Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022
Hreint loft –betri heilsa
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Láttu þér og þínum
líða vel - innandyra
Loftmengun er hættuleg heilsu og
lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki
eru góð viðmyglugróum, bakteríum,
frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
HFD323E Air Genius 5.
Hægt að þvo síuna.
Verð kr. 39.420
HPA830 Round Air
Purifier. Mjög hljóðlát.
Verð kr. 29.960
S. 555 3100 · donna.is
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Landsmóti hestamanna lauk í gær
með opnum húsum á rækt-
unarbúum. Síðustu Landsmótssig-
urvegararnir fyrir árið 2022 voru
krýndir á laugardag, en þá fóru
fram úrslit í gæðingakeppnum.
Blautt var og fánar blöktu vel í
vindinum á laugardaginn, en eftir
því sem leið á daginn rættist aðeins
úr veðrinu.
Heimaræktaður sigur
Hin tólf ára gamla Kristín Eir
Hauksdóttir og hesturinn hennar
Þytur frá Skáney eru Landsmóts-
sigurvegarar í barnaflokki árið
2022, með 9 í einkunn. Kristín og
Þytur gerðu gott mót en þau héldu
efsta sætinu í gegnum forkeppni,
milliriðil og innsigluðu svo yf-
irburði sína í úrslitum. Þytur er úr
ræktun fjölskyldunnar. Spurð
hvort hún hafi þá fylgst með Þyt frá
því að hann var folald, bendir Krist-
ín á að því sé í raun öfugt farið.
„Hann er svolítið eldri en ég, en
hann er sautján og ég tólf. Mamma
var ólétt að mér þegar hún tamdi
hann.“
Stóð við stóru orðin
Í unglingaflokki stóð Sigurður
Steingrímsson uppi sem sigurveg-
ari, á merinni Hátíð frá Forsæti II.
Sigurður og Hátíð fóru sannkallaða
Krýsuvíkurleið að titlinum, en í for-
keppni raðaði parið sér í áttunda
sæti. Eftir milliriðil féllu þau niður í
það tíunda og þurftu því að sigra B-
úrslitin til þess að öðlast þátt-
tökurétt í A-úrslitum, þar sem þau
báru svo sigur úr býtum með ein-
kunnina 8,97. Hátíð er fimm folalda
móðir en það var ekki að sjá á sýn-
ingunni. Úlfar Albertsson er eig-
andi Hátíðar. „Ég hringi í Úlfar í
vetur, þegar ég vissi að hún væri
geld, og ég spurði hvort það væri
ekki kominn tími til þess að vinna
Landsmót. Hann gaf mér tækifæri
til að standa við stóru orðin og ég
gerði það.“
Benedikt og Biskup bættu í
Landsmótssigurvegarar í ung-
mennaflokki voru þeir Benedikt
Ólafsson og Biskup frá Ólafshaga,
sem er jafnframt úr ræktun fjöl-
skyldunnar. Þeir sigruðu unglinga-
flokk á Landsmóti fyrir fjórum ár-
um og vörðu nú titilinn í
ungmennaflokki. „Þetta er frábær
karakter, alger gæðingur. Það er
ekki hægt að biðja um meira í
hesti,“ segir Benedikt um Biskup.
Liturinn á Biskup vekur athygli, en
hann jarpvindótt glófextur. Er
hann eini stóðhesturinn í heiminum
sem ber þennan einstaka lit, af
þeim sem sýndir hafa verið.
Siggi Sig tók A-flokkinn
Veitt voru verðlaun fyrir hæst
dæmdu kynbótahrossin. Sjóður frá
Kirkjubæ hlaut Sleipnisbikarinn,
sem er veittur þeim stóðhesti sem
getið hefur af sér flest hátt dæmdu
afkvæmin á undanförnum árum.
Kolskeggur frá Kjarnarholti og
knapi hans Sigurður Sigurðsson
eru Landsmótssigurvegarar í A-
flokki gæðinga. Þeir höfðu komist í
B-úrslit en unnið þau og hífðu sig
svo upp um átta sæti með glæsi-
legri sýningu og sóttu þannig bik-
arinn.
Árni Björn setti svip sinn á mótið
Í B-flokki meistara stóðu Árni
Björn Pálsson og Ljósvaki frá
Valstrýtu uppi sem sigurvegarar
með einkunnina 9,2 og varð það
annar titillinn sem Árni Björn tók
með sér heim af þessu Landsmóti,
en hann sigraði einnig töltið á hest-
inum Ljúf frá Torfunesi. Á Lands-
móti sýndi Árni Björn hvorki meira
né minna en tuttugu og sjö kyn-
bótahross milli keppnisgreina.
„Þegar maður er að þjálfa og sýna
svona marga hesta þá kemst þetta
upp í rútínu og verður eins og hver
önnur vinna,“ segir Árni Björn í
samtali við Morgunblaðið. Hann
kveðst aldrei finna fyrir stressi,
enda búinn að sitja hest frá barns-
aldri. „Þetta er í raun það eina sem
ég kann.“
Kraftur í Konráð og Kjark
Á laugardag fór einnig fram
keppni í 100 metra flugskeiði. Kon-
ráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá
Árbæjarhjáleigu áttu þar besta
tímann, en þeir luku við sprettinn á
litlum 7,44 sekúndum. Þeir voru
einnig Landsmótssigurvegarar í
250 metra skeiði.
Laglegu Landsmóti hestamanna lokið
- Fánar blöktu vel í vindinum á laugardag - Krýsuvíkurleið að titlinum - Sigurður Sigurðsson sigr-
aði fyrst B og svo A-úrslit - Árni Björn tók heim tvo titla og sýndi 27 kynbótahross á Landsmótinu
Morgunblaðið/Hákon
Sýning Glæsilegir gæðingarnir heilluðu gesti mótsins og spurðu þar ekki um aldur en þessi ungi maður var agndofa og vildi helst taka þátt í sýningunni.
Ljósmynd/Óla Myndir
Hátíð Gleði var allsráðandi á Landsmóti hestamanna frá morgni til kvölds.
Sigurbjörn Bárðarson, þjálfari íslenska landsliðsins í
hestaíþróttum, fylgdist vel með íþróttagreinunum á
Landsmóti hestamanna þetta árið, en það kemur í hans
hlut að velja þá sem keppa fyrir Íslands hönd á kom-
andi Norðurlandamóti í haust og svo á heimsmeist-
aramótinu næsta sumar. „Mér líst mjög vel á þetta,
hópurinn er feiknasterkur og verkefnin fram undan
eru spennandi.“ Hann bendir á að undirbúningur fyrir
heimsmeistaramótið hafi í raun byrjað í fyrra, og
standi í hámarki núna. „Það verður gaman að sjá hvað
springur út í sumar og þá getur maður áttað sig á því
hverjir séu líklegir til að gera góða hluti.“
Heimsmeistaramót átti að fara fram í fyrra en því
var aflýst og þá voru margir hestar seldir út. „Við hefð-
um að mínu mati verið með eitt sterkasta lið sem völ
væri á, en þau hross voru meira og minna seld.“ Sig-
urbirni leist ekkert sérstaklega á blikuna í upphafi
þegar knaparnir þurftu að þjálfa upp ný hross til
keppni. „Það er samt eðlilegt, hlutirnir þurfa tíma til
að fæðast.“ Eftir þetta Landsmót telur hann ljóst að
þessi hross hafi tekið stórstígum framförum og séu far-
in að líta afskaplega vel út. Þá bendir hann á að liðið sé
að yngjast upp. „Það verða alltaf einhver kynslóða-
skipti þó stöku snillingar haldi sér gangandi. Maður
þarf að vera á tánum í kringum yngra fólkið, þar er
framtíðin og því alltaf efst á blaði hjá manni að fylgjast
með þeim.“
Á tánum í kringum yngra fólkið
- Undirbúningur hafinn
fyrir heimsmeistaramótið
Ljósmynd/Óla myndir
Landslið Það kemur í hlut Sigurbjörns að velja í lið.