Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 42

Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 42
Heillandi Verk í Gryfjunni sýnir geimrusl og gervihnetti yfir 80 ára tímabil. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Destination Mars nefnist forvitnileg einkasýning Söru Riel sem nú stend- ur yfir í Ásmundarsal og er hún, eins og titillinn gefur til kynna, sett upp sem geimferð til hinnar fjarlægu plánetu Mars. Sara vinnur í ýmsa miðla og sýnir um allt safnið og utan á því líka. Má sjá málverk, teikning- ar, grafík, ljósmyndir, lágmyndir, innsetningu og veggverk sem tengj- ast efninu með ýmsum hætti. Segir í sýningartexta að Sara fjalli um grundvallarspurningar á borð við uppruna, tilgang, siðferði og örlög og að mikilfengleiki vísindaafreka mannsins kallist á við smæð hans í geimnum, tæknihyggja og framfara- trú mæti dulspeki og fortíðarróm- antík. „Geimferðir sýna okkur jörð- ina í nýju ljósi en þekja hana smám saman geimrusli, svo hætt er við að við lokumst inni,“ segir þar og vissu- lega er það hrollvekjandi tilhugsun. Sara veltir m.a. fyrir sér afleið- ingum þess að Rússar hafi skotið flugskeyti á eigið gervihnattatungl í fyrra með þeim afleiðingum að yfir 1.500 stærri brot og mörg hundruð smærri dreifðust um sporbaug jarð- ar. Þá spyr hún hvaða áhrif aðkoma milljarðamæringa, sem þróað hafa nýjar eldflaugagerðir sem gera ódýr- ara að ferðast út í geim og senda þangað gervihnetti í einkaeigu, muni hafa á afstöðu okkar til almennra ferðalaga og búflutninga út í geim. Í einu verki má sjá stjörnuna Síríus og mikilvægi hennar þegar kemur að trúarbrögðum og andlegri iðkun í aldanna rás. Og þannig mætti áfram telja. Frægasta geimflaugin Sara tekur á móti blaðamanni í dyrum Ásmundarsalar og ólíkt því sem blaðamaður hélt þá skiptir máli hvar er byrjað á sýningunni. Við byrjum því uppi, í aðalsalnum, á verki sem sýnir ógnarstærð sólarinnar í samanburði við stjörnur sólkerfisins. Strax í upphafi eru sýningargestir minntir á smæð sína í hinum mikla og óendanlega (eða hvað?) alheimi og hvar þeir eru staddir í honum. Við hlið verksins má sjá stórt málverk og myndar í því fjöldi geimflauga eina stóra. Blaðamaður þykist þekkja þessa stóru sem þá sem birtist í Tinna-bókinni Eldflaugastöðinni. Sara staðfestir að svo sé. „Hún er, held ég, frægasta geimflaugin,“ segir hún og að í verkum sínum vísi hún mikið í vísindaskáldskap frá sjöunda og áttunda áratugnum og teikni- myndahefðina. Lestur hafi alltaf skipt hana höfuðmáli í aðdraganda sýninga og þaðan komi viðfangsefni hennar alla jafna. Tinna-flaugin kall- ast líka skemmtilega á við hina geim- flaugarlegu Hallgrímskirkju sem blasir við fyrir utan, tilbúin að hefja sig til flugs í átt að Mars. Þegar Siríus rís þá flæðir Níl Ef sýningunni er líkt við teikni- myndasögu, ramma fyrir ramma, er næsti rammi sem Sara sýnir blaða- manni Síríus fyrrnefnd, „bjartasta stjarna stjörnumerkisins Stórahunds og kallaðist Canicula á latnesku al- þýðumáli sem hefur verið þýtt sem Hundastjarna“, eins og segir á Vís- indavefnum. „Þegar Síríus rís á sumrin þá flæðir Níl þannig að þetta er alls staðar í menningarheimi Egyptalands og í Grikklandi eru hundadagar sveittustu dagarnir,“ fræðir Sara blaðamann og nefnir ýmsar aðrar kenningar tengdar stjörnunni björtu. Við skoðum fleiri verk og veltum fyrir okkur spurningunni sem menn hafa lengi velt fyrir sér – þeirra á meðal David Bowie heitinn – hvort líf sé á Mars. Eitt málverkið sýnir rauðu plánetuna frá sjónarhorni fjarstýrða geimjeppans Perseverance en Sara er að vísu búin að eiga við útsýnið, himinninn er til að mynda blár í verk- inu sem hann sannarlega er ekki á Mars og steinmyndanir virðast vera verk manna frekar en Marsbúa. Í öðru verki má sjá sjónarhorn dróna sem býr sig til lendingar á rauðu plánetunni. Búið er að bora hringlaga gat í yfirborð hennar, ummerki eftir vélar manna og rautt X er yfir gatinu, líkt og um fjársjóðskort sé að ræða enda Marsferðir ákveðin gerð fjár- sjóðsleitar. Sara bendir á að draumur vísindamanna sé að sjá einhver um- merki á Mars, vísbendingar um líf á fjarlægri plánetu. Sólin sést uppi í einu horni salarins, skærgul og negld með stórum svörtum nagla við vegg- inn. Vísun í Söguna af bláa hnett- inum, segir Sara um þá gulu. Vísindi og listir En hvernig datt Söru í hug þetta efni að myndlistarsýningu? „Af því ég geri myndlist,“ svarar hún kímin og bætir svo við að viðfangsefnin komi iðulega hægt og rólega til sín, oftast í gegnum bækur, kvikmyndir eða sam- félagið sjálft. „Svo fer ég að spá og spekúlera í því eins og fólk gerir og minn miðill er myndir. Þetta er bara eins og glósur,“ segir Sara. Viðfangs- efnin þurfi að vera djúpur brunnur að sækja í. „Ég hef bara áhuga á því að vera til,“ segir Sara um listsköpun sína og að sér hafi alltaf fundist vísindi og listir haldast í hendur, líkt og hún gerði með hvað greinilegustum hætti á tímum endurreisnarinnar. Við höldum í Gryfjuna, neðsta sýn- ingarrými safnsins. Þar má sjá dá- leiðandi verk sem varpað er með ljósi af hringlaga glerplötum á veggina og snýst í hringi. Sara horfir hugfangin á eigin sköpun og skal engan undra því þetta er afskaplega fallegt verk sem sýnir geimrusl og gervihnetti, frá árinu 1957 til 2037 og því að hluta til framtíðarspá. Fallegt en um leið svo ógnvekjandi, eins og svo mörg verka Söru. Sýningin Destination Mars stend- ur yfir til 24. apríl. Djúpur brunnur að sækja í - Sara Riel býður sýningargestum í ferðalag til Mars í Ásmundarsal- Eldflaug Tinna kallast á við Hallgrímskirkju - „Ég hef bara áhuga á því að vera til,“ segir Sara um áhugaverða listsköpun sína Tinnaflaug Þekkt eldflaug úr Tinnabók samsett úr ótal öðrum. Útiverk Sara önnum kafin við gerð listaverks utan á húsinu. Marsfari Sjálfsmynd sem Sara teiknaði og prýðir sýningarskrána. 42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Jóhann Kristinsson barítón og Am- miel Bushakevitz píanóleikari koma fram í tónleikaröðinni Syngj- andi í Salnum á morgun, sunnudag, kl. 19.30 og halda ljóðatónleika. „Jóhann Kristinsson barítón er að festa sig í sessi sem einn af áhugaverðustu söngvurum ungu kynslóðarinnar og þá sérstaklega sem ákaflega vandaður ljóðasöngv- ari,“ segir í tilkynningu og að hann hafi fengið einn eftirsóttasta með- leikara sinnar kynslóðar, Ammiel Bushakevitz, til liðs við sig við flutning á sönglögum sem þeim séu mjög hjartkær. Þar á meðal sé ljóðaflokkurinn Tólf ljóð eftir Just- inus Kerner, Op. 35 eftir Robert Schumann, ljóða- flokkurinn Six Songs from A Shropshire Lad eftir George But- terworth við ljóð A.E. Housman og íslensk sönglög eftir Þórarin Guðmundsson, Atla Heimi Sveinsson og Árna Thorsteinsson. Syngjandi í Salnum er ný tón- leikaröð sem hóf göngu sína í febr- úar og listrænn stjórnandi hennar er Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona. Flytja sönglög sem þeim eru hjartkær Ammiel Bushakevitz Opið virka daga kl. 10–18, laugardag og sunnudag kl. 12–16 Sýning í Gallerí Fold 9. - 30. apríl Sýningaropnun laugardag 9. apríl kl. 14 ÞORRI HRINGSSONN Ý M Á L V E R K Framleiðslufyrir- tæki hins kunna kvikmyndaleik- stjóra Ridleys Scotts, Scott Free Productions, hef- ur tryggt sér kvikmyndarétt- inn að nýjustu skáldsögu Ragn- ars Jónassonar, Úti, sem kom út á Íslandi í fyrra og var þýdd yfir á ensku. Í samtali við mbl.is segir Ragnar að það sé afar spennandi fyrir hann að fá tækifæri til að vinna með manni á borð við Scott og hans teymi. „Þetta kom til tals síðasta sumar þegar bókin kom út á Íslandi og búið var að þýða hana strax á ensku, þá fór eintakið til fyrirtækisins hjá Ridley Scott í gegnum Truenorth hérna heima,“ segir Ragnar. „Þá kviknaði áhuginn hjá þeim og við fórum af stað í við- ræður við þá um að kaupa réttinn og það er að klárast núna.“ Úti fjallar um fjóra vini sem fara upp á hálendi í rjúpnaveiði, lenda í óveðri og leita skjóls í veiðikofa. Stefnt er að því að gera kvikmynd upp úr bókinni og mun Scott fram- leiða hana og viðræður eru hafnar við danska leikstjórann Henrik Han- sen um að leikstýra myndinni. Scott Free keypti réttinn að Úti Ragnar Jónasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.