Morgunblaðið - 13.05.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
779.000kr.
25%
afsláttur
BREKKA34 - 9 fm
Tilboðsverð
439.000kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
539.000kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einn dag
TILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Til stendur að fjölga lögregluþjónum
við embættin úti á landi í því skyni að
efla þau og styrkja viðbragð, skv.
ákvörðun Jóns Gunnarssonar dóms-
málaráðherra. Þetta gildir um emb-
ættin á Vesturlandi, Vestfjörðum,
Norðurlandi vestra, Norðurlandi
eystra, Austurlandi, Suðurlandi og
Suðurnesjum. Á landsvísu verður
gerð uppstokkun – og til lands-
byggðarembættanna fara til dæmis
ýmis miðlæg verkefni sem sinnt er á
landsvísu. Á móti getur þá myndast
svigrúm til að sinna betur hinni al-
mennu löggæslu úti í byggðunum,
það er með því að mannskapur sé
hreyfanlegur þvert á landamæri um-
dæma.
Seint á síðasta ári samþykkti fjár-
laganefnd Alþingis að úr ríkissjóði
yrðu á þessu ári veittar 120 milljónir
kr. til að efla lögregluna úti á landi.
Ætla má að slíkt dugi þá til að greiða
laun um það bil 10 nýrra lögreglu-
manna. „Að þessi áfangi náist skiptir
lögregluna afar miklu máli,“ segir
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður
Framsóknarflokks, fulltrúi í fjár-
laganefnd og áður yfirlögregluþjónn
á Norðurlandi vestra. Samkvæmt
þeim línum sem dómsmálaráðherra
hefur lagt er nú ætlunin að efla emb-
ætti lögreglustjóranna á Suðurnesj-
um og Norðurlandi eystra til að
sinna símaafritunum. Stafræn gögn
hafa oft mikla þýðingu við sakamála-
rannsóknir og hjá fyrrgreindum
embættum er til staðar tæknibúnað-
ur og vel þjálfað starfsfólk til að
sinna slíkum verkefnum. Upplýsing-
ar um frekari tilfærslu verkefna til
og milli embætta eiga að liggja fyrir
á næstu vikum.
Samvinna embætta algeng
„Efling lögregluliðanna úti á landi
er fagnaðarefni. Hvaða fjármuna er
að vænta og hvað hægt er að fjölga
mannskap mikið liggur þó ekki fyrir.
Að því leyti erum við enn svolítið í
lausu lofti,“ segir Oddur Árnason,
yfirlögregluþjónn á Suðurlandi.
„Samvinna milli embætta er þó vel
þekkt. Við á Suðurlandi leitum til
dæmis oft til tæknideildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu þegar
upp koma flókin rannsóknamál. Hjá
embættinu hér á Suðurlandi er
sömuleiðis aðstaða til að rannsaka
bíla eftir alvarleg umferðarslys.
Svona hefur hvert embætti fyrir sig
ákveðinn styrk og sérstöðu sem get-
ur nýst heildinni betur en nú er með
því að gera skipulagsbreytingar.“
Gunnar Örn Jónsson, lögreglu-
stjóri á Vesturlandi, segir ekki liggja
fyrir hvaða viðbót í fjármunum og
mannskap embættið fái. Öll aukning
sé þó kærkomin og þakkarverð. Fyr-
ir liggi að styrkja þurfi hina almennu
löggæslu á Vesturlandi, svo sem á
dreifbýlum og fámennum svæðum,
eins og á norðanverðu Snæfellsnesi
og í Dölum.
Lögreglan efld en útfærslan óljós
- Landsbyggðarembættin verði sterkari - 120 milljónir frá fjárlaganefnd - Mannskapur sé hreyfan-
legur milli svæða - Hvert embætti hefur sérstöðu og styrk - Dreifbýlu svæðin eru í brennidepli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Floti Lögreglubílar við stöðina á Selfossi. Varðsvæðið er mjög víðfeðmt.
Oddur
Árnason
Gunnar Örn
Jónsson
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Segja má að yfirstandandi Euro-
vision-ævintýri Íslands hafi í raun
og veru byrjað á Morgunblaðinu.
Eða svona næstum því, að sögn
Ragnars Birkis Björnssonar, eig-
inmanns Sigrúnar Einarsdóttur,
móður söngkonunnar Lovísu El-
ísabetar Sigrúnardóttur sem er
betur þekkt sem Lay Low. Sigrún
og Ragnar eru stödd í Tórínó um
þessar mundir enda er Lovísa
þeirra höfundur lagsins Með
hækkandi sól sem er framlag Ís-
lands í Eurovision-söngvakeppn-
inni í ár.
Blaðamaður rakst óvænt á hjón-
in í 28 gráðunum í Eurovision-
þorpinu í gær og þegar hann sagð-
ist vera á vegum Morgunblaðsins
sagði Ragnar: „Þetta byrjaði allt
saman á Mogganum.“ Þau Ragnar
og Sigrún söfnuðu nefnilega fyrir
fyrsta píanóinu sem Lay Low fékk
með því að bera út Morgunblaðið.
Á sama tíma vann Sigrún í bók-
haldinu hjá Morgunblaðinu.
„Hún lærði fyrst á píanó, og svo
auðvitað gítar og bassa og allt það.
En þetta byrjaði á píanóinu sem
við keyptum fyrir peningana sem
við fengum fyrir útburð á Morgun-
blaðinu,“ segja hjónin.
Öll fjölskyldan skellti sér út
Sigrún og Ragnar ákváðu að
drífa sig út til styðja við bakið á
íslenska hópnum og svo gott sem
öll fjölskyldan og tengdafjölskylda
Lay Low ákvað að drífa sig út.
Þau gista öll saman í íbúð í borg-
inni.
„Við vorum ekkert stressuð.
Bara að njóta í botn,“ segir Sigrún
um þriðjudagskvöldið þegar Systur
komust áfram upp úr undankeppn-
inni. Ragnar segir árangurinn ekk-
ert hafa komið þeim á óvart.
Sigrún og Ragnar voru í höllinni
á þriðjudag og verða á laugardag.
Þau eru sammála um að upplifunin
að vera í höllinni sé algerlega
mögnuð og að lagið hreyfi alltaf
við þeim.
„Bara að vera á staðnum þegar
lagið er sungið í gegn. Það er eitt-
hvað við þetta lag. Alltaf þegar ég
heyri það þá brest ég í grát, líka
þegar ég heyrði það fyrst. Það er
eitthvað sérstakt sem gerist,“ seg-
ir Sigrún.
„Við erum svo róleg, en á sama
tíma erum við með mjög góða til-
finningu fyrir þessu,“ segir Sigrún,
spurð hvernig þeim líði fyrir laug-
ardaginn. Hún bendir á að Systur
hafi unnið mikið á síðustu vikur og
að þær hafi skotist upp í veðbönk-
um. Þau hafi því ekki miklar
áhyggjur af þessu.
Úrslitakvöld Eurovision-
söngvakeppninnar fer fram annað
kvöld og hefst útsending klukkan
19.
Morgunblaðið/Sonja Sif
Stuðningur Þau Ragnar og Sigrún eru stolt af íslenska hópnum í Eurovision og verða í höllinni annað kvöld.
„Þetta byrjaði allt
saman á Mogganum“
- Foreldrar lagahöfundarins Lay Low verða í höllinni
Þessi lönd komust áfram
» Nú er ljóst hvaða þjóðir
keppa til úrslita í Eurovision í
Tórínó annað kvöld ásamt Ís-
lendingum og fleiri þjóðum.
» Þau lönd sem komust áfram
á seinna undanúrslitakvöldinu í
gær voru Belgía, Tékkland,
Aserbaídsjan, Pólland, Finn-
land, Eistland, Ástralía, Sví-
þjóð, Rúmenía og Serbía.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Blýmengun er víða vandamál í Evr-
ópu og hún hefur sums staðar haft
áhrif á andfugla þar. Reglugerðinni
er ætlað að koma í
veg fyrir þessa
mengun af blý-
höglum með því
að banna þau í
haglaskotum,“
segir Guðlaugur
Þór Þórðarson
umhverfisráð-
herra.
Eins og kom
fram í Morgun-
blaðinu í gær hefur verið sett reglu-
gerð sem mun banna notkun blý-
hagla við votlendi á EES-svæðinu frá
15. febrúar 2023. Reglugerðin var
gefin út 15. nóvember 2021 af fyrr-
verandi umhverfisráðherra.
„Það virðist hafa skort samráð við
hagaðila þegar reglugerðin var sett
og þeir ekki upplýstir, sem er ekki
gott,“ segir Guðlaugur Þór. Hann
bendir á að ekki sé hægt að breyta
reglugerðum Evrópusambandsins
þegar þær eru orðnar hluti af EES-
samningnum. Hins vegar er mögu-
legt að hafa áhrif á setningu Evrópu-
reglna á fyrri stigum. Samráð hafi
hins vegar leitt í ljós þau áhrif sem
reglugerðin hefur og því sé nauðsyn-
legt að haft verði samráð við hagaðila
um frekari skref í málinu, þar á með-
al um hvernig eftirliti verður háttað.
Guðlaugur Þór segir að skoða
verði þessi mál. Líta þurfi til ná-
grannalandanna og skoða hvernig
þau hafa brugðist við og munu fram-
fylgja þessum hertu reglum. Út-
færslur geta verið mismunandi eftir
löndum enda aðstæður ekki alls stað-
ar eins.
„Það þarf einnig að vera ljóst
hvernig votlendi verður skilgreint í
skilningi þessarar reglugerðar, því
þar er verið að afmarka það svæði
sem reglugerðin tekur til. Auk þess
þarf að vera ljóst hvernig eftirliti
verður háttað. Það munum við, ráðu-
neytið og Umhverfisstofnun, gera,“
segir Guðlaugur Þór.
Blýmengun er
víða vandamál
- Skilgreining á votlendi skiptir máli
Guðlaugur Þór
Þórðarson