Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ CHRIS HEMSWORTH CHRISTIAN BALE TESSA THOMPSON TAIKA WAITITI RUSSELL WITH CROWE NATALIE AND PORTMAN 96% Empire The Playlist BBC The sun Total FilmRogerEbert.com HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR 82% DAGMÁL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Listahátíðin LungA, sem fer fram á Seyðisfirði á ári hverju, hófst í gær, 10. júlí og lýkur næsta sunnudag, 17. júlí. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir og Helga Guðrún Þorbjörnsdóttir sjá um skipulag myndlistarsýning- anna á hátíðinni og stýra minni við- burðum. Þær sjá að eigin sögn um brúna milli þátttakenda á hátíðinni, heimamanna og þeirra listamanna sem taka þátt og að hlúa að samfél- aginu sem myndast á hátíðinni. Þær voru gestir Dagmála og sögðu frá sínum persónulegu kynnum af hátíð- inni, sérstöðu hennar og dagskránni í ár. Helga Guðrún kynntist hátíðinni árið 2017 þegar hún tók þátt í ung- mennaskiptiverkefni á hátíðinni á vegum Erasmus. „Ég er bara búin að vera þátttakandi en núna er ég að koma fyrst að skipuleggja sem er mjög spennandi.“ Þórhildur Tinna tók hins vegar fyrst þátt sem sjálfboðaliði árið 2015 og hefur tekið þátt í skipulagningu síðan ár. „Það er smá skandall að ég hafi aldrei verið þátttakandi,“ segir hún. „Ég hafði bara einskæran áhuga á því hvernig svona fyrirbæri virka. Þetta styrkir líka tengslanetið manns og hjálpar manni að finna sína eigin rödd.“ Húðflúr í glerboxi Í dag, 11. júlí, opna nokkrar mynd- listasýningar auk þess sem gjörning- ar, bíósýningar, danstímar og kar- íókí verða á dagskrá í vikunni. Helga Guðrún nefnir nokkra lista- menn sem koma við sögu. Nermine El Ansari verður með innsetningu í Herðubreið, Óðinn Darri verður með lifandi sýningu, þar sem hann húð- flúrar í glerboxi á grasbala og lista- mennirnir Francesco Fabris og Blair Alexander munu sýna í sílótankinum Silo. Þá verður haldin minningarsýn- ing til heiðurs Tótu Van Helzing og mótmælagjörningur gegn fiskeldi í firðinum mun fara fram í saunu stað- arins. Stór hluti LungA-hátíðarinnar eru listasmiðjur fyrir ungt fólk sem lýkur með uppskeruhátíð næstu helgi. Smiðjur þessar eru af ýmsum toga, í gegnum árin hefur verið boðið upp á tónlist, myndlist, gjörninga, dans, textíl og spuna svo eitthvað sé nefnt. Þar segja þær Þórhildur og Helga að fólk geti fengið að kynnast ólíkum listgreinum og geti þar með ef til vill áttað sig á því hvar þeirra áhugasvið liggur. „Ég hef alltaf lært mikið og opnað mína listsköpun miklu meira. Það er ótrúlega gaman að vera þarna í viku, á Seyðisfirði og fá leiðbeiningar frá einhverjum listamanni sem hefur eitthvað nýtt að segja og bjóða og hafa síðan einhverja lokaútkomu.“ Vikunni lýkur á uppskeru- og tón- listarhátíð helgina 15.-17. júlí. Tónleikadagskráin er ekki af verri endanum þetta árið. Þar stíga ýmsir listamenn á stokk og Helga María nefnir sem dæmi Birni, Bríeti, JFDR og hina dönsku Zaar. Það verður aðeins öðruvísi snið á tónlistarhátíðinni í ár en undarnfarið að sögn Þórhildar Tinnu. Í stað þétt- rar dagskrá í tvo daga blæðir tónlist- inn inn í listasmiðjuvikuna, en tón- leikahaldið nær þó hápunkti á laugardag. Að koma sjálfum sér á óvart Helga Guðrún segir stemninguna á uppskeruhelginni alltaf skemmti- lega. „Það er mjög fallegt að sjá út- komuna. Allir eru smá þreyttir samt af því þeir eru búnir að vera í smiðju alla vikuna.“ Spurð út í sérstöðu LungA segir Þórhildur Tinna: „Nú þekki ég ekki allar hátíðirnar hér en ég held að sérstaðan sé að þetta sé á Seyðisfirði sem er lítill staður. Þú ert alltaf með hlutverk yfir alla hátíðina. Þetta er mjög einstakur staður til þess að vera líka einn og vera svolítið sjálf- stæður. Og aðeins að þrýsta á mörk- in þín, ekki á vondan hátt en bara að koma sjálfum sér aðeins á óvart og átta sig á því að það er fullt af fólki þarna úti sem er tilbúið að taka þér eins og þú ert.“ Þá talar Þórhildur Tinna um að á LungA tilheyri allir sama hópnum og enginn sé skilinn útundan. Þar séu ekki haldin einkapartý eða neitt þess háttar. Það séu bara allir með. Þær tala vel um Seyðisfjörð en viðurkenna að því fylgi áskoranir að halda listahátíð í svona litlum bæ. Vissulega eru Egilsstaðir rétt hand- an við heiðina og þar megi finna margt sem á þarf að halda. Það sé helst tækjabúnaður sem sé mik- ilvægt að bóka með fyrirvara í Reykjavík og flytja hann austur. Fegurð sem liggur í áskorunum „Þú ert bara kominn til þess að vera og það er ekki hægt að redda neinu,“ segir Þórhildur og þess vegna séu samskipti við listamenn mikilvæg og ákveðin vænt- ingastjórnun. Þá sé mikilvægt að taka það skýrt fram við listamennina að þegar þeir komi með verk á LungA þá megi búast við því að þetta verði LungA-útgáfa af því verki. „Þetta er grasrótarhátíð enn þá þótt hún sé orðin 23 ára. Við erum bara að vinna með það sem við höf- um og það er líka fegurð í því að kynnast verkinu þínu á nýjan hátt og vera opin fyrir áskorununum. Ég er búin að vera að gera þetta síðan 2015 og ég er með þumalputtareglu: Aldr- ei panikka. Þetta verður alltaf fal- legt, það verður alltaf gaman.“ Um framtíð hátíðarinnar segir Þórhildur Tinna að það sé margt spennandi í kortunum. Hún mun ásamt Helenu Aðalsteinsdóttur taka við hlutverki framkvæmdastjóra en þær munu þó enn njóta stuðnings þeirra sem hafa séð um það verkefni undanfarin ár, Hilmars Guðjóns- sonar, Bjartar Sigfinnsdóttur og Sesselju Hlínar Jónasardóttur. „Við erum báðar sýningarstýrur og sérhæfum okkur í sýning- arstjórnun á viðburðum. Við erum spenntar að finna einhvern góðan farveg fyrir hátíðina þannig að hún nái að þroskast á fallegan hátt. Það er held ég ofmetið að hlutir verði að stækka til þess að verða betri. Ég held það sé fullkominn tími til þess að taka við og gera eitthvað sniðugt og skemmtilegt.“ Finna eigin rödd á LungA - Listahátíðin LungA á Seyðisfirði fer fram 10.-17. júlí - Í listasmiðjum hátíðarinnar getur fólk kynnst ólíkum listgreinum og styrkt tengslanetið - Uppskeru- og tónlistarhátíð fer fram næstu helgi Morgunblaðið/Kristófer Liljar Skipuleggjendur „Ég er búin að vera að gera þetta síðan 2015 og ég er með þumalputtareglu: Aldrei panikka,“ segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir sem var gestur Dagmála ásamt Helgu Guðrúnu Þorbjörnsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.