Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 29

Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 29
MINNINGAR 29Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Sunnu- dagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Hólmfríður Her- mannsdóttir. ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Jóhönnu Maríu Eyjólfsdóttur djákna og Þorsteins Jónssonar. Athug- ið breyttan tíma að þessu sinni. Messa og og ferming kl. 13. Séra Sig- urður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyjólfsdótt- ur djákna. Kór Áskirkju syngur, organ- isti er Bjartur Logi Guðnason. ÁSTJARNARKIRKJA | Fermingar- messa kl. 11. Davíð Sigurgeirsson annast undirleik og stjórnar sönghópi sem leiðir söng. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr. Kjartan Jónsson annast prestsþjónustuna. BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta og páskaeggjaleit kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Guðmundur Jens, Ástvaldur org- anisti og sr. Hans Guðberg. BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11 sunnudag. Prestur dr. Sig- urjón Árni Eyjólfsson. Kór Breiðholts- kirkju syngur undir stjórn Arnar Magnússonar organista. Veitingar að guðsþjónustu lokinni. Alþjóðlegi söfnuðurinn í Breiðholts- kirkju. Guðsþjónusta kl. 14. Prestar eru Toshiki Toma og Ása Laufey Sæ- mundsdóttir. Organisti er Örn Magnús- son. Barnagæsla. Kaffi og te að guðs- þjónustu lokinni. BÚSTAÐAKIRKJA | Pálmasunnudag- ur 10. apríl 2022. Barnamessan fer að þessu sinni fram í Grensáskirkju kl. 11, vegna ferminga í Bústaðakirkju. Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30 og kl. 13. Fermingarbörn lesa ritningarlestra, fé- lagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris org- anista. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir og séra Þorvaldur Víðisson þjóna ásamt messuþjónum. DIGRANESKIRKJA | Fermingar- messa sunnudag 10. apríl kl. 11. Fermingarmessa í Hjallakirkju sunnu- dag 10. apríl kl. 11 og kl. 13. DÓMKIRKJAN | Fermingarmessa kl. 11. Prestar eru Sveinn Valgeirsson og Elínborg Sturludóttir. Kári Þormar dóm- organisti og Dómkórinn. FELLA- og Hólakirkja | Ferming- arguðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson og sr. Pétur Ragnhildarsson þjóna. 18 börn verða fermd. Páskaföndur í sunnudagaskól- anum á sama tíma. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingar- messa sunnudag 10. apríl kl. 14. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson, prestur Frí- kirkjunnar, þjónar fyrir altari. Hljóm- sveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni. GARÐAKIRKJA | Laugardagur 9. apr- íl: Ferming kl. 13 og 15. Sunnudagur 10. apríl: Ferming kl. 10.30. GLERÁRKIRKJA | Pálmasunnudagur. Messa kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðars- son þjónar. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots organ- ista. GRAFARVOGSKIRKJA | Fermingar- messur verða 9. apríl kl. 10.30 og 13.30. Einnig 10. apríl kl. 10.30 og 13.30. Prestar safnaðarins þjóna. Kór Grafar- vogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli verður á neðri hæð kirkjunnar 10. apríl kl. 11. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríð- ur Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson. Selmessa verður í Kirkjuselinu í Spöng 10. apríl kl. 13. Sr. Magnús Erlingsson þjónar. Vox Pop- uli syngur. Undirleikari er Lára Bryndís Eggerts- dóttir. GRENSÁSKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Söngur, saga og hug- leiðing. Sóley og Kata þjóna ásamt sr. Maríu, messuþjónum, Ástu og kórnum. Fermingarmessa kl. 13. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12, einnig á netinu. Skírdagur: Messa kl. 20, altarið af- skrýtt. Prestur er Eva Björk Valdimars- dóttir. Föstudagurinn langi: Guðsþjón- usta með lestri píslarsögunnar kl. 11. Prestur er Þorvaldur Víðisson. Organ- isti við allar athafnir er Ásta Haralds- dóttir kantor og Kirkjukór Grensás- kirkju leiðir söng. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fermingarguðsþjónusta sunnudag 10. apríl kl. 10.30. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson sem prédikar og þjónar fyrir altari. Kvennakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Hrannar Helgadóttir organista. Meðhjálpari er Guðný Aradóttir og Lovísa Guðmundsdóttir er kirkjuvörður. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ferm- ingarmessa kl. 11. Sunnudagaskóli kl. 11. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestur er Sigurður Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Kór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergs- son. Umsjón barnastarfs: Þuríður Helga Ingadóttir og Sólveig Franklíns- dóttir. HÁTEIGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur organista. Prestur er Helga Soffía Konráðsdóttir. HVERAGERÐISKIRKJA | Fermingar- messa kl. 11. Kór Hveragerðis- og Kot- strandarsóknar syngur, organisti er Miklós Dalmay. Sr. Ninna Sif Svavars- dóttir þjónar fyrir altari. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkomur á sunnudögum: Kl. 11:00 Almenn samkoma. Kl. 14:00 Samkoma fyrir enskumæl- andi (English speaking service). Kl. 16:00 Samkoma fyrir spænsku- mælandi (reunión en español). ÍSLENSKA Kristskirkjan | Ferming- arguðsþjónusta í umsjón safnaðar- prests kl. 13. Fermd verða þrjú ung- menni. Heilög kvöldmáltíð. KÁLFATJARNARKIRKJA | Ferming- armessa laugardag 9. apríl kl. 11. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar sem annast undirleik. Prestar eru Arnór Bjarki Blomsterberg og Kjartan Jónsson. KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa á pálmasunnudag kl. 11. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari, Arnór Vilbergsson er organisti og kór Keflavíkurkirkja leiðir tónlist og sálmasöng. Sunnudagaskól- inn á sama tíma. Kirkjuselið í Spöng | Selmessan sunnudag kl. 13. Sr. Magnús Erlings- son þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Lára Bryndís Eggertsdóttir. KÓPAVOGSKIRKJA | Fermingar- messur kl. 11 og 13.30. Sr. Sigurður Arnarson, og Ásta Ágústsdóttir djákni prédika og þjóna fyrir altari. Kór Kópa- vogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnu- dagaskólinn kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum. Kyrrðar og íhugunarstund í kirkju miðvikudag kl. 17.30. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Háteigskirkju á pálmasunnudag kl. 20. Séra Sigríður Munda Jónsdóttir prédik- ar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar sálmasöng og leikur á píanó. Anna Sig- ríður Helgadóttir syngur einsöng. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu. LANGHOLTSKIRKJA | Fermingar- messur verða á pálmasunnudag 10. apríl kl. 11 og kl. 13. Kór Langholts- kirkju syngur undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar. Sóknarprestur er Guð- björg Jóhannesdóttir. LAUGARNESKIRKJA | Fermingar- messa kl. 11. LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingar- guðsþjónusta laugardag 9. apríl kl. 10.30 og 13.30. Fermingarguðsþjónusta pálmasunnu- dag 10. apríl kl. 10.30. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Arndís Linn ferma og þjóna fyrir altari. Kirkju- kór Lágafellssóknar syngur og leiðir alm. söng. Organisti Þórður Sigurðar- son. Birkir Blær Ingólfsson spilar á saxófón. Kirkjuvörður er Bryndís Böðv- arsdóttir. Sunnudagaskóli 10. apríl kl. 13 í Braut- arholtskirkju á Kjalarnesi í samstarfi við Reynivallasókn. www.lagafellskirkja.is MOSFELLSKIRKJA | Fermingarguð- sþjónusta pálmasunnudag 10. apríl kl. 13.30. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Arndís Linn ferma og þjóna fyrir altari. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur og leiðir söng. Organisti er Þórður Sigurð- arson. Birkir Blær Ingólfsson spilar á saxófón. Kirkjuvörður er Bryndís Böðv- arsdóttir. NESKIRKJA | Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Afmælisdagur kirkj- unnar en hún var vígð á pálmasunnu- degi 1957. Sr. Steinunn Arnrþrúður Björnsdóttir prédikar, sr. Skúli S. Ólafs- son þjónar fyrir altari. Kór Neskirkju syngur undir stjórn organistans, Stein- gríms Þórhallssonar. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Ari Agnarsson og Kristrún Guðmunds- dóttir. Kirkjukaffi á Torginu að messu lokinni. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Sunnudag 10. apríl verður fermingarguðs- þjónusta kl. 14. Séra Pétur þjónar fyrir altari, Óháði kórinn leiðir messusöng og mun flytja lög eftir Foreigner og Blur í útsetningu Kristjáns Hrannars kór- stjóra. Petra verður messugutti og Ólaf- ur skráveifa. SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í safnaðarsal kirkjunnar, ath. síð- asta samvera vetrarins. Fermingarmessur kl. 10.30 og 13, prestar kirkjunnar þjóna og Kór Selja- kirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslu- morgunn kl. 10. Líkklæðið í Tórínó. Friðrik Schram, fyrrverandi safnaðar- prestur, talar. Guðsþjónusta og sunnu- dagaskóli kl. 11. Kaffiveitingar eftir at- höfn. Fermingarmessa kl. 13. Mánudaginn 11. apríl verður páska- eggjabingó kl. 19.30 í safnaðarheim- ilinu. Kyrrðarstund miðvikudag kl. 12. Messa á skírdag kl. 11. Opnun mál- verkasýningar Óla Hilmars Briem Jóns- sonar eftir athöfn. Máltíð í kirkjunni ásamt altarisgöngu kl. 18. Fólk skrái sig í síma 899-6979. VÍDALÍNSKIRKJA | Laugardaginn 9. apríl er ferming kl. 10.30. Á sunnudag er páskaeggjaleit sunnu- dagaskólans í Urriðaholti kl. 10. Páskaeggjaleit sunnudagaskólans í Vídalínskirkju kl. 11. Ferming kl. 13. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fermingarmessa pálmasunnudag 10. apríl kl. 10.30. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæ- mundssonar organista og sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar fyrir altari. Hátíðarmessa á páskadag kl. 9.30. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista og Ari Ólafsson tenór syngur einsöng. Prestur er sr. Bragi J. Ingi- bergsson. Morgunblaðið/ÓmarHallgrímskirkja í Hvalfirði. ✝ Kristín Helga- dóttir fæddist á Hjalteyrargötu 1, Akureyri 1. ágúst 1931. Hún lést á Droplaug- arstöðum 5. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Helgi Thorberg Kristjánsson vél- stjóri, f. 20.9. 1904 í Ólafsvík, d. 9.9. 1976 í Reykjavík, og Petrína Kristín Jónsdóttir, f. 13.8. 1909 á Búð- um, d. 22.3. 2002 í Reykjavík. Bræður Kristínar eru: Jón, f. 1932, d. 2019, kvæntur Að- alheiði Margréti Guðmunds- dóttur, látin; Kristján, f. 1934, kvæntur Björgu Láru Jóns- dóttur, látin; og Jóhannes, f. 1936, d. 2021, kvæntur Fríðu Sigurveigu Traustadóttur. Eiginmaður Kristínar var Reinharð Vilhelm Sigurðsson (Harrý), f. í Hafnarfirði 20.12. 1927, d. 10.12. 2014. Foreldrar hans voru Ásta Júlíusdóttir, f. 16.4. 1900, d. 14.5. 1970, og Sigurður Kristinn Ólafsson, f. 12.8. 1901, d. 18.8. 1955. Krist- ín og Reinharð gengu í hjóna- band 1.2. 1955 í Farsö á Jót- landi. Börn þeirra: 1) Helga Margrét, f. 24.3. 1949, gift Benedikt Senstius Benedikts- býlismaður Arnþór Daði Guð- mundsson, sonur þeirra er Vil- helm Logi, f. 2020, Margrét Sól, f. 1994, og Helgi Albert, f. 1998, sambýliskona Birta Har- aldsdóttir. Foreldrar Kristínar bjuggu fyrst á Akureyri, þar sem systkinin fjögur fæddust. Árið 1938 flutti fjölskyldan til Siglufjarðar og bjó þar til árs- ins 1953. Kristín var í sveit á Staðarhóli í Öngulstaðahreppi í sex sumur og einn vetur. Sem barn og unglingur var hún virk í skátahreyfingunni. Kristín lauk prófi frá Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar 1947. Hún kynntist ung Harrý barnsföður sínum og síðar eig- inmanni, en þau bjuggu á Jót- landi á árunum 1954-1956. Þau bjuggu lengst af í Kópa- vogi en fluttu til Reykjavíkur 1978 en fluttu svo aftur í Kópavog 2008. Þau keyptu sér hús í Torrevieja á Spáni og bjuggu þar níu mánuði ársins í meira en áratug. Kristín var heimavinnandi fyrstu hjúskap- arárin. Hún vann fyrst hjá Póstinum og við umönnun í Kópavogi, síðan við versl- unarstörf hjá Rammagerðinni á Hótel Sögu, við skrif- stofustörf hjá Pfaff í Borg- artúni og loks hjá Raunvísindastofnun Háskól- ans. Útför Kristínar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. syni. Dætur Helgu Margrétar eru a) Hildur Mar- grétardóttir, f. 1968, gift Jóhann- esi Bjarna Eð- varðssyni, börn þeirra Una, f. 1991, og Hafsteinn Snorri, f. 2001. Una er gift Bjarti Steingrímssyni og er dóttir þeirra Ylja, f. 2019. b) Ásdís María Helgudóttir f. 1974, sonur hennar og Þórðar Inga Guðnasonar er Eiríkur Ingi, f. 1997. Börn Benedikts og fyrri eiginkonu hans Guðrúnar Erlu Þormóðsdóttur eru Laufey, gift Tómasi Tómassyni, börn Tómas Aron, Erla Mjöll og Haukur Már, og Benedikt, kvæntur Rut Þorgeirsdóttur, börn Ástrós Erla og Benedikt. 2) Stúlka, f. 23.2. 1953, d. 24.2. 1953. 3) Sigurður, f. og d. 8.2. 1954. 4) Ósk, f. 23.8. 1955, d. 1.9. 1955. 5) Reinharð Vilhelm, f. 19.3. 1960, dóttir hans og Þóru Álfþórsdóttur er Þórhildur, f. 1981, gift Kára Snæ Guðmundssyni og eiga þau Kötlu Ósk, f. 2010, og Ketil Mána, f. 2012. Börn Reinharðs og fv. eiginkonu, Sigríðar Albertsdóttur, eru Þóra Kristín, f. 1991, sam- Sæl og blessuð, þetta er Kristín Helgadóttir, föðursystir þín. Já, það fór ekki á milli mála þegar hún hringdi hún Stína frænka, formlega kynnt og frændgarðurinn á hreinu. Stína var elst fjögurra systk- ina og pabbi minn, Jói, yngstur. Mikill og góður vinskapur ein- kenndi samband systkinanna allra og var Stína ókrýndur ætt- arhöfðingi, stjórnsöm og ákveð- in. Núna er hún farin frá okkur en eftir standa margar góðar minningar. Ein stendur upp úr hjá mér. Það var þegar mamma lá síðustu sængurleguna og ég var send um hásumar til Stínu frænku á Þinghólsbrautina. Harrý frændi var á sjó og Helga frænka í Danmörku þannig að það voru bara ég, Harrý litli og Stína sem áttum saman dásamlega viku. Sumar- blíða og við Harrý lékum úti all- an guðslangan daginn þar til kallað var á okkur í drekkutíma eða mat. Heimili þeirra var einstakt, yfirfullt af framandi hlutum sem keyptir höfðu verið á siglingum um öll heimsins höf. Uppi á lofti var herbergi Helgu frænku, og þangað læddist ég í forvitni minni. Þar tóku á móti mér Bítl- arnir frá Liverpool í fullri stærð – úr pappa – og allt herbergið veggfóðrað með myndum af þeim köppum. Nælur, pennar og alls konar glingur með myndum af þeim. Það var erfitt að slíta sig frá þessum ævintýraheimi. En allt gott tekur enda og einn góðan veðurdag kallaði Stína í mig og sagði mér að á leiðinni væri leigubíll með foreldra mína og nýja bróður minn. Ég vildi eiginlega alls ekki fara en þegar ég kom inn í bílinn og sá litla bróður minn þá gleymdust öll önnur ævintýr. Núna er Stína frænka farin á vit nýrra ævintýra með Harrý sínum, sem mun verða hennar samferðamaður þar eins og í þeim siglingum sem þau fóru í hérna megin. Við fjölskyldan sendum Helgu, Harrý og þeirra fjöl- skyldum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Björg Jóhannesdóttir. Kristín Helgadóttir Elsku hjartans mamma mín er dá- in. Nú get ég ekki lengur slegið á þráðinn til þín og heyrt röddina þína. Mikið á ég þér margt að þakka. Þú varst alltaf nálæg, alveg sama hver fjarlægðin á milli okkar var. Mér er minnisstætt hversu vel þú hugsaðir um Eyrúnu mína fyrsta árið eftir að ég byrjaði að vinna frá henni. Hún æfði sig að ganga með því að ganga hringinn í kringum kringlótta sófaborðið þitt. Þú varst svo góð amma, spilaðir á gítar og það var ekkert leik- skólalagið sem þú gast ekki spilað. Eyrúnu minni leið svo vel hjá þér. Þú passaðir stund- um annað barnabarn, Svövu, þær áttu svo vel saman. Þú sagðir að stelpurnar hefðu svo gott skap og væru svo glað- lyndar, það var eins og þú átt- aðir þig ekki á því að það varst þú sem skapaðir þessa vellíðan þeirra. Fyrstu árin þín í Kópavogi bjó elsta barnabarnið þitt hjá Guðrún Jörgensdóttir ✝ Guðrún Jörg- ensdóttir fæddist 4. júlí 1929. Hún lést 8. mars 2022. Útför hennar fór fram 24. mars 2022. þér, hann hafðir þú passað mikið þegar hann var lít- ill og nú var hann í læknisfræði. Þú naust þess að hafa hann hjá þér og sagðir að hann minnti þig um margt á pabba, sem þú hafðir misst árið áður. Það var svo gam- an að heimsækja ykkur, enda var ykkar samband alltaf svo hlýtt. Ég þakka þér fyrir hvernig þú umvafðir Steingrím minn þegar þú vissir að hann þyrfti á þér að halda, honum leið ekki vel í skólanum og flýtti sér heim til þín eftir skóla. Þú tókst alltaf á móti honum opn- um örmum. Stundum fóruð þið á flakk, eins og þú kallaðir það, þá fóruð þið með strætó í Kringluna eða Kolaportið. Hann elskaði að flakka með þér, ykkur leið svo vel saman. Þegar ég þakkaði þér fyrir, þá sagðir þú bara að hann væri svo yndislegur ferðafélagi og að það væru ekki mörg börn sem nenntu að þvælast í strætó með ömmu sinni. Þú varst líka svo stolt af honum þegar hann söng í barnakór, þar varst þú líka á heimavelli. Við fluttum til Danmerkur þegar Steingrímur minn var níu ára og hans fallegustu minn- ingar frá Íslandi tengjast þér. Hann missti svo mikið við að flytja. Ég þakka þér fyrir að heim- sækja okkur svo oft til Dan- merkur. Þú gast gert þig skilj- anlega á bæði ensku og dönsku svo það var enginn flugvöllur eða lestarstöð sem þú réðst ekki við. Þú lést ekkert stoppa þig. Þegar sonur minn var 17 ára og 21 árs valdi hann að verja sumarfríinu sínu hjá þér. Hann sagðist skulda ömmu sinni að verja tíma með henni og henni einni eftir allt það sem hún hefði gefið sér. Hann er og verður alltaf ömmustrákurinn þinn. Steingrímur tengdist þér og pabba einstaklega sterkum böndum og eru bæði börnin hans skírð eftir ykkur, Anton Einir og Guðrún Anna. Eyrún mín hefur erft svo margt frá þér, elsku mamma mín, hún hefur þitt einstaklega góða tóneyra. Það er jafn erfitt að hlusta á söngvakeppni með henni, hún er eins og þú, heyrir hverja einustu feilnótu og nefn- ir hana, í hvert skipti. Hún er bæði lík þér í sér og í útliti og það er svo yndislegt að sjá þig skína í gegn í henni. Það er svo gott að hugsa til þess sem lifir áfram þegar þú ert ekki lengur hjá okkur. Elsku mamma, þín verður sárt saknað. Takk fyrir að reyn- ast mér yndisleg mamma. Þín yngsta dóttir, Ásta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.