Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 32

Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 ✝ Ester Úranía fæddist á Hell- issandi 11. október 1933. Hún lést á Hrafnistu 28. mars 2022. Foreldrar Ester- ar voru Friðþjófur Baldur Guðmunds- son frá Rifi, f. 27.10. 1904, d. 3.9. 1987, og Halldóra Guðríður Kristleifs- dóttir frá Hrísum, f. 26.11. 1912, d. 8.6. 1999. Þau bjuggu á Rifi á Snæfellsnesi. Systkini Esterar eru Sævar, f. 30.10. 1936, Svanheiður Ólöf, f. 8.9. 1939, d. 30.10. 2020, og Kristinn Jón, f. 24.7. 1941. Upp- eldisbræður eru Sæmundur Kristjánsson, f. 24.8. 1943, og Hafsteinn Þórarinn Björnsson, f. 19.5. 1949. Ester Úranía giftist þ. 19.12. 1953 Kristni Elíasi Haraldssyni, f. 15.3. 1925, d. 15.1. 1987. Ester og Kristinn eignuðust níu börn þau eru: 1) Baldur Magnús Guðmundsson, f. 30.7. 1926, d. 17.10. 2011, var sambýlismaður Esterar frá 1996. Ester ólst upp á Rifi og bjó þar til 1991 en fluttist þá til Reykjavíkur. Hún vann ýmis störf í sjávarútvegi á meðan börnin uxu úr grasi, þar á meðal við fiskvinnslu og netagerð auk þess að bera út blöð og póst. Eft- ir að Ester flutti til Reykjavíkur vann hún hjá Pósti og síma og starfaði fyrst í afgreiðslu og síð- ar sem gjaldkeri. Ester var mjög virk í fé- lagsstarfi og naut þess mikið að syngja og dansa. Á Hellissandi starfaði hún í slysavarnafélag- inu, kvenfélaginu og kirkju- kórnum. Eftir að hún flutti til Reykjavíkur var hún í kirkjukór Bústaðakirkju, Garðakórnum og kór eldri borgara auk þess að sinna ábyrgðarstarfi í fé- lagsstarfinu, var s.s. gjaldkeri og sinnti öðrum stjórnar- störfum. Ester sat um nokkurt skeið í stjórn Félags eldri borg- ara. Hún hafði mikla ánægju af að ferðast og fór m.a. í nokkrar ferðir með Magnúsi bæði innan- lands og erlendis. Útförin fer fram frá Ingjalds- hólskirkju í Snæfellsbæ í dag, 9. apríl 2022, klukkan 14. Freyr, f. 11.8. 1952, kvæntur Guðrúnu Elísabetu Jens- dóttur og eiga þau 5 börn, 2) Elvar Guð- vin, f 29.9. 1953, kvæntur Þórdísi Bergmundsdóttur og eiga þau tvo syni, 3) Dóra Sólrún, f. 28.4. 1955, gift Guð- brandi Jónssyni og eiga þau tvö börn, 4) Jóhann Rúnar, f. 11.10. 1957, kvæntur Katrínu Gísladóttur og eiga þau fjögur börn, 5) Helena Sólbrá, f. 24.2. 1960, gift Guð- mundi Gunnarssyni og eiga þau sex börn, 6) Hafalda Elín, f. 18.7. 1963, d. 6.11. 2017, var gift Gúst- af Geir Egilssyni og eiga þau þrjú börn, 7) Jófríður Soffía, f. 13.7. 1964, d. 13.9. 1991, eign- aðist hún eina dóttur, 8) Snædís Elísa, f. 26.11. 1967, gift Andrési Helga Hallgrímssyni og eiga þau þrjú börn, 9) Guðbjörg Huldís, f. 18.1. 1975, gift Óskari Guðjóns- syni og eiga þau tvö börn. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Mamma. Þetta orð hefur mikla þýðingu og er stórt, sterkt, mik- ilvægt og fullt af ást og kærleika. Það lýsir mömmu einmitt mjög vel. Nú þegar ég kveð þig elsku mamma hugsa ég til þín með miklu þakklæti og kærleika. Ég þakka þér fyrir að þú gafst mér líf, fyrir að ala mig upp, fyrir allan stuðninginn, og að vera alltaf til staðar. Að lifa í 88 ár er langur tími en samt svo stuttur. Árin líða svo hratt og þegar ég hugsa til baka þá er ekkert svo langt síðan ég fór að heiman og þú grést yfir því að ég væri að fara svo langt frá þér, alla leið til Siglufjarðar. En þú vildir alltaf hafa alla svo nálægt þér og þér fannst það vitleysa að vera að flytja svo langt frá heima- högunum. Þó að húsið væri fullt af börn- um og ég sú fyrsta sem flutti að heiman. Alltaf að passa upp á hóp- inn þinn og að halda öllum saman og í öryggi. Alltaf sagðir þú þína skoðun á öllum málum og ef ég spurði ráða þá hafðir þú alltaf góð ráð og varst heiðarleg og hrein- skilin með lausnirnar á hreinu. Heimili þitt í Rifi var alltaf opið fyrir gesti og skipti þá ekki máli hvað voru margir heima. Þú bætt- ir þá bara við plássi í stofunni eða við krakkarnir vorum færð á milli rúma. Þú og ég erum mjög líkar og oft fæ ég að heyra frá systrum mínum „þú ert alveg eins og mamma“. Þú hafðir ótrúlega mikinn styrk þeg- ar sorg og erfiðleikar steðjuðu að og oft barst þú harm þinn ein og í hljóði. Það sem þú hefur gefið mér í arf er styrkur og seigla sem mun fylgja mér út lífið. Takk fyrir allt sem þú gafst mér elsku mamma. Núna þegar við kveðjumst fyrir fullt og allt get ég sagt að lokum að þú varst mamma mín og veittir mér ást og umhyggju allt lífið. Megi guð blessa þig og gefa þér alla þá hvíld sem þú þarfnast á nýjum stað. Takk fyrir allt, ég mun sakna þín mikið elsku mamma. Dóra Sólrún. Margs er að minnast þegar maður lítur yfir farinn veg. Ekki síst þegar ég, 16 ára stelpuskottið, fékk að kynnast kjarnakonunni æðrulausu, sem síðar varð tengda- mamma mín, henni Ester Úraníu frá Rifi á Snæfellsnesi, þá var það eitt af mínum mestu gæfusporum. Þessi kona hefur frá okkar fyrstu kynnum verið ein af mínum bestu vinkonum. Hreinskiptin, sönn og kærleiksrík formóðir margra af- komenda sem minnast hennar með mikilli hlýju. Við Baldi byrjuðum okkar bú- skap í Rifi og þar höfum við alið upp okkar börn. Þau minnast ömmu sinnar með hlýju og alls þess sem hún var þeim ætíð. Alltaf með hlaðið borð af kræsingum eft- ir vali hvers og eins þegar þau komu við hjá henni beint úr skóla- rútunni. Allskonar grautar, ástar- pungar og bræddur mysuostur í rjóma á brauði voru í uppáhaldi. Þau sögðu gjarnan: „Ég kom við hjá ömmu.“ Ef hægt er að tala um matarást þá var hún svo sannar- lega til staðar hjá þeim. Ester var kona sem hafði sterkar skoðanir og framkvæmdi yfirleitt það sem henni datt í hug. Dæmi um það er þegar ég var að koma heim í Rif með okkar fyrsta barn, þá datt henni í hug af hugulsemi og kær- leika að það þyrfti að mála hjóna- herbergið áður en ég kæmi heim og án þess að ræða það við neinn þá málaði hún fallegasta litinn að hennar mati og málaði það dökk- grænt. Þess ber að geta að ég hef aldrei verið hrifin af grænum lit en ég skildi kærleiksgjörninginn og var þakklát fyrir væntumþykjuna. Græna herbergið fékk að njóta sín hjá okkur í mörg ár. Við tvær brölluðum margt sam- an. Ester hvatti mig til að ganga í SVF Helgu Bárðardóttur eftir að hún gat fengið mig á fund. Kirkju- kórinn var henni líka hjartans mál og nauðsynlegt að ég færi í hann. Einnig unnum við saman um ára- bil í netavinnu ásamt góðri vin- konu okkar, Auði Gríms. Eftir stendur að það voru mikil forrétt- indi að hafa Ester í nágrenni við okkur fjölskylduna. Aldrei lét hún hugfallast þó að á henni dyndi hvert áfallið af öðru. Hún hélt ótrauð áfram af styrk og æðru- leysi. Minning hennar mun lifa í hjarta okkar sem elskuðum þessa glæsilegu konu sem var 88 ára þegar hún var kölluð til ástvina sinna sem farnir eru. Hinsta kveðja til þín, elsku tengdamamma, mamma, amma og langamma. G. Elísabet, Baldur Freyr og fjölskylda. Elsku hjartans amma mín. Þú hefur alltaf verið svo mikil alvöru manneskja, sterkur karakter, skemmtileg og lést þig málin varða, sérstaklega þegar þitt fólk átti í hlut. Að heimsækja þig á Rif á sumrin var alltaf það besta; vera með Hjalta frænda og Guðbjörgu frænku og öllum hinum, að stelast í kríueggin, stelast í boxið með ástarpungunum sem þú varst nýbúin að baka og borða þá á leið- inni í varpið er minning sem ég mun seint gleyma. Að vakna við kríurnar á morgnana er ham- ingjutilfinning fyrir mig. Þú varst lífsreyndasta konan, fékkst erfiðustu verkefnin að mörgu leyti. Þurftir að upplifa svo margt á lífsleiðinni. Að sjá styrk þinn í gegnum allt sem á hefur dunið mun styrkja mig um ókomna tíð. Það var mikil reisn yfir þér. Þú eignaðist níu börn, 24 barnabörn og enn fleiri lang- ömmubörn. Ég man ég hugsaði þegar ég var yngri hvað það hlyti að vera mikið vesen að kaupa jóla- gjafir fyrir allt þetta fólk en þú leystir það með því að gefa öllum eina happaþrennu í umslagi og margt fleira auðvitað. Stemningin í Rifsættinni er ein- stök og er ég endalaust þakklát fyrir að vera af henni, þar býr svo mikill kraftur og styrkur sem við erfum eftir þig. Takk fyrir það elsku amma. Ég á þér svo margt að þakka og mun horfa upp til þín áfram. Elska þig elsku amma mín. Þín Edda Sif. Ester Úranía Friðþjófsdóttir ✝ Gunnlaugur Theodórsson fæddist á Hafurs- stöðum í Öxarfirði 1. desember 1929. Hann lést á dval- arheimilinu Hvammi á Húsavík 11. mars 2022. Foreldrar hans voru Guðrún Páls- dóttir húsfreyja frá Svínadal, f. 3. mars 1902, d. 19. júlí 1987, og Theo- dór Gunnlaugsson bóndi og rit- höfundur frá Bjarmalandi, f. 27. mars 1901, d. 12. mars 1985. Gunnlaugur var einn fimm systkina, en hin eru Þorbjörg, f. 13. júlí 1926, d. 13. ágúst 2012, Guð- mundur f. 1. októ- ber 1927, d. 22. júlí 2012, Halldóra, f. 23. mars 1933, og Guðný Anna, f. 24. ágúst 1947. Gunnlaugur bjó lengst af á býl- unum Bjarmalandi og Austara-Landi í Öxarfirði. Hann var ókvæntur og barn- laus. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elsku kæri Gulli frændi. Þetta verður víst síðasta bréfið til þín. Við höfum alltof lítið getað spjall- að saman síðustu árin. Það hefur verið langt á milli okkar, heyrn þín orðin döpur, og símtölin því orðið sífellt fátæklegri. Við höf- um, sem betur fer, áður haft mörg tækifærin til að ræða málin. Dýr- mætast finnst mér að hafa fengið að hlusta á frásagnir þínar þar sem þú rifjar upp æskuárin á Haf- ursstöðum og Bjarmalandi. Árin í torfbænum þar sem alltaf var hlýtt, um náttúruna í heiðinni, um Jöklu og umhverfi hennar, um veiðar, um fjölskylduna og frænd- fólkið. Þar var ástin til sveitarinn- ar og umhyggjan fyrir náttúrunni svo sjálfsögð að ekki var þörf á hugtökum eins og mengun eða of- neyslu. Það sem náttúran gat gef- ið var þegið með þökkum en þar sem landeyðing átti sér stað var ráðist í uppgræðslu. Þú sagðir mér af erfiðleikunum við að stunda búskap uppi í heiðinni og hve stór breyting varð við flutn- inginn í Austara-Land. Þar var heyfengurinn margfaldur og hægt að fjölga skepnunum. Lífið varð auðveldara samtímis sem heiðarbýlið var áfram annað heimili. Ást þín til heimahaganna og frelsisins hindraði þig þó ekki frá því að svala ævintýraþránni. Þú sóttir vertíðir til margra ára í Vestmannaeyjum og á Snæfells- nesi við góðan orðstír, í góðum fé- lagsskap heimamanna og farand- verkamanna. Þú fékkst snemma áhuga á bílum og tókst meirapróf á Akureyri. Frá því ég pollinn fór að vera sumur og sumarparta á Austara-Landi varst þú í mínum augum besti bílstjóri í heimi. Þú hlúðir að bílunum, rétt eins og dýrunum og öllu öðru í kringum þig. Röð, regla og vandvirkni hef- ur alltaf einkennt þig. Þú varst oft upptekinn með vörubílinn í vegavinnu á sumrin en komst svo heim og vannst fram á nótt í heyskap. Þú gafst þér þó tíma til að spjalla við litla frænda þinn sem bjó um sig í hinu rúminu í svefnherberginu þínu. Þú leið- beindir honum á allan mögulegan hátt, við smölun og flutning fjár, um keyrslulag, virðingu fyrir náttúrunni, notkun skotvopna og margt fleira. Þú varst við hlið hans þegar hann skaut sína fyrstu rjúpu. Sambandið hefur aldrei rofnað, tryggðin og vinskapurinn alltaf sjálfsagður. Á síðari árum var tryggð þín við bróður þinn einstök og aðdáunarverð við erf- iðar aðstæður. Síðustu árin bjóst þú í góðu yfirlæti á dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík. Þegar við Guðrún, konan mín, komum í heimsóknir til þín rifjuðust ætíð upp kærar minningar frá samver- unni í sveitinni, okkur til enda- lausrar ánægju. Síðustu árin hef- ur svo heilsan farið að gefa sig og þú alveg steinhissa á hve háum aldri þú hafðir náð, „hefði aldrei búist við að verða svona gamall“. Nú svífur þú sem fuglinn frjáls til æðri tilveru þar sem allir þínir góðu eiginleikar tryggja þér það hásæti sem sæmir þér. Hugur minn verður alla tíð hjá þér, kæri frændi. Theodór Gunnar Sigurðsson. Gunnlaugur Theodórsson Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS GISSURARSON rafvirkjameistari, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 1. apríl. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 11. apríl klukkan 13. Jóhanna V. Magnúsdóttir Hallur Steinar Jónsson Ásta Hallsdóttir Jón Valentínusson Sigurveig Hallsdóttir Ingvar Karlsson Hanna Valdís Hallsdóttir Eysteinn Finnsson og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR ÞORVALDSDÓTTIR, Víðihlíð, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð fimmtudaginn 31. mars. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 12. apríl klukkan 13. Stefanía Ólafsdóttir Bjarni Andrésson Dröfn Vilmundardóttir Jónas Karl Þórhallsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR, Lyngási 1d, Garðabæ, lést á Landspítala laugardaginn 2. apríl. Útförin fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 13. apríl klukkan 15. Wim van der Aa Jónína Guðrún Arnardóttir Jakob Ohayon Benedikt Ármann Arnarson Daníel Moshe Ohayon Keren Lilja Ohayon Theodór Fannar Benediktsson Viktor Máni Benediktsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR VILHJÁLMSSON slökkviliðsmaður, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 22. apríl klukkan 12. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samtök sykursjúkra (diabetes.is). Ásgeir Halldórsson Guðrún Brynjólfsdóttir Guðrún Halldórsdóttir Hjörleifur Hannesson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, K. SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR, Austurvegi 5, Grindavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð fimmtudaginn 31. mars. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, miðvikudaginn 13. apríl klukkan 13. K. Sigríður Gunnarsdóttir Þorsteinn Einarsson Hallfríður Guðfinnsdóttir Baldvin E. Einarsson Guðrún Agnes Einarsdóttir Uni Þór Einarsson barnabörn og barnabarnabörn HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.