Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 48
Þriðja einkasýning Þorra Hringssonar myndlistar-
manns í Gallerí Fold við Rauðarárstíg verður opnuð í
dag, laugardag, klukkan 14. Í tilkynningu segir að leitin
að hinu algilda í hinu smáa hafi leitt Þorra að hinni sí-
breytilegu náttúru norðursins þar sem miðnætur-
birtan, hádegissólin og kvöldskuggarnir töfra fram
endalaus form og litbrigði. Þorri nam við MHÍ og í Hol-
landi. Hann hefur haldið fjölda sýninga og í tvo áratugi
hefur hann fengist við að mála síbreytilega náttúruna,
eins og hún birtist nærri vinnustofu hans í Aðaldal.
Náttúruform og ríkuleg litbrigði í
verkum Þorra Hringssonar í Fold
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
fór með sigur af hólmi í söngkeppn-
inni Vox Domini, sem Félag ís-
lenskra söngkennara hélt í fyrsta
sinn 2017. Hún sigraði í opnum
flokki, sem er fyrir keppendur sem
lokið hafa bakkalárprófi, og hlaut
jafnframt viðurkenninguna Rödd
ársins.
„Sigurinn er mikill heiður og ég
átti ekki von á þessu en hann hefur
ótrúlega mikla þýðingu fyrir mig,“
segir Ragnheiður um keppnina í lið-
inni viku. Hún fái til dæmis að halda
tónleika í tónleikaröðinni „Á ljúfum
nótum“ í Fríkirkjunni, og komi fram
á sönghátíð í Hafnarborg í sumar.
„Ég vona líka að keppnin veki athygli
á ungum söngvurum á Íslandi. Hún
er eina keppnin í klassískum söng
hérlendis og því ótrúlega gott tæki-
færi fyrir söngnemendur til að koma
fram fyrir framan fullan sal af fólki í
jákvæðu og hvetjandi andrúmslofti.“
Áhugavert mastersverkefni
Ragnheiður hóf söngnám hjá Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur eða Diddú í
Tónlistarskólanum í Reykjavík, nú
Menntaskóli í tónlist, 2015 eftir að
hafa verið í fiðlunámi frá 2006. Hún
brautskráðist frá Listaháskóla Ís-
lands í fyrravor með tvöfalda bakka-
lárgráðu í fiðluleik og söng með
hljómsveitarstjórn sem aukafag, er
nú í meistaranámi við Konunglega
tónlistarháskólann í Stokkhólmi og
útskrifast vorið 2023.
„Ég vil reyna að halda öllum dyr-
um opnum og sjá hvaða tækifæri
bjóðast,“ segir Ragnheiður um fram-
haldið. Nú vinni hún að masters-
verkefni þar sem hún skoði hvernig
syngja megi einsöng með hljómsveit
og stjórna henni um leið. „Þetta er
einstaklega spennandi verkefni enda
sérstakt, en ólíkt hljóðfæraleikurum
er söngvari svo heppinn að hafa tvær
lausar hendur til að stjórna á meðan
hann syngur. Það er mjög áhugavert
að hafa sömu manneskju sem ein-
söngvara og stjórnanda í stað þess að
tveir skipti hlutverkunum á milli sín,
persónur sem eru kannski ekki full-
komlega sammála um túlkun tónlist-
arinnar. Spennandi verður að sjá
hvernig hljómsveitin bregst við þess-
ari stöðu.“
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Ragnheiður öðlast mikla reynslu í
leiklist, söng og hljómsveitarstjórn
og komið fram sem fiðluleikari á tón-
leikum og hátíðum hérlendis og er-
lendis, síðast á tónleikum Sinfó í
Hörpu í fyrrakvöld. Hún hefur meðal
annars gegnt stöðu konsertmeistara
Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, Sinfóníuhljómsveitar unga
fólksins og Sinfóníuhljómsveitar
MÍT og var valin í hljómsveitar-
stjóraakademíu Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands undir handleiðslu
Evu Ollikainen haustið 2020.
„Á mastersprófstónleikum mínum
í Stokkhólmi eftir rúmt ár kem ég
fram og stjórna og syng einsöng með
hljómsveit,“ upplýsir Ragnheiður og
segir að fyrirkomulagið sé fátítt.
Barbara Hannigan, sópran og hljóm-
sveitarstjóri frá Kanada, sé þekktust
á þessu sviði og mikill hvalreki sé að
fá hana til landsins, en hún stjórni
Sinfóníuhljómsveit Íslands á
Listahátíð í júní og verði einsöngvari
á sama tíma. „Örfáir söngvarar hafa
gert þetta og ég er spennt að fylgjast
með henni, því hún er mögnuð og
ákveðin fyrirmynd.“
Stjórnar um leið og
hún syngur einsöng
- Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir sigraði í Vox Domini
Stjórnandi Ragnheiður stjórnar hjá hljómsveitarstjóraakademíu SÍ.
Rödd ársins Ragnheiður með viðurkenninguna í Vox Domini.
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Valur leiðir 2:0 í einvígi sínu gegn Stjörnunni í 8-liða
úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik eftir afar
dramatískan sigur Valsmanna í öðrum leik liðanna í
Mathúss Garðabæjar-höllinni í Garðabæ í gær. »40
Valsmenn þurfa einn sigur í viðbót
ÍÞRÓTTIR MENNING