Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Förum eftir öllum
sóttvarnartilmælum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég læt hurðina í dyrunum að skrifstofu minni
alltaf standa opna. Þannig hefur þetta alltaf
verið hér,“ segir Þór Sigurgeirsson nýr bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi. „Að fólk geti leitað
hindrunarlítið til stjórnanda sveitarfélagsins
skiptir miklu, svo margir þurfa til okkar að
leita eftir ráðleggingum, fá svör við spurn-
ingum og úrlausn sinna mála. Mér hentar vel
að vera í opnu starfsumhverfi og finnst gaman
að vera í samskiptum við alls konar fólk. Mikil-
vægt er líka fólk skynji sig alltaf velkomið á
skrifstofuna. Mín reynsla er sú að lausnir á
ótrúlega mörgu megi finna með spjalli, enda
nái fólk saman og mætist á miðri leið.“
Þátttaka í stjórnmálum kom af sjálfu sér
Í kosningunum í maí sl. fékk Sjálfstæðis-
flokkurinn á Seltjarnarnesi 50,1% greiddra at-
kvæða og fjóra af sjö bæjarfulltrúum. Þór er
oddviti flokksins á Nesinu og í því hlutverki og
sem bæjarstjóri fetar hann í fótspor föður síns,
Sigurgeirs heitins Sigurðssonar, sem þessum
embættum gegndi í áratugi. Þór segist sem
sonur bæjarstjórans strax sem barn og ung-
lingur hafa farið að fylgjast vel með bæj-
armálum og taka afstöðu. Þátttaka sín í stjórn-
málum hafi að einhverju leyti komið af sjálfu
sér.
„Og nú erum við komin í djúpu laugina og
mörg verkefni fram undan,“ segir Þór. Sveit-
arstjórnarmenn þurfa til dæmis nú að taka af-
stöðu til hækkunar fasteignamats sem kynntar
voru nýlega. Þar kom fram 9,3% hækkun milli
ára í verðmati eigna á Seltjarnarnesi, en þær í
bæ hefur álagningarstuðull verið 0,175%.
„Það verður pólitísk ákvörðun að lækka
þetta hlutfall til að auka ekki álögur á húseig-
endur hér í bænum. Hér á Seltjarnarnesi hefur
alltaf verið áherslumál að hafa skatta sem
lægsta og frá því verður ekkert vikið nú. Út-
svarið fer aftur í 13,7%. Eðlilegt er að fast-
eignagjöldin hækki einungis í takt við verðlag,
þá um 5-6% milli ára, en meira má þetta helst
ekki vera. Til slíks er líka alveg svigrúm, því
rekstur bæjarins stendur vel. Veltufé frá
rekstri í ár verður líklega um 420 milljónir
króna; það eru fjármunir sem nýtast til ýmissa
framkvæmda og nauðsynlegra verkefna.“
Fullsetinn bær með Gróttubyggð
Yst á Seltjarnarnesi eru nú að hefjast
framkvæmdir við svonefnda Gróttubyggð, þar
sem byggingar í gömlu iðnaðarhverfi voru
brotnar niður og rýmt fyrir íbúðum. Þar hefur
verið skipulagt hverfi fjölbýlis-, rað- og ein-
býlishúsa fyrir alls um 480 íbúa. Svæði þetta
gæti orðið fullbyggt í lok nýhafins kjörtímabils
og þá gætu íbúarnir orðið um 5.200. Raunar
hefur lengi verið litið svo á að á fullbyggðu Sel-
tjarnarnesi yrði íbúatalan sú en í dag eru Sel-
tirningar um 4.800.
„Gróttubyggðin er áhugavert svæði og í
fjölbreyttu skipulagi er horft til þess að mæta
fólki með ólíkar þarfir. Því verða íbúðirnar
þarna af fjölbreyttum stærðum. JÁ-verk er
þegar komið með byggingaleyfi fyrir þremur
fyrstu fjölbýlishúsunum. Þéttingarreitir hér á
Seltjarnarnesi eru reyndar lítið eitt fleiri, en
almennt sagt er svigrúmið til frekari uppbygg-
ingar ekki mikið. Hins vegar er mjög ánægju-
legt að eldri hverfin hér í bænum eru að end-
urnýjast,“ segir Þór.
„Í vor fór ég víða um bæinn og sá að í
gömlu húsin komið ungt barnafólk. Af því leið-
ir að nú eru nánast öll leikskólapláss hér á Sel-
tjarnarnesi fullsetin. Þau eru í dag um 230 og
nú höfum við tekið ákvörðun um að byggja
meira á leikskólasvæðinu sem hér er fyrir, það
er á horni Nesvegs og Suðurstrandar. Þetta
var hitamál fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í
vor, en nú liggur ákvörðun fyrir. Þarna verður
bætt við plássum fyrir um 150 til 180 börn. Við
ætlum að taka nýjan leikskóla í notkun á haust-
mánuðum 2024. Í raun er stærri leikskóli hér
hið eina sem vantar til að geta tekið á móti
fleiri íbúum Flestir aðrir innviðir eru til staðar;
grunnskóli, íþróttaaðstaða og annað slíkt.“
Til að komast út á Seltjarnarnesið þarf að
aka þvert í gegnum Vesturbæinn í Reykjavík.
Þá fara flestir um Hringbraut og til að draga
úr slysahættu gangandi vegfarenda hefur há-
markaðshraði þar verið lækkaður niður í 40
km/klst. „Mjög hægir á umferð vegna þessa,“
segir Þór, sem telur að taka mætti á aðstæðum
með byggingu göngubrúa yfir Hringbrautina
eða grafa undirgöng svo gangandi fólk komist
þarna leiðar sinna með öruggum hætti. Þetta
myndi auk þess liðka mikið fyrir akandi um-
ferð.
„Áhersla þeirra sem nú stjórna í Reykja-
vík hefur annars alls ekki verið í þágu einka-
bílsins. Ég vona samt að í borginni verið hlust-
að á vini sína hér í vestri, því það er okkur
Seltirningum afar mikilvægt að hingað og héð-
an sé á öllum tímum greið leið.“
Í þjónustustarfi
Þór tók við starfi bæjarstjóra snemma í
júní og segir að fyrstu vikurnar hafi að tals-
verðu leyti farið í að setja sig inn starfið og
verkefnin sem því fylgja.
„Ég vil að bærinn verði áfram eftirsóknar-
verður staður til búsetu, þá meðal annars í
krafti góðrar þjónustu sem við veitum hér með
lægri tilkostnaði en mörg önnur sveitarfélög
gera. Starfsfólk bæjarins er þjónustulundað,
þetta er góður hópur sem ég er stoltur af að fá
að leiða. Bæjarstjórastarfið krefst mikils af
þeim sem því gegnir. Ég fer því sjaldnast frá
lengi í einu, er í raun alltaf í vinnunni og tek
alltaf símann. Ég er í þjónustustarfi og vil veita
toppþjónustu. Ég veit ekki með sumarfrí þetta
sumarið enda ný byrjaður hér. Býst við að fjöl-
skyldan taki nú verðskuldað frí en á von á því
að ég standi að mestu vaktina hér. Mögulega
lengi ég helgarnar með einstaka föstudagsfríi
ef þannig stendur á. Fer þá að stússast eitthvað
í sumarbústaðnum okkar í Kjós,“ segir Þór Sig-
urgeirsson að síðustu.
Uppbygging á Seltjarnarnesi og bærinn endurnýjast, segir Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Seltirningur Alltaf áherslumál hér að hafa skatta sem lægsta og frá því verður ekkert vikið nú,
segir Þór. Fasteignamat á Nesinu hækkaði sem bærinn mun svara með lægra álagningarhlutfalli.
Ungt barnafólk í gömlu húsunum
- Þór Sigurgeirsson er 55 ára, fæddur árið
1967 og hefur búið á Seltjarnarnesi alla sína
tíð. Þar var hann bæjarfulltrúi 2006 til 2010.
Kona Þórs er María Björk Óskarsdóttir sviðs-
stjóri hjá Seltjarnarnesbæ og eiga þau fjögur
börn, 12 til 24 ára.
- Þór starfaði starfaði lengst af við sölu- og
þjónustustörf í vátryggingum. Frá 2018 og
fram á þetta ár starfaði Þór hjá Rými hf. við
ýmis söluverkefni og öflun viðskiptatæki-
færa. Er nú kominn aftur í bæjarmálin á Sel-
tjarnarnesi, er oddviti Sjálfstæðisflokksins
þar í bæ og nýverið ráðinn bæjarstjóri til
næstu fjögurra ára.
Hver er hann?
Steinþór Stefánsson
steinthors@mbl.is
Mikið álag er á fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað um þessar mund-
ir. Guðjón Hauksson, forstjóri Heil-
brigðisstofnunar Austurlands, segir
sjúkradeildina yfirleitt vera fulla.
„Það er búið að vera undanfarið
töluvert álag á sjúkradeildinni á
Neskaupstað. Margir inniliggjandi
og deildin yfirleitt nánast full,“ segir
hann í samtali við mbl.is.
Á deildinni liggja fimm inni með
Covid-19. „Það eru alltaf einhverjir
inniliggjandi sökum Covid. Eins og
staðan er núna þá eru þeir fimm
samtals.“
Mannekla á sjúkrahúsinu
Á föstudaginn greindi mbl.is frá
því að gripið hefði verið til þess ör-
þrifaráðs af hálfu sjúkrahússins á
Akureyri að kalla starfsmenn til
vinnu úr sumarleyfum vegna mik-
illar manneklu.
Aðspurður segir Guðjón að reynt
verði að kalla ekki fólk úr sum-
arleyfum en að mönnunin sé tæp.
„Við höfum reynt að gera það
ekki. Það er reynt að skipuleggja
það þannig að allir geta tekið sum-
arfríin sín. En mönnun er tæp, okk-
ur vantar fólk. Og þetta verður nátt-
úrulega ennþá tæpara yfir
sumartímann.“ Tónlistarhátíðin
Eistnaflug fór fram um helgina á
Neskaupstað. Upp komu nokkur til-
vik þar sem þörf var á aðstoð sjúkra-
hússins en tilvikin leiddu ekki til
aukaálags að sögn Guðjóns.
„Það voru einhver tilvik, en þau
voru óveruleg þannig að það var
ekkert aukaálag á sjúkrahúsinu.“
Mikið álag fyrir austan
- Mikið álag er á fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Neskaupstaður Mikið álag er á
sjúkrahúsinu auk manneklu.
Eistnaflug var haldið hátíðlega í
Neskaupstað um helgina eftir
þriggja ára bið en hátíðin var ekki
síðustu tvö sumur sökum sam-
komutakmarkana. Því má vænta að
marga metalhausa og pönkara hafi
klægjað í fingurna þar til talið var í.
„Þetta gekk alveg sjúklega vel,“
segir Chris van der Valk í samtali
við Morgunblaðið sem hefur séð um
hátíðina síðan 2019 ásamt eiginkonu
sinni, Magný Rós Sigurðardóttur,
sem sjálf hefur þó staðið í því frá
árinu 2017.
Stormur sem setti allt í steik
Vonskuveður á fimmtudagskvöld-
inu setti hátíðina í ákveðið óvissu-
ástand, en færa þurfti tjaldsvæðið
inn í íþróttahúsið vegna veðurs.
„Það var sturlað rok sem gekk yfir
bæinn,“ segir hann og þakkar björg-
unarsveitinni og þeim sem ruku út
til að hjálpa. Sem betur fer skánaði
síðan veðrið. „Svo kom bara sól og
blíða og það var þannig eiginlega
alla helgina bara.“
Chris flutti hingað til lands árið
2011 frá Hollandi og hefur komið á
Eistnaflug síðan 2015. „Það tók smá
tíma að komast inn í senuna,“ segir
hann glettinn og að Magný hafi þó
mætt töluvert lengur. Fyrsta
Eistnaflugið var haldið árið 2005.
„Þetta er ekkert djók, að færa heila
hátíð í svona smábæ. Það þarf hjálp,
kærleika og vilja. Fólkið sem er í
þessu það vill gera þetta. Þegar
maður heyrir hvað gestir og hljó-
sveitarmeðlimir eru ánægðir þá veit
maður af hverju maður er að þessu.“
Þá hafi mæting verið góð og ball-
ið, sem er haldið fyrir heimamenn
jafnt og hátíðargesti, framar vonum.
Þar skemmti Stuðlabandið fram eft-
ir nóttu og tóku ýmsa gamla rokk-
slagara. „Þeim leið eins og rokk-
stjörnum.“ ari@mbl.is
„Svo kom
bara sól
og blíða“
Morgunblaðið/Ari Páll
Rokk Eistnaflug 2019. Stuttu síðar
kom Páll Óskar og var þá dansað.
- Eistnaflug loks-
ins haldið aftur