Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.07.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022 Hreint loft –betri heilsa Honeywell gæða lofthreinsitæki Láttu þér og þínum líða vel - innandyra Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. HFD323E Air Genius 5. Hægt að þvo síuna. Verð kr. 39.420 HPA830 Round Air Purifier. Mjög hljóðlát. Verð kr. 29.960 S. 555 3100 · donna.is Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Landsmóti hestamanna lauk í gær með opnum húsum á rækt- unarbúum. Síðustu Landsmótssig- urvegararnir fyrir árið 2022 voru krýndir á laugardag, en þá fóru fram úrslit í gæðingakeppnum. Blautt var og fánar blöktu vel í vindinum á laugardaginn, en eftir því sem leið á daginn rættist aðeins úr veðrinu. Heimaræktaður sigur Hin tólf ára gamla Kristín Eir Hauksdóttir og hesturinn hennar Þytur frá Skáney eru Landsmóts- sigurvegarar í barnaflokki árið 2022, með 9 í einkunn. Kristín og Þytur gerðu gott mót en þau héldu efsta sætinu í gegnum forkeppni, milliriðil og innsigluðu svo yf- irburði sína í úrslitum. Þytur er úr ræktun fjölskyldunnar. Spurð hvort hún hafi þá fylgst með Þyt frá því að hann var folald, bendir Krist- ín á að því sé í raun öfugt farið. „Hann er svolítið eldri en ég, en hann er sautján og ég tólf. Mamma var ólétt að mér þegar hún tamdi hann.“ Stóð við stóru orðin Í unglingaflokki stóð Sigurður Steingrímsson uppi sem sigurveg- ari, á merinni Hátíð frá Forsæti II. Sigurður og Hátíð fóru sannkallaða Krýsuvíkurleið að titlinum, en í for- keppni raðaði parið sér í áttunda sæti. Eftir milliriðil féllu þau niður í það tíunda og þurftu því að sigra B- úrslitin til þess að öðlast þátt- tökurétt í A-úrslitum, þar sem þau báru svo sigur úr býtum með ein- kunnina 8,97. Hátíð er fimm folalda móðir en það var ekki að sjá á sýn- ingunni. Úlfar Albertsson er eig- andi Hátíðar. „Ég hringi í Úlfar í vetur, þegar ég vissi að hún væri geld, og ég spurði hvort það væri ekki kominn tími til þess að vinna Landsmót. Hann gaf mér tækifæri til að standa við stóru orðin og ég gerði það.“ Benedikt og Biskup bættu í Landsmótssigurvegarar í ung- mennaflokki voru þeir Benedikt Ólafsson og Biskup frá Ólafshaga, sem er jafnframt úr ræktun fjöl- skyldunnar. Þeir sigruðu unglinga- flokk á Landsmóti fyrir fjórum ár- um og vörðu nú titilinn í ungmennaflokki. „Þetta er frábær karakter, alger gæðingur. Það er ekki hægt að biðja um meira í hesti,“ segir Benedikt um Biskup. Liturinn á Biskup vekur athygli, en hann jarpvindótt glófextur. Er hann eini stóðhesturinn í heiminum sem ber þennan einstaka lit, af þeim sem sýndir hafa verið. Siggi Sig tók A-flokkinn Veitt voru verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin. Sjóður frá Kirkjubæ hlaut Sleipnisbikarinn, sem er veittur þeim stóðhesti sem getið hefur af sér flest hátt dæmdu afkvæmin á undanförnum árum. Kolskeggur frá Kjarnarholti og knapi hans Sigurður Sigurðsson eru Landsmótssigurvegarar í A- flokki gæðinga. Þeir höfðu komist í B-úrslit en unnið þau og hífðu sig svo upp um átta sæti með glæsi- legri sýningu og sóttu þannig bik- arinn. Árni Björn setti svip sinn á mótið Í B-flokki meistara stóðu Árni Björn Pálsson og Ljósvaki frá Valstrýtu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 9,2 og varð það annar titillinn sem Árni Björn tók með sér heim af þessu Landsmóti, en hann sigraði einnig töltið á hest- inum Ljúf frá Torfunesi. Á Lands- móti sýndi Árni Björn hvorki meira né minna en tuttugu og sjö kyn- bótahross milli keppnisgreina. „Þegar maður er að þjálfa og sýna svona marga hesta þá kemst þetta upp í rútínu og verður eins og hver önnur vinna,“ segir Árni Björn í samtali við Morgunblaðið. Hann kveðst aldrei finna fyrir stressi, enda búinn að sitja hest frá barns- aldri. „Þetta er í raun það eina sem ég kann.“ Kraftur í Konráð og Kjark Á laugardag fór einnig fram keppni í 100 metra flugskeiði. Kon- ráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu áttu þar besta tímann, en þeir luku við sprettinn á litlum 7,44 sekúndum. Þeir voru einnig Landsmótssigurvegarar í 250 metra skeiði. Laglegu Landsmóti hestamanna lokið - Fánar blöktu vel í vindinum á laugardag - Krýsuvíkurleið að titlinum - Sigurður Sigurðsson sigr- aði fyrst B og svo A-úrslit - Árni Björn tók heim tvo titla og sýndi 27 kynbótahross á Landsmótinu Morgunblaðið/Hákon Sýning Glæsilegir gæðingarnir heilluðu gesti mótsins og spurðu þar ekki um aldur en þessi ungi maður var agndofa og vildi helst taka þátt í sýningunni. Ljósmynd/Óla Myndir Hátíð Gleði var allsráðandi á Landsmóti hestamanna frá morgni til kvölds. Sigurbjörn Bárðarson, þjálfari íslenska landsliðsins í hestaíþróttum, fylgdist vel með íþróttagreinunum á Landsmóti hestamanna þetta árið, en það kemur í hans hlut að velja þá sem keppa fyrir Íslands hönd á kom- andi Norðurlandamóti í haust og svo á heimsmeist- aramótinu næsta sumar. „Mér líst mjög vel á þetta, hópurinn er feiknasterkur og verkefnin fram undan eru spennandi.“ Hann bendir á að undirbúningur fyrir heimsmeistaramótið hafi í raun byrjað í fyrra, og standi í hámarki núna. „Það verður gaman að sjá hvað springur út í sumar og þá getur maður áttað sig á því hverjir séu líklegir til að gera góða hluti.“ Heimsmeistaramót átti að fara fram í fyrra en því var aflýst og þá voru margir hestar seldir út. „Við hefð- um að mínu mati verið með eitt sterkasta lið sem völ væri á, en þau hross voru meira og minna seld.“ Sig- urbirni leist ekkert sérstaklega á blikuna í upphafi þegar knaparnir þurftu að þjálfa upp ný hross til keppni. „Það er samt eðlilegt, hlutirnir þurfa tíma til að fæðast.“ Eftir þetta Landsmót telur hann ljóst að þessi hross hafi tekið stórstígum framförum og séu far- in að líta afskaplega vel út. Þá bendir hann á að liðið sé að yngjast upp. „Það verða alltaf einhver kynslóða- skipti þó stöku snillingar haldi sér gangandi. Maður þarf að vera á tánum í kringum yngra fólkið, þar er framtíðin og því alltaf efst á blaði hjá manni að fylgjast með þeim.“ Á tánum í kringum yngra fólkið - Undirbúningur hafinn fyrir heimsmeistaramótið Ljósmynd/Óla myndir Landslið Það kemur í hlut Sigurbjörns að velja í lið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.