Morgunblaðið - 13.05.2022, Síða 34

Morgunblaðið - 13.05.2022, Síða 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022 Besta deild karla Keflavík – Leiknir R. ............................... 3:0 Víkingur R. – Fram.................................. 4:1 Staðan: Breiðablik 5 5 0 0 16:4 15 Valur 5 4 1 0 11:4 13 KA 5 4 1 0 8:2 13 Víkingur R. 6 3 1 2 14:11 10 Stjarnan 5 2 2 1 13:10 8 KR 5 2 1 2 7:5 7 ÍA 5 1 2 2 7:12 5 FH 5 1 1 3 7:10 4 Keflavík 6 1 1 4 10:15 4 ÍBV 5 0 2 3 6:11 2 Leiknir R. 5 0 2 3 1:8 2 Fram 5 0 2 3 6:14 2 Markahæstir: Emil Atlason, Stjörnunni............................ 6 Ísak Snær Þorvaldsson, Breiðabliki.......... 6 Nökkvi Þeyr Þórisson, KA ......................... 4 Kristall Máni Ingason, Víkingi .................. 4 Lengjudeild karla Grindavík – Þróttur V.............................. 3:0 KV – HK.................................................... 1:3 Staðan: Grindavík 2 1 1 0 4:1 4 Grótta 1 1 0 0 5:0 3 Fjölnir 1 1 0 0 3:0 3 Fylkir 1 1 0 0 3:1 3 HK 2 1 0 1 5:4 3 Selfoss 1 1 0 0 3:2 3 Þór 1 1 0 0 1:0 3 Afturelding 1 0 1 0 1:1 1 Kórdrengir 1 0 0 1 0:1 0 KV 2 0 0 2 2:6 0 Vestri 1 0 0 1 0:5 0 Þróttur V. 2 0 0 2 0:6 0 UEFA-mót U16 kvenna Leikið í Portúgal: Portúgal – Ísland..................................... 2:1 Lilja Björk Unnarsdóttir 38. Mörk Portú- gals á 36. og 41. mínútu. England Tottenham – Arsenal ............................... 3:0 Staða efstu liða: Manch. City 36 28 5 3 94:22 89 Liverpool 36 26 8 2 89:24 86 Chelsea 36 20 10 6 73:31 70 Arsenal 36 21 3 12 56:45 66 Tottenham 36 20 5 11 63:40 65 Manch. Utd 37 16 10 11 57:56 58 West Ham 36 16 7 13 57:46 55 Wolves 36 15 5 16 36:39 50 Brighton 36 11 14 11 38:42 47 Danmörk Úrslitakeppnin: Midtjylland – Bröndby............................ 2:2 - Elías Rafn Ólafsson hjá Midtjylland er frá keppni vegna meiðsla. _ Köbenhavn 62, Midtjylland 59, Silkeborg 49, AaB 45, Randers 43, Bröndby 42. Tvær umferðir eru eftir. Fallkeppnin: Vejle – AGF .............................................. 1:0 - Jón Dagur Þorsteinsson og Mikael And- erson léku allan leikinn með AGF. OB – Viborg.............................................. 1:1 - Aron Elís Þrándarson lék ekki með OB vegna meiðsla. _ Viborg 38, OB 37, Nordsjælland 32, AGF 29, Vejle 26, SönderjyskE 22. Tvær um- ferðir eru eftir og SönderjyskE er fallið en AGF og Vejle slást um að halda sér uppi. B-deild, úrslitakeppnin: Lyngby – Hvidovre.................................. 1:0 - Sævar Atli Magnússon kom inn á hjá Lyngby á 76. mínútu en Frederik Schram var varamarkvörður. Freyr Alexandersson þjálfar liðið. _ Lyngby 56, Horsens 56, Helsingör 54, Hvidovre 50, Fredericia 47, Nyköbing 31. Þetta var fyrsti leikur í 29. umferð af 32. Svíþjóð Örebro – Häcken ..................................... 0:1 - Berglind Rós Ágústsdóttir kom inn á hjá Örebro á 82. mínútu. - Agla María Albertsdóttir kom inn á hjá Häcken á 80. mínútu en Diljá Ýr Zomers var ekki í hópnum. Linköping – Piteå .................................... 2:0 - Hlín Eiríksdóttir lék fyrstu 83 mínúturn- ar með Piteå. Staða efstu liða: Häcken 8 5 3 0 16:5 18 Rosengård 7 5 2 0 19:7 17 Linköping 8 5 1 2 13:6 16 Eskilstuna 8 5 1 2 12:7 16 Piteå 8 4 1 3 13:9 13 Vittsjö 8 3 4 1 9:8 13 Noregur Tromsö – Vålerenga ............................... 1:0 - Brynjar Ingi Bjarnason og Viðar Örn Kjartansson léku allan leikinn með Våle- renga. Viking – Strömsgodset ........................... 0:0 - Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Viking og Samúel Kári Friðjónsson kom inn á eftir 58 mínútur. - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset. Bandaríkin Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: New England Revolution – Cincinnati . 5:1 - Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn með New England. Houston Dynamo – San Antonio............ 1:0 - Þorleifur Úlfarsson kom inn á hjá Hou- ston á 83. mínútu. 50$99(/:+0$ Tottenham galopnaði baráttuna um Meistaradeildarsætið, fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu, með sannfærandi 3:0 sigri á erkifjendunum og grönnunum í Norður-London í gærkvöld á Tott- enham-leikvanginum. Aðeins eitt stig skilur nú liðin að, Arsenal í hag, þegar tvær umferðir eru eftir og markatala Tottenham er mun betri. Harry Kane skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og Arsenal missti þá Rob Holding af velli með rautt spjald. Son Heung-Min skoraði þriðja markið í byrjun síðari hálfleiks. Tottenham vann grannaslaginn AFP/Paul Ellis Spurs Son Heung-Min og Harry Kane sáu um mörkin þrjú. HK og Grindavík unnu fyrstu leiki sína í 1. deild karla í vor í gærkvöld þegar HK lagði KV 3:1 í Vestur- bænum og Grindvíkingar unnu 3:0 heimasigur á Þrótti úr Vogum. Ásgeir Marteinsson og Hassan Jalloh skoruðu fyrir HK á fyrstu tíu mínútunum á KR-vellinum. Í upp- bótartíma skoraði svo Patryk Hry- niewicki fyrir KV og Bjarni Páll Runólfsson að vörmu spori fyrir HK. Dagur Ingi Hammer skoraði tvö marka Grindvíkinga gegn Þrótti og Kairo Edwards-John eitt. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Skoraði Ásgeir Marteinsson kom HK yfir í Vesturbænum. Fyrstu sigrar HK og Grindavíkur KEFLAVÍK – LEIKNIR R. 3:0 1:0 Adam Ægir Pálsson 5. 2:0 Patrik Johannessen 52. 3:0 Helgi Þór Jónsson 81. M Adam Ægir Pálsson (Keflavík) Patrik Johannesen (Keflavík) Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík) Nacho Heras (Keflavík) Ivan Kaliuzhnyi (Keflavík) Maciej Makuszewski (Leikni) Mikkel Jakobssen (Leikni) Emil Berger (Leikni) Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 9. Áhorfendur: 448. VÍKINGUR R. – FRAM 4:1 1:0 Helgi Guðjónsson 10. 2:0 Erlingur Agnarsson 21. 3:0 Erlingur Agnarsson 26. 3:1 Hlynur Atli Magnússon 61. 4:1 Sjálfsmark 67. MM Erlingur Agnarsson (Víkingi) M Oliver Ekroth (Víkingi) Helgi Guðjónsson (Víkingi) Júlíus Magnússon (Víkingi) Kristall Máni Ingason (Víkingi) Birnir Snær Ingason (Víkingi) Hlynur Atli Magnússon (Fram) Fred Saraiva (Fram) Tiago Fernandes (Fram) Dómari: Vilhjálmur A. Þórarins. – 7. Áhorfendur: Um 1.000. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. BESTA DEILDIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslands- og bikarmeistarar Víkings skoruðu fjögur mörk í þriðja heima- leiknum í röð þegar þeir tóku á móti nýliðum Fram í gærkvöld í fyrstu viðureign grannliðanna í deilda- keppninni í átta ár. Einn þessara fjögurra marka leikja tapaðist reyndar en óhætt er að segja að „heimavöllur hamingj- unnar“ hafi staðið undir nafni en í þessum þremur síðustu leikjum á Víkingsvelli hafa verið skoruð 19 mörk. Meistararnir eru ansi sveiflu- kenndir enn sem komið er en þeim hefur ekki tekist að skora í þeim tveimur leikjum sem þeir hafa spilað til þessa á útivelli. Framarar eru enn án sigurs og hafa fengið á sig fjórtán mörk í fyrstu fimm leikjunum. Óhætt er að segja að leikur þeirra við Leikni í Breiðholtinu næsta mánudagskvöld geti skipt sköpum fyrir framhaldið hjá Safamýrarliðinu. Eftir þann leik mætir Fram þremur efstu liðum deildarinnar eins og staðan er í dag. _ Helgi Guðjónsson skoraði fyrst á 10. mínútu gegn sínu gamla félagi og eftir tvö mörk Erlings Agnars- sonar var staðan orðin 3:0 að 26 mín- útum liðnum. Engin spenna í leikn- um eftir það. _ Hlynur Atli Magnússon kom Fram á blað í seinni hálfleiknum með sínu fyrsta marki í deildinni frá því hann skoraði fyrir Þór gegn Fylki árið 2014. Hlynur hefur frá þeim tíma leikið í 1. deild með Fram. _ Pablo Punyed lék síðasta hálf- tímann með Víkingum, sem hafa saknað hans sárlega en hann missti af fimm fyrstu leikjunum vegna leik- banns og meiðsla. Lykilsigur Keflvíkinga Keflvíkingar unnu langþráðan sig- ur þegar þeir lögðu Leikni 3:0 í sann- kölluðum botnslag. Eins og deildin er að þróast munu innbyrðis viður- eignir Keflavíkur, Leiknis, Fram og ÍBV hafa gríðarlegt vægi og þetta var lykilsigur fyrir Suðurnesjaliðið. Leiknismenn geta hreinlega ekki skorað en áttu þó tvö sláarskot. Þeir hafa aðeins gert eitt mark í fimm leikjum, og það var sjálfsmark. Frá 19. júlí í fyrra hefur Leiknis- liðið skorað samtals fjögur mörk í fjórtán leikjum í deildinni og enginn núverandi leikmanna þess hefur skorað síðan Hjalti Sigurðsson skor- aði hjá Stjörnunni umrætt júlíkvöld. Um það leyti hvarf Sævar Atli Magnússon til Danmerkur, eftir að hafa skorað 10 af 15 mörkum Leiknis fram að því, og frá þeim tíma er sama og ekkert að frétta af marka- skorun Breiðholtsliðsins. Leiknir tekur á móti Fram á mánudag og mætir eftir það KR, Breiðabliki og FH. _ Adam Ægir Pálsson skoraði strax á 5. mínútu, sitt fyrsta mark fyrir Keflavík í efstu deild, en hann hafði áður skorað eitt fyrir Víking. _ Leiknismenn misstu fyrirliðann Bjarka Aðalsteinsson meiddan af velli á 7. mínútu. Hann og Viktor Freyr Sigurðsson markvörður rák- ust saman þegar Keflvíkingar skor- uðu fyrsta markið. _ Patrik Johannesen skoraði sitt þriðja mark á tímabilinu þegar hann kom Keflavík í 2:0. Fengur í Fær- eyingnum fyrir Keflvíkinga. Markaregnið heldur áfram á Víkingsvelli Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason Fossvogur Erlingur Agnarsson skoraði annað og þriðja mark Víkings með stuttu millibili í fyrri hálfleiknum og kom liðinu í 3:0. - 19 mörk í síðustu þremur heima- leikjum Víkings - Leiknir skorar ekki _ Mike Jackson, knattspyrnustjóri Burnley, og Cristano Ronaldo, fram- herji Manchester United, voru kjörnir stjóri og leikmaður aprílmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Jackson tók við liði Burnley af Sean Dyche til bráðabirgða og varð fyrsti knatt- spyrnustjórinn í sögu félagsins til að fara taplaus í gegnum fjóra fyrstu leiki sína í efstu deild. Ronaldo var kjörinn leikmaður mánaðarins í ann- að sinn á tímabilinu og í sjötta sinn alls á ferlinum en hann var líka kjör- inn í september. Ronaldo skoraði fimm mörk fyrir United í apríl, þar af þrennu í 3:2 sigri liðsins á Nor- wich. _ Axel Bóasson, kylfingur úr GK, tryggði sér í gær sigur á Rewell Elise- farm-mótinu í Höör í Svíþjóð, sem er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni, þegar hann lék þriðja hringinn á 73 höggum. Það var lakasti hringur Ax- els sem hafði leikið tvo fyrstu hring- ina á 68 höggum en hann endaði eftir sem áður á sjö höggum undir pari og varð tveimur höggum á undan Ni- colai Tinning frá Danmörku sem hafnaði í öðru sæti. Bjarki Pétursson og Aron Snær Júlíusson, sem báðir keppa fyrir GKG, urðu jafnir ásamt þremur öðrum í 19.-23. sæti en þeir léku samtals á pari vallarins. _ Guðrún Brá Björgvinsdóttir, at- vinnukylfingur úr Keili, lék á tveimur höggum yfir pari á fyrsta hring á móti í Bangkok í Taílandi í Evrópumótaröð kvenna í fyrrinótt. Guðrún Brá lék hringinn á 74 höggum og var í 46.- 50. sæti að honum loknum. Hún hóf síðan annan hringinn í morgun klukk- an hálfþrjú að íslenskum tíma. _ Kvennalið KR í knattspyrnu hefur fengið í sínar raðir sænska markvörð- inn Corneliu Sundelius. Hún er 23 ára gömul og kemur frá sænska B-deildarliðinu Norrköping. Þá er Susan Phonsong- kham, ástralskur 21 árs miðjumað- ur, komin til KR frá Perth Glory en hún á leiki að baki með yngri lands- liðum Ástrala. _ Auður Sveinbjörnsdóttir Schev- ing, sem hefur varið mark kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu undanfarin tvö ár, í láni frá Val, var í fyrrakvöld lánuð þriðja árið í röð frá Hlíðarendaliðinu. Hún er komin til liðs við Aftureldingu. Auður er tvítug og hefur verið í A- landsliðshópnum en hún á að baki 21 leik með yngri landsliðum Íslands. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.