Morgunblaðið - 13.05.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.05.2022, Blaðsíða 11
11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022 VINNINGASKRÁ 47 8227 20580 28010 37684 47070 59416 72839 167 8446 20665 28252 37770 47337 60103 72881 694 9712 20690 28417 37811 47476 60311 73117 755 9922 20766 28579 37902 47891 60369 73376 1235 10016 20775 28865 38580 48226 60710 73521 1281 10645 20856 29033 38889 49050 60938 73726 1397 10782 20936 29066 39403 49199 61992 74118 1411 10783 20937 29471 39786 49247 62674 74257 1422 10798 20967 29579 39882 49544 62748 74366 1851 10808 21020 29645 40449 49569 63075 74658 2148 11374 21567 29908 40866 49909 63130 74818 2164 11947 21677 29994 41120 50134 63471 74965 2438 12515 22043 30742 41262 50350 64109 75164 2930 12957 22379 31185 41408 50450 64909 75713 2976 13089 22504 31379 41559 50677 65608 76558 3404 13217 22657 31642 41563 50946 66884 76653 3451 13952 22760 31790 41883 50950 67265 77072 4131 14433 22909 32010 41984 51151 67286 77173 4653 15839 23347 32327 42075 51991 67535 77209 4763 16200 23850 32562 42193 52446 68228 77245 4790 16361 23944 32761 42353 52460 68260 77465 5239 16578 23949 32863 42625 53343 68976 77608 5436 16785 24202 32997 43037 54192 69057 77700 5642 16910 24368 33077 43083 54306 69423 77703 5663 16963 24385 34829 43254 55577 70209 77794 5730 17366 25054 35075 43636 56097 70336 78664 6291 17581 25201 35271 44796 56492 70384 78960 6547 17584 25217 35593 45136 57378 71157 79041 6755 17748 25416 35724 45229 57564 71194 79173 6777 17868 25454 35834 45281 57580 71484 79454 7198 17905 25577 36101 45988 57773 72102 79955 7367 19233 26385 36320 46171 58226 72153 7690 19401 26694 36736 46211 58380 72332 7807 19486 27168 37037 46380 58471 72580 7842 20245 27556 37407 46650 58642 72634 7913 20259 27650 37444 46778 58842 72652 7933 20299 27783 37557 46808 59068 72790 1719 9864 17819 27061 36813 48416 60067 74214 2917 10183 17957 27994 37491 50235 63871 74256 2933 11100 18330 28232 38471 50375 64334 74327 2951 11562 18621 28335 39261 51598 65343 75875 3054 11633 19466 32474 39813 53610 66949 76504 4374 12560 20938 32822 40405 54281 67042 77392 5001 13948 21052 33070 41413 54896 67754 78607 6178 15416 21696 33684 43207 56293 69684 78853 6776 15998 22200 34724 43617 56516 69717 79360 6919 17245 22593 35331 43828 57373 70423 7300 17471 23616 36309 44528 57767 71940 8083 17536 24036 36435 47379 58316 72033 8124 17630 24052 36739 47472 58362 72412 Næsti útdráttur fer fram 19., 27. maí & 2. júní 2022 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 7850 19200 30626 69940 76018 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 9732 21362 38691 62123 68116 71986 15901 22522 43710 63443 68158 74890 18360 31701 60772 65973 68758 76671 19798 36011 60791 66064 70244 77162 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 4 3 1 7 2 2. útdráttur 12. maí 2022 Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, segir að sér hafi ekki hugnast samstarfssamningur sem Reykjavíkurborg gerði við Samtök fyrirtækja í ferðaþjónustu um aðgerðir til að uppræta vændi og kynlífsvinnu á hótelum. Það falli ekki að skaðaminnkunarhugsjón Pí- rata í Reykjavík. Píratar frjálslyndari „Hvað gerist hjá þeim sem eru að stunda vændi á hótelum? Færist það þá ekki bara á einhvern stað þar sem þú sérð ekki til? Þar sem er þá ekki hægt að koma til hjálpar,“ segir Dóra Björt. Málið nefnir hún sem dæmi um hvað aðskilur Pírata í borginni frá öðrum meirihlutaflokk- um og þá sérstaklega Samfylking- unni og segir hún flokkinn bæði frjálslyndari og grænni. Dóra Björt er gestur Karítasar Ríkharðsdóttur í Dagmálum. Dóra segir það skýrt í stefnu Pírata að auka þurfi þjónustu við heimilis- lausar konur og nýtt neyðarskýli þurfi fyrir konur. Píratar stefna að því að fleiri inn- viðir verði tilbúnir í byggðum sem eru í uppbyggingu en að ekki þurfi að bíða lengi eftir þeim eftir að hverfi byggist og nefnir Úlfarsárdal- inn sem dæmi. Spurð hvernig íbúalýðræði sem Pírötum verður tíðrætt um komi fram í borginni annars staðar en í Hverfinu mínu, þar sem kosið er um smávægilegar umbótatillögur, segir Dóra Björt það koma fram í vinnu- brögðum og samráðsnefndum borg- arinnar. Vill ekki spara í lýðræðinu „Í lýðræðisstefnunni erum við bú- in að móta meginmarkmið sem eru lýðræðisleg vinnubrögð og lýðræð- isleg hringrás vinnubragða sem við verðum að innleiða í öllu stjónkerf- inu, það er; að hlusta, rýna, breyta og miðla.“ Viðreisn stefnir að fækkun ráða, nefnda og sviða í stjórnsýslunni í Reykjavíkurborg. Spurð hvernig sú stefna samrýmist þessari áherslu Pí- rata um eflingu íbúalýðræðis innan ráða og nefnda segir Dóra Björt að flokkurinn sé ekkert sérstaklega upptekinn af því að fjölga nefndum og ráðum, þvert á móti hafi þeim fækkað á kjörtímabilinu. „En lýð- ræði kostar líka. Þetta er alltaf jafn- vægiskúnst og við viljum ekki spara í lýðræðinu,“ segir Dóra Björt. Stóðu með íbúaráðum Hún segir Viðreisn hafa viljað leggja niður hverfisráðin, sem í dag kallast íbúaráð, en Píratar hafi stað- ið gegn því. „Okkar styrkur innan meirihlut- ans mun endurspeglast í auknum áherslum í takt við okkar stefnu,“ segir Dóra Björt, innt eftir því hvaða kröfur flokkurinn muni gera verði aukið fylgi Pírata til þess að halda lífi í núverandi meirihlutasamstarfi. Hún segist gera sér grein fyrir því að mælingar séu ekki alltaf í sam- ræmi við lokaniðurstöðu kosninga og að sinn kjósendahópur sé að stórum hluta til ungur. Hún treystir sér ekki til að taka afstöðu til þess hvort hún muni gera tilkall til borgarstjóra- stólsins en segist þó vilja verða borg- arstjóri. Þéttingin ófrávíkjanleg krafa Hún segir þéttingarstefnu Pírata vera mál sem ekki verði hægt að gefa eftir í meirihlutasamstarfi. Hún útilokar eftir sem áður sam- starf með Sjálfstæðisflokknum. „Við höfum útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn einfaldlega vegna þess að eitt af okkar helstu baráttumálum er barátta gegn spill- ingu. Sjálstæðisflokkurinn hefur ekki sýnt okkar kjósendum að hann sé traustsins verður. Þess vegna getum við ekki séð fyrir okkur að vinna með Sjálfstæðisflokknum, það snýst ekki um einhverja einstaklinga eða hver er góð manneskja, það snýst um hvernig Sjálfstæðisflokk- urinn hefur beitt sínum völdum.“ Morgunblaðið/Ágúst Ólíver Oddviti Dóra Björt segist vilja verða borgarstjóri en óvíst sé hvort hún muni gera kröfu um það eftir kosningar. Nýtt neyðarskýli fyrir konur og áfram þétting - Dóra Björt útilokar áfram samstarf með Sjálfstæðisflokki Lokasprettur kosningabaráttunnar er hafinn, enda hefjast sveitar- stjórnarkosningar um land allt á morgun. Það er því ekki seinna vænna að gera baráttunni skil og það er umfjöllunarefni nýjasta þáttar Dagmála, streymis Morgunblaðsins á netinu. Það er að öllu jöfnu aðeins op- ið áskrifendum, en kosningaum- fjöllun Dagmála er öllum opin. Í þættinum taka umsjónarmenn Dagmála hið helsta úr kosningabar- áttunni, hringinn um landið, og hvar mestu tíðinda kann að vera að vænta. Umfjöllun í kosningabaráttunni hefur verið fyrirferðarmikil á mbl.is og á síðum Morgunblaðsins, en þó ekki síður í Dagmálum, bæði í mynd- streymi og hlaðvarpi. Dagmál Morgunblaðsins hafa gert víðreist um landið undanfarnar vikur og tekið púlsinn á frambjóðendum og kjósendum, allt frá Patreksfirði til Eskifjarðar og frá Húsavík til Vest- mannaeyja. Þau viðtöl hafa verið birt í hlaðvarpi Morgunblaðsins, bæði á mbl.is og á helstu hlaðvarpsveitum öðrum. Ekki er unnt að kvarta undan áhugaleysi á kosningunum, því Kosn- ingahlaðvarp Dagmála hefur verið með vinsælustu hlaðvörpum landsins og þættirnir hafa verið sóttir um 190 þúsund sinnum, svo við blasir að áhugi á stjórnmálum einstakra sveit- arfélaga nær langt út fyrir viðkom- andi byggðarlög. Lokaspretturinn hafinn - Kosningaferðalag Dagmála um landið á enda - Mest spenna í höfuðborginni, Hafnarfirði og Eyjum Morgunblaðið/Ágúst Óliver Dagmál Blaðamenn ræða horfurnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.