Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
Tónleikar verða haldnir á morgun, þriðjudag, kl. 19.30 í
Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ. Á þeim koma fram
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari og Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir píanóleikari og flytja dagskrána
Menning á Miðnesheiði. Á efnisskrá verða íslensk söng-
lög og amerískir slagarar, eins og segir í tilkynningu.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikarröðinni Sumartónar í
Hvalsneskirkju og eru styrktir af Uppbyggingasjóði
Suðurnesja og Tónlistarsjóði.
Sumartónar með Bjarna og Helgu
MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 192. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Víkingar eru aðeins sex stigum á eftir Breiðabliki í
toppslagnum í Bestu deild karla en þeir unnu Skaga-
menn 3:2 í tólftu umferðinni á laugardaginn. Blikar
voru komnir með ellefu stiga forskot á Víking um tíma.
Eyjamenn hafa enn ekki unnið leik eftir tólf umferðir en
þeir töpuðu 4:3 fyrir KA eftir að hafa skorað þrjú mörk í
fyrri hálfleiknum. »26
Víkingar saxa á forskot Blikanna
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Kátt var í Kópavogi og fótboltinn
fjörugur á Símamótinu sem þar var
haldið um helgina. Þátttakendur
voru alls um 3.000, það er úr 5., 6. og
7. flokk kvenna í knattspyrnu. Leik-
ið var á völlum Breiðabliks í Smár-
anum, en 5. flokkurinn háði sína leiki
á Fagralundi í Fossvogsdal. Stelpur
úr fótboltafélögum af öllu landinu
mættu til mótsins. Jafnhliða var háð
Litla Símamótið haldið fyrir 8.flokk.
Leikir í því fóru fram í knattspyrnu-
húsinu Fífunni. Símamótið var nú í
38. sinn, en það hefur verið haldið
allar götur frá árinu 1985.
Foreldrar og jafnvel heilu fjöl-
skyldurnar mættu á mótið til að
fylgja stelpunum sínum eftir. Þeirra
á meðal var Sigurhanna Friðþórs-
dóttir úr Vestmanneyjum sem þarna
var með dóttur sinni, Díönnu Jóns-
dóttur úr ÍBV. Sigurhanna er móðir
þriggja stúlkna sem allar hafa verið í
knattspyrnu og þær hafa allar farið
á Símamótið sem Sigurhanna sótti
nú í 18. sinn.
Förum ánægð heim
„Stelpunum okkar úr ÍBV gekk
vel á mótinu og öll förum við ánægð
heim,“ sagði Sigurhanna í samtali
við Morgunblaðið. „Sjálfsagt hafa
ekki margir farið á jafn mörg Síma-
mót og ég. Mér finnst gaman að
fylga stelpunum mínum eftir en nú
eru þær að stálpast og þetta er síð-
asta mótið sem ég sæki sem foreldri.
Umgjörðin hér er góð og fram-
kvæmd mótsins sömuleiðis. Fyrir
stelpurnar er þetta frábær skóli, þ.e.
að taka þátt í keppni, vinna leiki og
tapa og vera saman í gegnum súrt
og sæt í nokkra daga. Mót sem þessi
eru mikill félagslegur lærdómur.“
3.000 stelpur í fótbolta
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Glens Keppnisskapið einskorðast ekki við fótboltann rétt eins og sást á tilþrifum þessara leikkvenna Breiðabliks.
Mæðgur Sigurhanna Friðþórsdóttir og Díanna Jónsdóttir leikmaður ÍBV.
- Sigurhanna var
mamma á Síma-
móti í 18. sinn