sléttuveg sé
kjörinn staður til að veita ofan-
greinda þjónustu enda er öll aðstaða
þar ný, vönduð og sérstaklega hönn-
uð til að sinna þjónustu við aldurs-
hópinn. Við Sléttuveg er fyrir hendi
nýtt og rúmgott húsnæði fyrir end-
urhæfingarþjónustu, þar sem mögu-
legt er að þjónusta enn fleiri ein-
staklinga með úrræðum eins og
þeim sem fyrirhugaðri heilsu-
miðstöð er ætlað og sótt hefur verið
um að verði að veruleika. Verði af
þjónustunni verður ráðist í viðeig-
andi fjárfestingu í viðbótarbúnaði til
endurhæfingar, þar sem lögð verður
áhersla á sérhæfingu í greiningum,
meðferð, fræðslu og þjálfun ein-
staklinga 67 ára og eldri. Einnig
gætu félagsleg úrræði og fræðsla
um heilsuvitund verið einn af horn-
steinum verkefnisins. Þar mætti
einnig innleiða staðlað mat á end-
urhæfingarþörfum, t.a.m. í sam-
vinnu við heilsugæsluna, þar sem
lögð yrði áhersla á færni í liðleika,
hreyfanleika, stöðugleika, jafnvægi,
samhæfingu og líkamsvitund. Þann-
ig mætti fylgja verkefninu eftir á
faglegan hátt og ná betur utan um
lýðheilsu, rannsóknir, fræðslu og
fleira eins og ítarlega er gerð grein
fyrir í umsókninni til Sjúkratrygg-
inga Íslands. Þörfin er brýn og álag-
ið mikið á núverandi úrræði. Þjón-
ustan væri því mikilvægt viðbótar-
úrræði fyrir aldraða sem létt gæti
mjög viðvarandi álag á heilbrigðis-
kerfið.
Hrafnista og Sléttan sjúkraþjálfun
bjóða ríka ríkinu nýjan möguleika
Eftir Maríu Fjólu Harðar-
dóttur, Sigurð Garðarsson
og Pétur E. Jónsson
María Fjóla
Harðardóttir
»Umrædd þjónusta
lífsgæðakjarnans við
Sléttuveg væri mik-
ilvægt viðbótarúrræði
fyrir aldraða sem létt
gæti mjög viðvarandi
álag á heilbrigðiskerfið.
María er forstjóri Hrafnistu, Sigurður
framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs
og Pétur framkvæmdastjóri Atlas end-
urhæfingar ehf. og Sléttunnar sjúkra-
þjálfunar ehf.
Sigurður
Garðarsson
Pétur E.
Jónsson
Nú á þessum miklu
hörmungatímum þeg-
ar það er tekið að
glitta í vorið og það
styttist í páskana
sem fyllir okkur von
um að sumarið sé á
næsta leiti með sinni
fögru birtu, yl og lífi
þá er svo gott að
minna sig á að frels-
arinn okkar, Jesús
Kristur, var krossfestur og lét
sitt líf í okkar stað. Hann tók á
sig syndir mannanna. En reis
upp frá dauðum á þriðja degi.
Hann sigraði dauðann og tileink-
aði okkur sigur lífsins með sér.
Endanlegan sigur og eilíft líf til
handa öllum þeim sem þiggja
vilja í auðmýkt og þakklæti.
Hættum að „krossfesta“
hvert annað
En hvað er það sem mannkynið
hefur gjarnan tamið sér að gera?
Hálf „krossfesta“ þau sem okkur
líkar ekki við, eru fyrir okkur á
einhvern hátt og okkur finnst við
hálf þurfa að losa okkur við svo
þau verði ekki fyrir okkur með
sinni meintu óþægilegu nærveru.
Við reynum allt of oft að koma
okkar illindum yfir á aðra. En
Jesús tók illindi mannfólksins á
sig. Hann var hvorki loftslagsv-
ársérfræðingur né sóttvarna-
læknir, eins og slíkir eru nú
nauðsynlegir og hafa reynst okk-
ur vel í gegnum erfiða tíma, held-
ur var hann og er frelsari heims-
ins og okkar eilífi lífgjafi sem
býðst til að vaka yfir okkur öllum
stundum og leiða í gegnum æv-
innar oft brösótta
veg. Og gleymum
því ekki að hann
kallar oft til að-
stoðar jarðneska
engla, boðbera
kærleikans sem
fúsir eru að leggja
lið og létta undir
eins og hefur ein-
mitt blasað við okk-
ur á þeim hörm-
ungatímum sem
yfir heimsbyggðina
nú ganga.
Ljós lífsins
Við erum kölluð til og okkur
býðst að vera lítill en mikil-
vægur logi af ljósi lífsins.
Margir litlir dýmætir logar sem
lýsa upp hrjóstrugan veginn á
lífsins leið.
Hamingjan felst í því að sjá
náungann með kærleiksríkum
og frelsandi, frið- og lífgefandi
augum Jesú Krists. Með því að
umfaðma fólk í víðustu merk-
ingu þess orðs.
Að kenna Guði um hið illa í
heiminum er eins og að kenna
ljósinu um myrkrið, sólinni um
skýin, sumrinu um veturinn eða
lífinu um dauðann.
Hin lítt spennandi en þó mik-
ilvægu spor Jesú Krists upp að
krossinum eru leiðin til lífsins.
Pyntingartólinu sem varð að
sigurtákni, kjarna og kórónu
kærleiksfórnar allra tíma.
Gleymum því aldrei.
Tökum upp nýtt verðmæta-
mat með endurnýjun hug-
arfarsins og biðjum í auðmýkt
og þakklæti að við fáum að
vera farvegir kærleika Guðs,
friðar, fyrirgefningar, réttlætis
og fagnaðarerindis. Fordæmum
allt ofbeldi og mismunun í hvað
mynd sem það kann að birtast.
Gætum að sjálfum okkur og
elskum lífið.
Með samstöðu-, kærleiks- og
friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Leiðin til lífsins
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
»Hamingjan felst í því
að sjá náungann
með kærleiksríkum og
frelsandi, frið- og lífg-
efandi augum Jesú
Krists. Umfaðma fólk
sem logi af ljósi lífsins.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Það virðist vinsælt
nú um stundir að
berja á heilbrigðis-
kerfi landsmanna og
hallmæla því við hvert
tækifæri. Ég vil til
mótvægis því lýsa
góðri reynslu minni af
þjónustu heilbrigðis-
kerfisins undanfarið,
án þess þó að kasta
rýrð á upplifun þeirra
sem hafa aðra sögu að segja. Því
engin tvö tilvik eru nákvæmlega
eins, sem berast á borð heilbrigðis-
starfsfólks, og ekkert kerfi er án
hnökra.
Í upphafi þessa árs greindist ég
með krabbamein á raddböndunum
en misserin þar á undan hafði
læknir Landspítalans fylgst reglu-
lega með ástandi þeirra. Það kom
sér afar vel að meinið greindist á
forstigi og hafði ekki dreift sér út
til annarra vefja líkamans. Eftir
tvær vikur var komin áætlun um
meðferð og þá hófst afar vandað
kynningarstarf og upplýsingaviðtöl
við lækna og hjúkrunarfræðinga á
hinum ýmsum sviðum. Við tók
geislameðferð alla virka daga í röð í
35 skipti. Allt gekk það eftir sem
fagfólkið hafði sagt mér um með-
ferðina fyrirfram. Á meðan á henni
stóð var stöðugt fylgst með líðan
minni og eftirlit og
upplýsingaflæði var
samfellt. Að meðferð
lokinni tekur nú við
eftirlit af hálfu lækna
og hjúkrunarfólks. All-
ur þessi ferill gekk
fullkomlega snurðu-
laust og allar tímasetn-
ingar stóðust full-
komlega. Framkoma
lækna á Landspít-
alanum og hjúkr-
unarfólks á geisladeild-
inni var einstaklega fagleg og
vinsamleg. Viðmótið og elskuleg-
heitin munu varðveitast í huga mér
og fjölskyldu minnar um ókomna
tíð, og allt þetta fólk var greinilega
þrautþjálfað í sínum víðtæku og
vandasömu verkefnum. Gangi þeim
allt í haginn.
Lofa skal það
sem vel er gert
Eftir Svein
Runólfsson
Sveinn Runólfsson
» Það virðist vinsælt
nú um stundir að
berja á heilbrigðiskerfi
landsmanna. Ég vil til
mótvægis því lýsa frá-
bærri reynslu minni af
þjónustu þess.
Höfundur er fyrrverandi
landgræðslustjóri.
sveinnrun@gmail.com