Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Maður hefur fylgst með Flosa lengi vel í
gegnum hin ýmsu verkefni, einkanlega
HAM, en sem tónlistarmaður hefur
hann snert á ansi mörgu og það af ólíkum toga.
Lék á bassa með pöbbasveitinni Mikki Refur
t.a.m. samfara HAM einn vetur. Og meðfram því
sem leikið er með sveitum eins og Drepi, Sól-
stöfum og Glerakri, allt sveitir af þyngra tagi, tek-
ur hann í bassa með sveit Sváfnis Sigurðarsonar.
Ekki einhamur maður, Flosi, en auk þessa er hann
liðtækur leikari og ekki skortir á sagnfræðikunn-
áttuna eins og hlustendur hlaðvarpsins Draugar
fortíðar hafa fengið að kynnast.
En að þessari plötu hér. Flosi segir frá því á
söfnunarsíðunni Karolina Fund að fyrir nokkrum
árum hafi hann verið kominn með nokkur
lög í hausinn sem voru orðin þaulsætin
þar. Afréð hann því að hlaða í plötu og
lýsir hann verkinu sem óði „til allrar
þeirrar tónlistar sem hefur haft áhrif á
mig í gegnum tíðina. Þarna má finna jafnt
áhrif frá nýbylgjurokki níunda áratugar,
pönki, þungarokki og klassísku rokki.“
Afurðin er tíu laga gítarrokkplata hvar
Flosi syngur og sér um allan hljóðfæraleik (bassa
og gítara) en félagi hans úr HAM, Arnar Geir
Ómarsson, sér um trommuslátt. Plötuna tók svo
Einar Vilberg upp í Stúdíó Hljóðverk.
Þeir sem áttu von á níðþungu öfgarokki í ætt
við HAM fá ekkert slíkt hér. Jú, að einhverju leyti
en engan veginn öllu. Dálæti Flosa á melódísku
neðanjarðarrokki í ætt við Dinosaur Jr. og Hüsker
Dü er t.d. vel ljóst í gegnum plötuna og hefst hún
reyndar á hálfgerðum óði til Dinosaur Jr. „Týnd“
nánast stekkur á þig frá fyrsta tóni, hressilegt há-
skólarokk og söngrödd Flosa kom mér á óvart.
Þarna er bassaröddinni eigi beitt, söngurinn er
„venjulegur“ og viðlagið sungið í rífandi, ástríðu-
fullum ham. „Myrkur“ er í svipuðum fasa, sam-
splæsing af Hüsker og Sonic Youth og söngröddin
tilkomumikil, tilfinningaþrungin og sögumaður á
Öllu er lokið
Einn Flosi Þorgeirsson fer mikinn sem einyrki á fyrstu sólóplötu sinni.
vonarvöl. Í „Týnd“ kom setningin
„Grámi umlykur oss“ fyrir og í
„Myrkur“ má heyra talað um ljós-
leysi, náttmyrkur og að „allt sé svart“.
Flosi er mikið að tala um myrkur á plöt-
unni, myrkur sálarinnar, en hann hefur verið afar
opinskár í fjölmiðlum um baráttu sína við þung-
lyndi. Sem hefur bæði hjálpað honum og öðrum.
Hér er horft af krafti niður í hyldýpið en óhætt er
að segja að sá sem hefur kynnst djúpu þunglyndi
hefur í raun fengið innlit í helvíti. Að viðra þetta
allt saman í texta og tónum er lofsvert bæði og
hugrakkt.
Flosi passar sig þó að bjóða upp á tilbrigði við
stef. Það er spennandi að sjá gítaræfingarnar hjá
honum, sjá t.d. gítarlykkjurnar sem opna „Mis-
tök“ (sem geymir þessar línur, „Lífið er tilgangs-
laust / fánýtt, stefnulaust …“). „Grái farþeginn“ er
með HAM-legri lögum hérna, meira þungarokk en
nýbylgja mætti segja. Upphafið a.m.k., svo er rúll-
að í dægilegasta vers áður en þyngslin taka völdin
á nýjan leik. Áhugavert lag og frumlega uppbyggt.
„Sólin er köld“ er keyrt á hægu, skriðdreka-
legu riffi (smá XIII í gangi) og svo má telja. Restin
af plötunni sveiflast örugglega á milli grípandi
nýbylgju og þyngri spretta og verkinu er lokað
með „Hlekkur“ sem er vel til fundin heiðrun Link
Wray til handa. Ég verð líka að geta þáttar nafna
míns Ómarssonar sem ber húðir af miklum glæsi-
leik. Og höfundareinkennið fer engan veginn fram
hjá manni.
Plata sem varð að gera og hún var gerð. Vel
gert! Titill greinar er vísun í einn af þekktari frös-
um Flosa. En má ég snúa honum aðeins á haus hér
í endann og segja: Er ekki allt að byrja bara?
»
Hér er horft af krafti
niður í hyldýpið en óhætt
er að segja að sá sem hefur
kynnst djúpu þunglyndi hefur
í raun fengið innlit í helvíti.
Flosi Þorgeirsson steig í fyrsta
sinn fram sem sólólistamaður í
fyrrahaust á plötunni Flosi.
Innihaldið er grípandi nýbylgju-
rokk með textum sem kanna
dýpstu innviði sálarinnar. Listamennirnir og hönnuðirnir
Aamu Song og Johan Olin, sem
mynda tvíeykið COMPANY, koma
fram á DesignTalks 2022 sem er
alþjóðleg ráðstefna og lykilvið-
burður HönnunarMars og varpar
ljósi á hvernig hönnun og arkitekt-
úr getur tekið þátt í uppbyggingu
og framþróun og verið hreyfiafl
breytinga, að því er segir í tilkynn-
ingu.
Song og Olin eru með aðsetur í
Helsinki þar sem þau reka verslun
sína Salakauppa. Þau vinna oft
meira eins og rannsóknarlögreglu-
menn, segir í tilkynningu og að
verk þeirra og vörur séu reglulega
sýnd og seld í galleríum og söfnum
víða um heim.
COMPANY mætir á
DesignTalks 2022
Tvíeyki Aamu Song og Johan Olin.
Bach, Schubert
og Spohr koma
við sögu á tón-
leikum syrp-
unnar Sígildir
sunnudagar á
morgun kl. 16 í
Norðurljósum í
Hörpu. Herdís
Anna Jónasdóttir
sópran, Grímur
Helgason klarín-
ettuleikari og Semion Skigin píanó-
leikari flytja tónlist eftir tónskáldin
og verða tónleikarnir þeir þriðju og
síðustu í lítilli tónleikaferð þeirra
um landið.
Fyrir hlé verða fluttar aríur og
verk eftir J.S. Bach og eftir hlé má
m.a. heyra frægustu verk tónlistar-
sögunnar fyrir þessa tríósamsetn-
ingu, þ.e. Sechs Deutsche Lieder
eftir Louis Spohr og Der Hirt auf
dem Felsen eftir Franz Schubert.
Bach, Schubert og
Spohr á sunnudegi
Herdís Anna
Jónasdóttir