Morgunblaðið - 09.04.2022, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 09.04.2022, Qupperneq 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Maður hefur fylgst með Flosa lengi vel í gegnum hin ýmsu verkefni, einkanlega HAM, en sem tónlistarmaður hefur hann snert á ansi mörgu og það af ólíkum toga. Lék á bassa með pöbbasveitinni Mikki Refur t.a.m. samfara HAM einn vetur. Og meðfram því sem leikið er með sveitum eins og Drepi, Sól- stöfum og Glerakri, allt sveitir af þyngra tagi, tek- ur hann í bassa með sveit Sváfnis Sigurðarsonar. Ekki einhamur maður, Flosi, en auk þessa er hann liðtækur leikari og ekki skortir á sagnfræðikunn- áttuna eins og hlustendur hlaðvarpsins Draugar fortíðar hafa fengið að kynnast. En að þessari plötu hér. Flosi segir frá því á söfnunarsíðunni Karolina Fund að fyrir nokkrum árum hafi hann verið kominn með nokkur lög í hausinn sem voru orðin þaulsætin þar. Afréð hann því að hlaða í plötu og lýsir hann verkinu sem óði „til allrar þeirrar tónlistar sem hefur haft áhrif á mig í gegnum tíðina. Þarna má finna jafnt áhrif frá nýbylgjurokki níunda áratugar, pönki, þungarokki og klassísku rokki.“ Afurðin er tíu laga gítarrokkplata hvar Flosi syngur og sér um allan hljóðfæraleik (bassa og gítara) en félagi hans úr HAM, Arnar Geir Ómarsson, sér um trommuslátt. Plötuna tók svo Einar Vilberg upp í Stúdíó Hljóðverk. Þeir sem áttu von á níðþungu öfgarokki í ætt við HAM fá ekkert slíkt hér. Jú, að einhverju leyti en engan veginn öllu. Dálæti Flosa á melódísku neðanjarðarrokki í ætt við Dinosaur Jr. og Hüsker Dü er t.d. vel ljóst í gegnum plötuna og hefst hún reyndar á hálfgerðum óði til Dinosaur Jr. „Týnd“ nánast stekkur á þig frá fyrsta tóni, hressilegt há- skólarokk og söngrödd Flosa kom mér á óvart. Þarna er bassaröddinni eigi beitt, söngurinn er „venjulegur“ og viðlagið sungið í rífandi, ástríðu- fullum ham. „Myrkur“ er í svipuðum fasa, sam- splæsing af Hüsker og Sonic Youth og söngröddin tilkomumikil, tilfinningaþrungin og sögumaður á Öllu er lokið Einn Flosi Þorgeirsson fer mikinn sem einyrki á fyrstu sólóplötu sinni. vonarvöl. Í „Týnd“ kom setningin „Grámi umlykur oss“ fyrir og í „Myrkur“ má heyra talað um ljós- leysi, náttmyrkur og að „allt sé svart“. Flosi er mikið að tala um myrkur á plöt- unni, myrkur sálarinnar, en hann hefur verið afar opinskár í fjölmiðlum um baráttu sína við þung- lyndi. Sem hefur bæði hjálpað honum og öðrum. Hér er horft af krafti niður í hyldýpið en óhætt er að segja að sá sem hefur kynnst djúpu þunglyndi hefur í raun fengið innlit í helvíti. Að viðra þetta allt saman í texta og tónum er lofsvert bæði og hugrakkt. Flosi passar sig þó að bjóða upp á tilbrigði við stef. Það er spennandi að sjá gítaræfingarnar hjá honum, sjá t.d. gítarlykkjurnar sem opna „Mis- tök“ (sem geymir þessar línur, „Lífið er tilgangs- laust / fánýtt, stefnulaust …“). „Grái farþeginn“ er með HAM-legri lögum hérna, meira þungarokk en nýbylgja mætti segja. Upphafið a.m.k., svo er rúll- að í dægilegasta vers áður en þyngslin taka völdin á nýjan leik. Áhugavert lag og frumlega uppbyggt. „Sólin er köld“ er keyrt á hægu, skriðdreka- legu riffi (smá XIII í gangi) og svo má telja. Restin af plötunni sveiflast örugglega á milli grípandi nýbylgju og þyngri spretta og verkinu er lokað með „Hlekkur“ sem er vel til fundin heiðrun Link Wray til handa. Ég verð líka að geta þáttar nafna míns Ómarssonar sem ber húðir af miklum glæsi- leik. Og höfundareinkennið fer engan veginn fram hjá manni. Plata sem varð að gera og hún var gerð. Vel gert! Titill greinar er vísun í einn af þekktari frös- um Flosa. En má ég snúa honum aðeins á haus hér í endann og segja: Er ekki allt að byrja bara? » Hér er horft af krafti niður í hyldýpið en óhætt er að segja að sá sem hefur kynnst djúpu þunglyndi hefur í raun fengið innlit í helvíti. Flosi Þorgeirsson steig í fyrsta sinn fram sem sólólistamaður í fyrrahaust á plötunni Flosi. Innihaldið er grípandi nýbylgju- rokk með textum sem kanna dýpstu innviði sálarinnar. Listamennirnir og hönnuðirnir Aamu Song og Johan Olin, sem mynda tvíeykið COMPANY, koma fram á DesignTalks 2022 sem er alþjóðleg ráðstefna og lykilvið- burður HönnunarMars og varpar ljósi á hvernig hönnun og arkitekt- úr getur tekið þátt í uppbyggingu og framþróun og verið hreyfiafl breytinga, að því er segir í tilkynn- ingu. Song og Olin eru með aðsetur í Helsinki þar sem þau reka verslun sína Salakauppa. Þau vinna oft meira eins og rannsóknarlögreglu- menn, segir í tilkynningu og að verk þeirra og vörur séu reglulega sýnd og seld í galleríum og söfnum víða um heim. COMPANY mætir á DesignTalks 2022 Tvíeyki Aamu Song og Johan Olin. Bach, Schubert og Spohr koma við sögu á tón- leikum syrp- unnar Sígildir sunnudagar á morgun kl. 16 í Norðurljósum í Hörpu. Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Grímur Helgason klarín- ettuleikari og Semion Skigin píanó- leikari flytja tónlist eftir tónskáldin og verða tónleikarnir þeir þriðju og síðustu í lítilli tónleikaferð þeirra um landið. Fyrir hlé verða fluttar aríur og verk eftir J.S. Bach og eftir hlé má m.a. heyra frægustu verk tónlistar- sögunnar fyrir þessa tríósamsetn- ingu, þ.e. Sechs Deutsche Lieder eftir Louis Spohr og Der Hirt auf dem Felsen eftir Franz Schubert. Bach, Schubert og Spohr á sunnudegi Herdís Anna Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.