Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
50 ÁRA Borgar er Borgnesingur en
býr í Reykjavík. Hann er með sveinspróf
í málaraiðn, BA í sálfræði frá HÍ og
MBA frá HR með áherslu á mannauðs-
stjórnun. Borgar er mannauðsstjóri á
Veðurstofu Íslands. Hann er í Badmin-
tonfélagi Hafnarfjarðar „Ég er að keppa
á Meistaramóti BSÍ sem fram fer um
helgina. Ég er líka í golfi, hef áhuga á
fótbolta og íþróttum almennt og er líka
eitthvað í fluguveiði.“
FJÖLSKYLDA Kona Borgars er
Sigurbjörg Ásgerður Heiðarsdóttir, f.
1971, bókari hjá OJK-Ísam. Börn þeirra
eru Heiðbjört Bára, f. 1993, og Axel Þór,
f. 2001. Foreldrar Borgars eru Axel Þór-
arinsson, f. 1943, málarameistari, og Sig-
ríður Sveinbjörg Björnsdóttir, f. 1945,
húsmóðir. Þau eru búsett í Reykjavík.
Borgar Ævar Axelsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Forðastu allar fjárfestingar og gerðu
nákvæmar áætlanir sem þú svo ferð eftir.
Gleymdu sjálfum þér ekki of lengi hvernig
sem allt veltur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Notaðu daginn til þess að spá í skipt-
ingu á einhverju sem þú þarft að deila með
öðrum. Taktu stjórnina í þínar hendur og þá
munu hjólin fara að snúast þér í hag.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Nú þarft þú að taka á honum stóra
þínum og standa af þér stormviðri um
stundarsakir. Gakktu ekki alveg fram af þér
og gefðu þér tíma til að rækta sjálfan þig.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Ákveðni þín í að leiða hlutina til lykta
vekur athygli yfirmanna þinna og þú munt
hljóta umbun erfiðis þíns. Stundum borgar
það sig að hafa fyrir hlutunum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þótt húsverkin séu ekki í uppáhaldi hjá
þér þarftu að gefa þér tíma til að sinna þeim.
Ef tækifæri til ferðalaga gefst skaltu grípa
það feginshendi.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú þarft að taka meira tillit til ann-
arra og þarft að varast að ganga yfir fólk,
þótt boðskapur þinn sé góður. Láttu það
ekki koma þér á óvart ef þú færð atvinnu-
tilboð.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hugmynd sem sýnist snilldarleg getur
reynst allt annað og minna. Farðu þér hægt
því þá munt þú ekki lenda í neinum vand-
ræðum síðar meir.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Bandalag sem þú hélst að þú
gætir ekki verið án reynist vera úr sér geng-
ið. Farðu í gegnum málin og bættu úr þessu
strax.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er spenna á milli þín og þíns
heittelskaða. Misstu ekki móðinn þótt það
reynist erfiðara en sýnist í fljótu bragði.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Fólk sem hagar sér heimskulega
veldur vandræðum, en reyndu sjá að fyndnu
hliðina á því. Farðu vel með sjálfan þig.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú gefur fólki loforð og vilt trúa
því að þú standir við þau. Reyndu að fá yf-
irsýn yfir heildarmyndina án þess að hafa
áhyggjur af smáatriðunum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú þarft hugsanlega að útskýra eitt-
hvað sem þú deilir með öðrum. Ekki reyna
að þröngva skoðunum þínum upp á aðra.
var alltaf að fræða okkur krakk-
ana um þessa hluti og enn í dag
lifir þessi áhugi í okkur. Hann átti
t.d. mjög fallegt steinasafn.“
Starfsferillinn
Ungur fór Ingvar að vinna á
sumrin á Vífilsstaðabúinu við hey-
skapinn, en 1958 vann hann suður
á Velli og sumarið ’59 á Gufuskál-
um við byggingu Lóranstöðv-
arinnar. Haustið ’59 fór hann síð-
an norður á Akureyri í MA og
lauk stúdentsprófi þaðan 1963. Ár-
in sem hann var í MA var hann á
síld á sumrin á Mána GK 36. „Eft-
ir stúdentsprófið fór ég til Eyja en
þar bjó fyrri kona mín og elsti
sonur okkar Páll. Um haustið
flytjum við til Hafnarfjarðar og
þar hef ég búið síðan. Við leigðum
fyrst í Fögrukinn, en eignuðumst
fyrstu íbúð á Skúlaskeiði 36, fal-
legum stað fyrir ofan Hellisgerði.“
Fyrsta starf Ingvars í Hafnar-
firði var umboðsmaður Brunabóta-
félagsins, en allar fasteignir stórar
og smáar voru þá tryggðar hjá
Brunabót. Veturinn eftir kenndi
hann svo einn tíma á dag kl. 8 áð-
ur en hann fór á skrifstofuna.
Þessir fyrstu nemendur hans voru
fæddir 1950. Árið 1967 færði hann
sig alfarið yfir í Flensborg og
sem fyrirfinnst. Við vorum mörg
frændsystkinin á bænum og mikið
að gera. Þar kom oft einkenni-
legur maður og fór þá út í móana
og hraunið og var að mála. Hann
var einkennilegur í háttum og
framkomu. Þessi maður hét Jó-
hannes Kjarval eða Jói geit eins
og Borgfirðingar kölluðu hann
enda frá Geitavík. Afi var mikill
náttúrufræðingur, þekkti alla
fugla, skordýr, steina og blóm og
I
ngvar Júlíus Viktorsson
fæddist á Vífilsstöðum, þá
í Garðahreppi, 9. apríl
1942. „Ekkert húsnæði var
þá laust á staðnum þannig
að ég kom í þessa veröld í húsi
yfirlæknisins, Helga Ingvarssonar,
og tók hann á móti mér, en Helgi
var ömmubróðir minn og hann
hafði útvegað pabba vinnuna.
Varla var hægt að hugsa sér
betri stað til að alast upp á, sveit
við dyr höfuðborgarsvæðisins. En
margir voru hræddir við Vífils-
staði vegna berklanna, en starfs-
fólkið og við börnin sem bjuggum
þar vorum sprautuð með bakt-
eríunni þannig að við máttum fara
um allt, óhrædd við vistfólkið.
Ekki er laust við að við höfum
verið eins og prinsar og prins-
essur, þar sem sjúklingarnir sökn-
uðu að sjálfsögðu barna og barna-
barna sinna. Enginn skóli var í
Garðahreppi á þessum tíma svo
við fórum í Barnaskóla Hafnar-
fjarðar og síðan í Flensborg. En
við gengum ekki í skólann eins og
sagt er, okkur var ekið þangað
lengstum af Nýju Bílstöðinni í
Hafnarfirði. Þannig að þegar
Hafnfirðingar gengu í skólana í
öllum veðrum komum við út úr
leigubíl við skóladyrnar. Það voru
al-gjör forréttindi að fá að alast
upp á Vífilsstöðum innan um allt
þetta góða fólk, þar sem margir
hverjir vissu ekki hvað morgun-
dagurinn bar í skauti sér.
Húsakostur á Vífilsstöðum var
mjög þröngur í upphafi en lagaðist
fljótlega. Fyrst vorum við þrjú
systkini á þremur árum og þá
bara í einu herbergi með aðgang
að eldhúsi og baðherbergi. Við
þrjú sváfum í innbyggðum fata-
skáp í hillunum og hafði pabbi sett
merar á þær svo við yltum ekki
fram úr. En síðan stækkuðu vist-
arverurnar og alltaf var nóg pláss
hjá okkur fyrir gesti og gangandi.
Ég fór í sveit austur á Desjar-
mýri þar sem afi og amma bjuggu
ásamt sonum sínum. Afi var þar
prestur og voru þau með stórt bú.
Það var gaman að vera fyrir aust-
an enda einhver fallegasta sveit
kenndi þar ensku og síðar einnig í
Víðistaðaskóla og síðast í Set-
bergsskóla þar sem starfsferli
hans lauk 2009.
Ingvar var kjörinn í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar fyrir Alþýðuflokk-
inn 1986 og sat í bæjarstjórn til
2002. Hann gegndi þar hinum
ýmsu embættum, var formaður
bæjarráðs, í stjórn Hafnarborgar,
Eftirlaunasjóðs og síðan bæjar-
stjóri 1992-1998. Þá var hann átta
ár í stjórn Sambands íslenskra
sveitarfélaga og varaformaður í
nokkur ár, í stjórn Hafna-
sambands sveitarfélaga og stjórn
Lánasjóðs sveitarfélaga og í 10 ár
fulltrúi Íslands í Sambandi evr-
ópskra sveitarfélaga í Strassborg.
Þá hefur hann setið í stjórn Ísal, í
stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar og
situr í stjórn Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar og nú í mörg ár í
stjórn Flensborgarskólans. Þá eru
ótalin störf hans innan Fimleika-
félags Hafnarfjarðar en FH hefur
hann helgað krafta sína, verið for-
maður knattspyrnudeildar, hand-
knattleiksdeildar, einn af stofn-
endum Muggs og formaður félags-
ins 2002-2008 og útnefndur
heiðursfélagi 2009. Þá lék hann
tæplega 100 leiki fyrir FH og
Hafnarfjörð í knattspyrnu. Á
yngri árum fékkst hann einnig við
þjálfun.
Ingvar hefur fengið heiðurs-
kross Ólympíu- og íþrótta-
sambands Íslands. Gullmerki KSÍ,
HSÍ, ÍBH og Keilis og er heiðurs-
félagi FH og Chelsea-klúbbsins á
Íslandi. „Árið 1967 vaknaði áhugi
minn fyrir Chelsea og hefur ekki
slokknað síðan þó á ýmsu hafi
gengið hjá þeim.“ Ingvar hefur
svo fengið öll starfsmerki FH.
Áhugamál Ingvars í dag eru t.d.
golf, en hann er félagi í Golf-
klúbbnum Keili og er þar félagi í
Brynjugenginu. „Það er orðinn 18
ára félagsskapur hressra drengja
sem leika golf vikulega og auk
þess leik ég golf með öðrum hópi
vinaminna. Stangveiði er stunduð í
veiðiklúbbnum Nafnar og hefur
svo verið í 25 ár. FH karlar er fé-
lagsskapur eldri FH-inga sem
Ingvar Viktorsson, fyrrverandi kennari og bæjarstjóri – 80 ára
Systkin og móðir Samankomin á 80 ára afmæli Guðrúnar.
Ljúfar minningar frá Vífilsstöðum
Hjónin Birna og Ingvar.
Elín Rut Róbertsdóttir,
Laufey Emilý Adams-
dóttir og Ísabella Árný
Nínudóttir söfnuðu
samtals 22.837 krónum
til styrktar mannúðar-
starfi Rauða krossins í
Úkraínu. Söfnunina
héldu þær fyrir utan
verslunina Hrísalund á
Akureyri.
Hlutavelta
Til hamingju með daginn
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ
Hjólablað
Morgunblaðsins kemur út 30. apríl
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Viðar Ingi Pétursson
vip@mbl.is - S.569-1109
– meira fyrir lesendur
Við hjólum inn í vorið með
stórglæsilegu sérblaði,
sneisafullu af áhugaverðum
viðtölum og fréttum úr
hjólreiða heiminum.
SÉRBLAÐ