Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022 um,“ eins og Sævar sonur hans sagði svo fallega. Það er vandfundinn annar eins mannauður og er í ynd- islegum afkomendum þeirra Silla og hans kæru Möggu. Elsku Magga og þið hin, minningin um góðan eiginmann, föður, afa, tengdaföður og bróð- ur mun lifa með okkur um ókomna tíð. Birgir og Erla. Yngsti bróðir minn, hann Silli, er fallinn frá eftir erfið veikindi sem hann barðist við af mikilli hetjudáð undanfarin ár. Við systkinin ólumst upp við sjávarsíðuna á Blönduósi þar sem fjaran neðan við húsið var mjög spennandi fyrir okkur krakkana. Ég man vel þegar Silli og vinur hans fóru að bjástra við (með hjálp minni!) að leggja út smá netstúf í sjóinn, trúlega óleyfilega alltof nálægt ósnum þar sem það kom fyrir að einstaka lax slæddist í netið! En aðalleiksvæði vinanna var þó við Kaupfélagið þar sem faðir okkar vann, þar var farið í feluleik í timburstöflunun og sniglast við sláturhúsið á haustin. Svo var það návígið við Mjólkurstöðina, oft roguðumst við með fimm lítra mjólkurbrúsa þaðan, kíló af skyri vafið í smjörpappír og ekki var verra að fá gefins glóðvolg- an þurrmjólkurvindil í leiðinni. Silli var mikil pabba- og mömmustrákur, sem aldrei var sendur sumarlangt í sveit eins og við eldri systkinin. Það voru þó ekki fáir bíltúrarnir sem farnir voru í sveitina, en sem lít- ill snáði taldist hann ekki mikið bóndaefni, hann átti það til að rugla saman hrossum og kúm sem hann sá út um bílgluggann á leiðinni! En kartöfluræktun með pabba okkar í Selvík var honum mikið kappsmál. Yngstu systkinin, Dæda og Silli, sem hvíla nú saman í sumarlandinu voru sérlega náin alla tíð, þau voru síðustu börnin í heimahús- um á Blönduósi og fluttust með foreldrum okkar til Reykjavíkur árið eftir fermingu Silla, eldri systkinin voru þá flest flutt á höfuðborgarsvæðið. Ekki leið langur tími eftir að Silli fluttist suður að hann fann tilvonandi eiginkonu sína, hana Möggu, þau voru þá aðeins 16 og 17 ára gömul. Við Baldvin minnumst sér- staklega heimsóknar þeirra Silla og Möggu til okkar er við bjugg- um í Kanada, yndislegar sam- verustundir sem við geymum í hjartastað. Þá var bróðir minn búinn að vinna baráttu við bráðahvítblæði. Hann fór í mergskipti í Svíþjóð haustið 1995, þar sem ég passaði sem merggjafi og kom frá Kanada í mergskiptin. Bróðir minn barð- ist þar eins og hetja fyrir lífi sínu með Möggu konuna sína sér við hlið, hún var alltaf hans stoð og stytta. Börnin voru heima á Íslandi, þar sem eldri börn þeirra og tengdadóttir tóku að sér að hugsa um litlu tvíburadrengina þeirra sem voru þá aðeins 6 ára gamlir. Það voru margar ógleyman- legar stundir sem við Baldvin áttum með þeim hjónum, bæði á heimili þeirra og í Skorradaln- um, þvílíkur listakokkur, snyrti- menni, rólegaheita- og góðmenni sem hann bróðir minn var. Við eigum eftir að sakna hans sárt. Silli var mikill gæfumaður, hann átti gott líf með Möggu sinni, það var alltaf svo notalegt og fallegt hjá þeim, þau eign- uðust fyrirmyndarbörn, tengda- börn og barnabörn, fjölskyldu sem er einstaklega náin og sam- heldin. Elsku Magga mín, Sigmar Ingi, Sævar Ingi, Halla Dóra, Pétur Smári og fjölskyldur ykk- ar, megið þið finna styrk í sorg ykkar. Hvíldu í friði, elsku bróðir. Margrét Sveinbergsdóttir. ✝ Viðar Jónsson fæddist í Reykjavík 29. maí 1951. Foreldrar hans voru Jón Bjarnason, f. 27. mars 1930 og Guð- rún Ásgeirsdóttir, f. 18. júlí 1933. Þau eru látin. Systkini Viðars eru Kristrún, f. 1957, Ólafur, f. 1958, Jón Ingi, f. 1969, Bjarni, f. 1972 og Hugi, f. 1975. Viðar var kvæntur Guðnýju Róbertsdóttur. Sonur þeirra er Róbert, f. 26. apríl 1981. Börn hans eru Ísabella Rún, f. 11. júlí 2017 og Huginn Rafn, f. 24. apríl 2019, móðir þeirra er Guðrún Sigríð- ur Sæmundsen. Viðar lauk BA- námi við Kenn- araháskóla Íslands og bætti síðar við sig námi í sér- kennslu og vann sem sérkennari um árabil. Hann lét ekki staðar numið þar heldur lauk meistaraprófi í þýðingafræðum frá Háskóla Íslands árið 2010. Viðar gaf út þrjár ljóðabæk- ur; Silkileiðin (2013), Mamma kemur bráðum heim (2014) og Röntgenorðabókin (2016). Viðar verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, 11. júlí 2022, kl. 13.00. Elsku Viðar. Ég er svo þakklát fyrir okkar kynni þótt við höfum nú ekki þekkst lengi. Eða hvernig mælir maður tíma þegar maður nær svo góðri tengingu við aðra manneskju? Mér er minnisstætt hve auðvelt var að tengjast þér, hvað þú varst kærleiksríkur og afslappaður. Þú hafðir einstak- lega góða nærveru. Við áttum alltaf svo gott spjall þegar við hittumst. Ég hugsa með hlýhug til samverustundanna okkar. Þegar Viðar afi kom í heimsókn. Hvað þú lagðir þig fram við að gleðja barnabörnin þín og hve mikið þú naust þess að fylgjast með þeim ærslast og leika sér. Okkur þótti afar vænt um þig. Nú ertu kominn í hina eilífu hvíld þar sem sálin fær frið og ró. Megi Guð og englarnir fylgja þér út í hið óendanlega. Ég kveð þig með litlu bænaversi Sigurðar Jónssonar frá Presthólum: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Guðrún Sigríður Sæmundsen. Kardimommubærinn, við átt- um hann, og einnig kæra bræð- ur, hesta og Fransmenn … að ógleymdu konferensráðinu. Lautarferð á Þingvöll, Nesja- vallaleið, Dylan í botni - hann hljómar best þegar ekinn er fjall- vegur, þegar ekið er yfir fjöll og meðfram djúpum giljum. Flat- kökur með hangikjöti í grænni lautu, ekki rennt fyrir fisk. Kaffi og sígó og horft út í blá- inn. … Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. Dáinn er ég þér. En þú munt lifa undir himni mínum þar til myrkvast hann. Missa hlýt ég þá eins og þú hefur gert ljós dagsins land, sögu, hvern mann. (Hannes Pétursson) Ingveldur Róbertsdóttir. Um fjörutíu manns voru mætt í Stórutjarnaskóla í ágúst 1989. Allt voru þetta kennarar sem höfðu skráð sig í framhaldsnám við Kennaraháskóla Íslands, til BA-gráðu í sérkennslufræðum. Námið var tveggja ára fram- haldsnám en stundað á fjórum árum. Það skyldi að mestu fara fram á Norðurlandi en nemend- um var ætlað að hittast þrisvar hvert ár en að öðru leyti stunda fjarnám með vinnu. Nemendurn- ir komu bókstaflega alls staðar að af landinu. Strax í upphafi skapaðist einstaklega góður andi meðal nemenda. Mikið úrval kennara fékkst til kennslunnar, bæði íslenskir og erlendir. En óhætt er að segja að eitt það dýr- mætasta, sem svo gerðist þessi fjögur ár, var sú góða vinátta sem skapaðist meðal nemend- anna. Einn þeirra var Viðar Jónsson, sem nú er fallinn frá eftir mikil og alvarleg veikindi. Viðar var hæglátur, sposkur, tryggur og vann námsverkefni sín af mikilli alúð og skerpu. Hann tók mikinn þátt í samveru nemendanna en valdi líka oft ein- veruna, enda orti hann: Ég ligg í dvala og tel skuggana. Er silkiormur sem reynir að sjá fyrir sér sólina. Brýt heilann um tímann. Óska þess að verða ljósblátt fiðrildi með örlítið dekkri jaðra yst á vængjunum. Viðar var ljóðskáld og gaf út nokkrar ljóðabækur. Ljóðin lýsa lífsbaráttu hans, dagar hans voru oft erfiðir en ljósið í lífi hans var Róbert sonur hans og fjölskylda. Blessuð sé minning góðs vin- ar. Kristín Aðalsteinsdóttir. Viðar Jónsson ✝ Erla fæddist 3. janúar 1946 í Reykjavík. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala 3. júlí 2022, eftir skammvinna bar- áttu við krabba- mein. Foreldrar Erlu voru Valný Georgsdóttir, f. 12. mars 1922, d. 2. október 2010 og Höskuldur Stefánsson, f. 12. júlí 1915, d. 30. ágúst 2009, lengst af búsett í Reykjavík og á Sauðárkróki. Systir Erlu er Sigrún Höskuldsdóttir, f. 4. október 1949. Erla eignaðist dóttur sína Huldu Valnýju Arthúrsdóttur 26. september 1961 með Art- húri Sveinssyni, f. 19. ágúst 1922, d. 2. mars 2022. Eig- inmaður Huldu er Eysteinn Jó- hannsson, f. 1. nóvember 1953. Börn Huldu eru Anna Karen, f. 30. janúar 1983 og Sævar Ingi, f. 28. ágúst 1985. vinssyni, lögreglumanni í Kefla- vík. Þau giftust árið 1969. Fyr- ir átti Tryggvi fjögur börn, þau Kristínu, Ara, Hauk og Eddu. Sameiginlegur sonur Tryggva og Erlu er Höskuldur. Leiðir Erlu og Tryggva skildu nokkr- um árum síðar. Eftir nokkur ár á Siglufirði, þar sem hún starfaði við bók- hald hjá Þormóði Ramma, flutt- ist hún um tíma til Saskatoon í Kanada þar sem hún stundaði nám í kristnum fræðum. Þaðan lá leiðin aftur til Reykjavíkur, þar sem Erla starfaði meðal annars fyrir Geislavarnir rík- isins. Erla flutti árið 1992 til Sví- þjóðar þar sem hún stundaði frekara nám í kristnum fræð- um og starfaði við fjármál og bókhald fyrir söfnuðinn Arken, en hún tók einnig virkan þátt í alþjóðlegu hjálparstarfi safn- aðarins og var ráðgjafi og öld- ungur í þeirra röðum. Var hún búsett í Svíþjóð nær óslitið til ársins 2019. Frá 2019 var hún búsett í Reykjavík. Erla var alla tíð virk í kóra- starfi og um tíma meðlimur Pólýfón kórsins. Útför Erlu fer fram í Foss- vogskapellu í dag, 11. júlí 2022, og hefst athöfnin kl. 11. Árið 1969 giftist Erla Sigurvalda Tryggva Kristvins- syni, f. 20. sept- ember 1929, d. 2. janúar 1982, og eignaðist með hon- um Höskuld Tryggvason, f. 17. mars 1971. Kona Höskuldar er Arn- björg María Dani- elsen, f. 13.júní 1980. Börn Höskuldar eru Jasper Ingvi, f. 28. janúar 2008, Niklas Bjarni, f. 21. september 2010, Brynja Steinunn, f. 9. janúar 2011 og Bjarki Ragnar, f. 9. júní 2019. Erla ólst upp í Vogahverfi í Reykjavík. Að loknu versl- unarprófi starfaði hún við skrifstofu- og bókhaldsstörf í Reykjavík og síðar fyrir hreppsskrifstofu Njarðvíkur og bandaríska varnarliðið í Kefla- vík. Á þessum tíma kynntist hún Sigurvalda Tryggva Krist- Elsku mamma lést síðasta sunnudag eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Hún var yndisleg móðir og amma og að svo mörgu leyti góð fyr- irmynd. Ég er henni óendanlega þakklátur fyrir það uppeldi og atlæti sem hún veitti mér í gegnum árin. Þessir síðustu mánuðir með henni þar sem aðdáunarvert hugrekki og æðruleysi hennar gagnvart hinu óumflýjanlega kom ber- sýnilega í ljós, voru einstaklega dýrmætur tími. Líf mömmu var sannarlega enginn dans á rósum. Hún varð móðir aðeins 15 ára, en lét það hlutskipti ekki aftra sér frá námi í Verzlunarskóla Íslands, þar sem hún lauk verslunar- prófi. Hún glímdi við veikindi og ýmis skakkaföll í gegnum tíðina en tókst þó sem ein- stæðri móður að brauðfæða okkur og veita okkur ástríka æsku, þótt við höfðum aldrei úr miklu að moða. Hún lét ýmsar hindranir og takmörkuð fjárráð heldur ekki stöðva sig í sinni ævintýra- og útþrá. Hún fór til náms til Nor- egs í einn vetur, síðar aftur með mig í för til Kanada, og settist síðar að í Stokkhólmi, Svíþjóð, í rúma tvo áratugi. Mamma var alla tíð mjög trúuð og í Svíþjóð lagði hún meðal annars stund á kristin fræði og starfaði innan safnaðarins Ar- ken. Mannúðarmál og sálgæsla voru mikilvægur hluti af starfi hennar fyrir söfnuðinn, enda bjó hún yfir sterkri samkennd og var með einstakt hjartalag. Djúpt innsæi hennar og hæfi- leikinn til að setja sig í spor annarra gerði það að verkum að fólk leitaði gjarnan ráða hjá henni. Tónlist og söngur skipaði stórt hlutverk í lífi henni og var hún um tíma meðlimur Pólýfón- kórsins. Hún hafði unun af að hlusta á fallega tónlist og gladdi það hana sérstaklega er barnabörnin léku á hljóðfæri eða sungu fyrir hana. Barnabörn hennar sex áttu hug hennar allan og varði hún löngum stundum með þeim, í leik en átti líka stóran þátt í að kenna þeim ungum að lesa og skrifa. Síðustu árin varði hún óteljandi stundum með yngsta barnabarninu Bjarka Ragnari við lestur og spjall. Hann býr að því, enda stækkaði orðaforði hans með hverju skiptinu sem hann sat rólegur í kjöltu ömmu sinnar og leyfði henni að leiða sig í gegnum þær fjölmörgu bækur sem hún gaf honum. Hún hafði einstakt lag á öllum barnabörnunum og sýndi þeim, velferð þeirra og áhugamálum einlægan áhuga. Við Arnbjörg erum ævinlega þakklát fyrir þá hlýju og nærandi nærveru sem hún veitti okkur og börnum okkar þessi síðustu ár sem við fengum að njóta með henni, öll sameinuð á Íslandi. Sorgin ríkir því nú í hjörtum okkar, en á sama tíma höfum við fengið í veganesti svo marg- ar yndislegar minningar og mannkærleik til eftirbreytni. Hvíl í friði elsku mamma, tengdamamma og amma. Ást og kærleikur fylgir þér og minningu þinni. Höskuldur, Arnbjörg María, Jasper Ingvi, Niklas Bjarni, Brynja Steinunn og Bjarki Ragnar. Amma var ótrúlega yndisleg og hjálpsöm manneskja sem var alltaf góð hvað sem á gekk. Hún las oft fyrir mig tímunum saman þegar ég var lítill og eyddi miklum tíma með mér. Sama hversu illa henni leið lét hún það aldrei sjást og sá alltaf jákvæðu hliðarnar á öllu. Þessi 14 ár mín með henni hafa verið yndisleg og ég er þakklátur að hafa fengið að eiga svona góða ömmu. Hvíl í friði elsku amma mín. Jasper Ingvi. Það var amma mín sem kenndi mér að lesa og hún vildi mér alltaf það besta. Alltaf þegar ég kom að heim- sækja hana til Íslands eftir að við bræðurnir fluttum til Þýskalands fór hún með mig í bókabúð að kaupa íslenskar bækur fyrir mig til að halda áfram að æfa mig í íslensku. Hún var ein mikilvægasta manneskjan í lífi mínu og ég vildi að ég hefði getað eytt meiri tíma með henni. Ég mun sakna hennar. Niklas Bjarni. Ég man öll þau skipti sem ég kom í heimsókn til þín, ég man líka þegar ég sótti litla bróður minn til þín en hann neitaði að fara frá þér. Honu fannst svo gott að vera hjá ömmu Erlu. En mest mann ég eftir bók- unum sem þú gafst mér og hvað þú varst alltaf góð við mig. Ég mun sakna þín mikið en ég veit að þú ert á betri stað núna elsku amma. Erla, Brynja, Steinunn. Erlu kynntist ég þegar dóttir mín og sonur hennar hófu sam- búð og Erla fluttist heim frá Svíþjóð. Það sem ég tók eftir í fari hennar var hve mikla ástúð og umhyggju hún sýndi sínum nánustu. Engin undantekning frá því var gott viðmót og hlýja í garð tengdadótturinnar og dóttur hennar, sem hún tók ástfóstri við. Það var Erlu fjarri skapi að skilja nokkurn út undan eða mismuna. Barna- börnin hændust mjög að henni og hún hikaði ekki við að leggja þeim lífsreglurnar og brýna fyrir þeim góða siði. Hún gaf sér alltaf góðan tíma til að ræða við þau og fræða. Ég er sannfærð um að hún hafi náð að sá góðum fræjum sem gagnast þeim öllum í lífinu. Erla var mjög trúuð kona og ástundaði kristinn kærleika í daglegu lífi. Það lýsti sér í því- líku æðruleysi og andlegum þrótti sem hún sýndi þegar al- varleg veikindi herjuðu á hana fyrir aðeins nokkrum mánuð- um. Með trúna og bjartsýni að vopni var hún tilbúin að berjast við erfiðan sjúkdóm. Hennar stoð og stytta í þessum veik- indum var einkasonurinn Höddi sem gerði allt sem í hans valdi stóð til að létta henni lífið. Dótturdóttir hennar hún Anna Karen var líka mikil hjálpar- hella og reyndist ömmu sinni ómetanlega vel. Við Erla náðum vel saman og áttum oft gott spjall saman um lífið og tilveruna. Eftir- minnilegt er hve vel hún fylgd- ist með syninum á „háskaferð- um“ hans um fjöll og firnindi. Hún leyndi því mjög vel að hún bæri einhvern kvíðboga fyrir ferðum hans. Trúin og vonin á velfarnað kom hér að gagni. Hversu stolt hún var af fjalla- kappanum var auðvelt að sjá. Erlu er sárt saknað, en minning hennar lifir. Steinunn Jónsdóttir. Erla Höskuldsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, ÓSKAR SIGURVIN PECHAR bifreiðastjóri, Karfavogi 21, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk fimmtudaginn 7. júlí. Útförin fer fram í Langholtskirkju fimmtudaginn 14. júlí klukkan 14. Guðmunda Hjördís Óskarsdóttir Róbert Elías Óskarsson Margrét Ágústa Sigurðardóttir Kjartan Már Óskarsson Elvar Daði Óskarsson barnabörn, systkini og aðrir ástvinir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.