Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 48

Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 48
Þriðja einkasýning Þorra Hringssonar myndlistar- manns í Gallerí Fold við Rauðarárstíg verður opnuð í dag, laugardag, klukkan 14. Í tilkynningu segir að leitin að hinu algilda í hinu smáa hafi leitt Þorra að hinni sí- breytilegu náttúru norðursins þar sem miðnætur- birtan, hádegissólin og kvöldskuggarnir töfra fram endalaus form og litbrigði. Þorri nam við MHÍ og í Hol- landi. Hann hefur haldið fjölda sýninga og í tvo áratugi hefur hann fengist við að mála síbreytilega náttúruna, eins og hún birtist nærri vinnustofu hans í Aðaldal. Náttúruform og ríkuleg litbrigði í verkum Þorra Hringssonar í Fold Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir fór með sigur af hólmi í söngkeppn- inni Vox Domini, sem Félag ís- lenskra söngkennara hélt í fyrsta sinn 2017. Hún sigraði í opnum flokki, sem er fyrir keppendur sem lokið hafa bakkalárprófi, og hlaut jafnframt viðurkenninguna Rödd ársins. „Sigurinn er mikill heiður og ég átti ekki von á þessu en hann hefur ótrúlega mikla þýðingu fyrir mig,“ segir Ragnheiður um keppnina í lið- inni viku. Hún fái til dæmis að halda tónleika í tónleikaröðinni „Á ljúfum nótum“ í Fríkirkjunni, og komi fram á sönghátíð í Hafnarborg í sumar. „Ég vona líka að keppnin veki athygli á ungum söngvurum á Íslandi. Hún er eina keppnin í klassískum söng hérlendis og því ótrúlega gott tæki- færi fyrir söngnemendur til að koma fram fyrir framan fullan sal af fólki í jákvæðu og hvetjandi andrúmslofti.“ Áhugavert mastersverkefni Ragnheiður hóf söngnám hjá Sig- rúnu Hjálmtýsdóttur eða Diddú í Tónlistarskólanum í Reykjavík, nú Menntaskóli í tónlist, 2015 eftir að hafa verið í fiðlunámi frá 2006. Hún brautskráðist frá Listaháskóla Ís- lands í fyrravor með tvöfalda bakka- lárgráðu í fiðluleik og söng með hljómsveitarstjórn sem aukafag, er nú í meistaranámi við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi og útskrifast vorið 2023. „Ég vil reyna að halda öllum dyr- um opnum og sjá hvaða tækifæri bjóðast,“ segir Ragnheiður um fram- haldið. Nú vinni hún að masters- verkefni þar sem hún skoði hvernig syngja megi einsöng með hljómsveit og stjórna henni um leið. „Þetta er einstaklega spennandi verkefni enda sérstakt, en ólíkt hljóðfæraleikurum er söngvari svo heppinn að hafa tvær lausar hendur til að stjórna á meðan hann syngur. Það er mjög áhugavert að hafa sömu manneskju sem ein- söngvara og stjórnanda í stað þess að tveir skipti hlutverkunum á milli sín, persónur sem eru kannski ekki full- komlega sammála um túlkun tónlist- arinnar. Spennandi verður að sjá hvernig hljómsveitin bregst við þess- ari stöðu.“ Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ragnheiður öðlast mikla reynslu í leiklist, söng og hljómsveitarstjórn og komið fram sem fiðluleikari á tón- leikum og hátíðum hérlendis og er- lendis, síðast á tónleikum Sinfó í Hörpu í fyrrakvöld. Hún hefur meðal annars gegnt stöðu konsertmeistara Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands, Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins og Sinfóníuhljómsveitar MÍT og var valin í hljómsveitar- stjóraakademíu Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands undir handleiðslu Evu Ollikainen haustið 2020. „Á mastersprófstónleikum mínum í Stokkhólmi eftir rúmt ár kem ég fram og stjórna og syng einsöng með hljómsveit,“ upplýsir Ragnheiður og segir að fyrirkomulagið sé fátítt. Barbara Hannigan, sópran og hljóm- sveitarstjóri frá Kanada, sé þekktust á þessu sviði og mikill hvalreki sé að fá hana til landsins, en hún stjórni Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í júní og verði einsöngvari á sama tíma. „Örfáir söngvarar hafa gert þetta og ég er spennt að fylgjast með henni, því hún er mögnuð og ákveðin fyrirmynd.“ Stjórnar um leið og hún syngur einsöng - Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir sigraði í Vox Domini Stjórnandi Ragnheiður stjórnar hjá hljómsveitarstjóraakademíu SÍ. Rödd ársins Ragnheiður með viðurkenninguna í Vox Domini. LAUGARDAGUR 9. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Valur leiðir 2:0 í einvígi sínu gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik eftir afar dramatískan sigur Valsmanna í öðrum leik liðanna í Mathúss Garðabæjar-höllinni í Garðabæ í gær. »40 Valsmenn þurfa einn sigur í viðbót ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.