Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
V
ið erum á þeim stað í sögu
mannkynsins þar sem vís-
indin segja okkur að við
stefnum á endalokin.
Sjálft loftslagið er komið að þol-
mörkum. Hvert liggur leiðin þá?
Um þetta og margt fleira fjallar
Lofttæmi, fyrsta ljóðabók Nínu
Þorkelsdóttur.
Verkinu er skipt upp í þrjá hluta
sem hafa hver sín sérkenni en eiga
þó í miklu samtali og mynda eina
heild. Þessi uppsetning er nokkuð
algeng í þeim ljóðabókum sem
koma út um þessar mundir en hér
virkar hún mjög vel. Nína gerir
engar sérstakar fimleikaæfingar
með formið heldur leyfir frekar
efniviðnum að vera í aðalhlutverki.
Eftirfarandi línur af fyrstu síðu
verksins setja tóninn fyrir það sem
koma skal.
hlutir sem rísa og falla
eru áhugaverðastir
eins og Rómaveldi
og lungu (9)
Nína skrifar um okkur mennina
sem lífverur og sem menningar-
samfélag. Þessar línur eru gott
dæmi um hvernig hún teflir þessu
tvennu saman. Og við fylgjum risi
og falli mannkynsins, risi og falli
menningarinnar. Þá vinnur
Nína með hið klassíska
minni: „af jörðu ertu kom-
in, að jörðu skaltu aftur
verða“.
Í fyrsta hlutanum, sem
nefnist „Skriðdýr“, förum
við aftur í tíma og skoðum
forvera mannsins. Það má
vel segja að verkið sé byggt
upp sem ákveðin þróunar-
saga. Tíminn leikur stórt
hlutverk og dregur ljóðskáldið upp
ýmsar myndir sem tengjast honum.
Skáldið leiðir okkur aftur í tímann, í
gegnum jarðlögin, til þess tíma þeg-
ar lífverurnar lærðu að draga and-
ann.
Það leiðir okkur að næsta kafla,
kaflanum sem nefnist „Hljómsveit-
arstjóri dregur andann“. Þar verður
tónlistin eins konar fulltrúi
siðmenningarinnar.
ég hef tónsprotann á loft:
fjórða Mahler
handahreyfingar sellistanna
eru samhæfð sundfimi (26)
Andardrátturinn fær
mikið rými í textanum og
Nína dregur skýrt fram
samband hljóðs og lofts.
Vísindin, annað fyrirbæri
sem fylgir manninum og menning-
unni, fá líka sitt pláss í textanum.
Tengingarnar við fyrsta hlutann
eru skýrar, það er enn eitthvað
náttúrulegt á sveimi og ljóðmæland-
inn minnir okkur stöðugt á upphafið
í moldinni og mögulega endastöð
okkar þar.
Þriðji hlutinn nefnist hólmlenda
og bara það orð, hólmlenda, segir
okkur að þar er eitthvað jarðbundið
á ferð og það er einmitt afturhvarf
okkar ofan í jarðlögin sem blasir við
lesendum á síðustu síðum bókar-
innar. Reykvíkingar segja skilið við
fyrra líf og setjast að í hólminum í
Tjörninni. Vegferðin sem hófst í
fyrsta kafla er komin að ákveðinni
endastöð en þó verður ekki sagt að
það ríki neitt vonleysi yfir síðustu
ljóðunum. Þetta er heimsendaverk
en heimsendirinn er að mörgu leyti
mjúk lending, við skríðum ofan í
hlýja moldina og hver veit hvað ger-
ist þegar þangað er komið.
Lofftæmi er afar vel heppnuð
frumraun. Það er ekki þannig að
hver einasta ljóðlína eða hver ein-
asta mynd sem dregin er upp sé
vel heppnuð en heildarmyndin er
stórgóð og tengingarnar sem
verða til gefa lesandanum færi á að
velta samhengi hlutanna, bæði
þeirra stóru og þeirra smáu, fyrir
sér.
Nína hefur valið nokkur skýr
þemu sem hún teflir fram af
öryggi og blandar saman af kost-
gæfni. Verkið er einfalt og
aðgengilegt en það þýðir þó ekki
að það skorti dýpt. Höfundurinn
kannar rými mennskunnar, menn-
inguna og söguna, og veltir fyrir
sér hvað framtíðin ber í skauti sér.
Verða það örlög okkar að finna á
ný samastað í lofttæminu?
Morgunblaðið/Eggert
Aðgengilegt Verkið er einfalt og aðgengilegt en það þýðir þó ekki að það skorti dýpt, skrifar rýnir um bók Nínu.
Allt það sem rís og fellur
Ljóð
Lofttæmi bbbbn
Eftir Nínu Þorkelsdóttur.
Benedikt, 2021. Kilja, 57 bls.
RAGNHEIÐUR
BIRGISDÓTTIR
BÆKUR
Á elleftu milljón safnaðist í Hörpu í
tengslum við Samstöðutónleika Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands með
Úkraínu sem haldnir voru 24. mars
síðastliðinn, eða a.m.k. 10.750.000
króna. Munu fjármunirnir renna til
neyðarsöfnunar Þroskahjálpar fyr-
ir fatlað fólk í Úkraínu og til við-
bótar lagði fólk einnig fé beint inn á
söfnunarreikning Þroskahjálpar.
Allar tekjur af miðasölu runnu í
söfnunina og allar tekjur af lista-
verkauppboði Listvals og ágóði af
veitingasölu í Hörpu.
Samstaða Frá samstöðutónleikunum
sem haldnir voru 24. mars í Hörpu.
Tæpar 11 milljónir
í neyðarsöfnun
Blúshátíð í
Reykjavík hefst í
dag, laugardag,
með Blúsdegi í
miðborginni eins
og hefð hefur
verið fyrir í ára-
fjöld. Blúsað
verður á Skóla-
vörðustíg og far-
ið í skrúðgöngu
frá styttunni af
Leifi Eiríkssyni kl. 14. Mun Lúðra-
sveitin Svanur leikur nokkur lög og
Krúser-klúbburinn bjóða upp á
bílasýningu. Við setningu hátíðar-
innar verður tilkynnt val á heið-
ursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur.
Blúshátíð í Reykjavík verður þó
með örlítið breyttu sniði í ár því í
stað tónleika í nokkra daga verða
nokkrir haldnir á sama kvöldinu,
13. apríl. Koma þar fram margir
fremstu blúsarar Íslands og söng-
konurnar Andrea Gylfadóttir,
Ragnheiður Gröndal og Stefanía
Svavarsdóttir á Hilton Reykjavík
Nordica og hefst gleðin kl. 20.
Blúsdagur á
Skólavörðustíg
Ragnheiður
Gröndal
Strengjakvartettar op. 51 eftir
Joseph Haydn; Sjö orð Krists á
krossinum, verða leiknir á vegum
15:15-tónleikasyrpunnar í Breið-
holtskirkju í dag, laugardag 9. apr-
íl, kl. 15.15. Um flutninginn sér
Skálholtskvartettinn en hann skipa
nú fiðluleikararnir Rut Ingólfs-
dóttir og Hildigunnur Halldórs-
dóttir, Svava Bernharðsdóttir
víóluleikari og Sigurður Halldórs-
son sellóleikari. Skálholtskvartett-
inn skipuðu áður Jaap Schröder og
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikarar,
Svava Bernharðsdóttir víóluleikari
og Sigurður Halldórsson sellóleik-
ari.
Eftir um tveggja áratuga starf
Jaaps með hljóðfæraleikurum og
söngvurum hér á landi liggur óunn-
ið og óútgefið efni sem rúmast á um
sex geisladiskum, segir í tilkynn-
ingu og að öllum ágóða tónleikanna
í Breiðholtskirkju verði varið til að
standa að útgáfu á óútgefnum
hljóðritunum Jaaps með Skálholts-
kvartettinum og Bachsveitinni í
Skálholti.
Kvartett Hljóðfæraleikararnir fjórir sem skipa nú Skálholtskvartettinn.
Sjö orð Krists með Skálholtskvartetti
Útiskúlptúrinn „Farangursheimild“ verður afhjúp-
aður í dag kl. 16 með gjörningi á bílastæðinu fyrir
framan Marshallhúsið á Granda í Reykjavík. Lista-
verkið er eftir Bryndísi Björnsdóttur, eða Dísu, og
Steinunni Gunnlaugsdóttur.
„Með verkinu er samtíminn ávarpaður, sem og
fortíðin, framtíðin og geimurinn,“ segir í tilkynn-
ingu og að verkið hafi verið gert í tilefni af sýning-
unni Ónæmi/Immune sem stendur nú yfir í
Nýlistasafninu.
„Farangursheimild“ afhjúpuð
Steinunn
Gunnlaugsdóttir
VS.
ENSKI BOLTINN
Í BEINNI Á MBL.IS
Í DAG
KL. 14:00