Morgunblaðið - 11.07.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 11.07.2022, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Teikningaprentun Sandblástursfilmur Bílar Mercedes Benz C 350 e 3/2017 bensín / rafmagn Ekinn aðeins 30 þús. km. Eldri herra- maður sem er hættur að keyra er að láta þennan frá sér til nýs heimilis. Ef þú lætur hann fá 4,5 mills. Þá færð’ann! . www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Tilkynningar Múlaþing Sími 4 700 700 mulathing@mulathing.is mulathing.is Selbrún, breyting á deiliskipulagi Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum þann 27. júní 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Brúna II í Fellabæ í sam- ræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu sveitarfélags- ins að Lyngási 12, Egilsstöðum eða á heimasíðunni www.mulathing.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulags- fulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 22. ágúst 2022. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Skipulagsfulltrúi Múlaþings Sigurður Jónsson Múlaþing Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Handavinna kl. 12.30-16. Félagsvist kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Bingó kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut kl. 8.30, heitt á könnunni, blaðalestur og spjall. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10. Jafnvægis- æfingar undir stjórn Kristínar sjúkraþjálfara kl. 11. Verið öll velkomin. Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll kl. 10, tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi. Dansleik- fimi með Auði Hörpu kl. 11. Félagsvist í Borgum kl. 12.30. Prjónað til góðs kl. 13. Gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Opin handverksstofa kl. 9-12. Opin handverksstofa kl. 13-16. Botsía í setustofu kl. 13.15-14 og slökunar- stund með Marinu verður svo í dag kl. 15-16. Dásamleg slökun í alla staði. Síðdegiskaffi er svo frá kl. 14.30-15.30 - Allar nánari upplýsingar í síma 411-9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar. Seltjarnarnes Kaffi í króknum frá kl. 9. Jóga / leikfimi kl. 11. Frjáls stund; handavinna, samvera og kaffi kl. 13. Smá- og raðauglýsingar alltaf - alstaðar mbl.is ✝ Ágústa Jóns- dóttir fæddist á Ytri-Þorsteins- stöðum í Haukadal í Dalasýslu 26. mars 1926. Hún lést að hjúkr- unarheimilinu Sel- tjörn 29. júní 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Ágúst Einarsson, bóndi, f. 1888, d. 1981, og Kristín Þorsteins- dóttir, húsfreyja, f. 1902, d.1987. Systkini Ágústu voru Ingveldur, f. 1929, d. 2007, og Ólöf Erla, f. 1937, d. 2009. Þorsteinn Svanur f. 1935, d. 2021. Ágústa kvæntist Steinólfi Adólfssyni 1952. Þau slitu sam- vistum. Fyrir átti Ágústa eina dóttur. 1. Kristín Erna Hólmgeirs- börn, Kristínu Maríu, Aðal- björgu, Hildi Elísabetu og Trausta. 2. Sigríður Steinólfsdóttir, f.1952, gift Ægi Franzsyni og eiga þau þrjú börn. Margréti Hrönn, Steinunni Rut og Örvar Franz. Margrét, sambýlis- maður hennar er Hilmar Ósk- arsson og hafa þau alið upp tvo fóstursyni, Daníel Rúnar og Einar Bjarka. Steinunn er gift Ólafi Ingasyni, þau eiga fjögur börn, Sonju Láru, Krist- ínu Sólborgu, Margréti Líf og Arnar Loga. Sambýliskona Arnars er Lára og eiga þau soninn Atlas Loga. Kristín Sól- borg og sambýlismaður hennar Kristján Henry eiga soninn Örvar Henry. Sonja Lára og sambýliskona hennar Sólveig Sverrisdóttir eiga tvær dætur, Þorbjörgu og Sólborgu Evu. Örvar Frans á einn son frá fyrra sambandi, Franz Breka. Sambýliskona Örvars er Lola Zuleycha og á hún eina dóttir Lovísu. 3. Anna Linda , f. 1957, gift Þorbirni Guðmundssyni, synir þeirra, Örvar, f. 17.3. 1977, d. 2.2.1980, Jóhann og Steinólfur. Jóhann er ókvæntur og barn- laus. Steinólfur á fimm börn. Nöfn þeirra eru Anton Logi, Clara Dís, Eydís Björt, Þor- björn Máni og Grétar Mar. 4. Jón Adólf Steinólfsson, var giftur Karin Esther Gor- ter, f. 17.11. 1962, d. 11.5.2021. Jón á tvö börn frá fyrra hjóna- bandi, Guðlaugu Báru og Ægi Má. Bára er gift Jóni Ágústi og eiga þau tvo drengi, Alex- ander Ægi og Elmar Breka. Ágústa Friðmey ólst upp á Ytri-Þorsteinsstöðum til 17 ára aldurs og fór þá í nám til Reykjavíkur og lærði til klæð- skera. Hún var lengi með sína eigin saumastofu, fór síðan um 1970 að vinna hjá póstinum í Kópavogi, bæði sem póstberi og síðan sem flokksstjóri. Eftir að hún hætti hjá póstinum, vegna aldurs 71 árs, hóf hún störf í sínu iðnnámi sem saumakona í hálfu starfi á saumastofu og vann þar fram- undir áttrætt er hún hætti. Útför Ágústu fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 11. júlí 2022, klukkan 13. dóttir, f. 10.8.1947, hún kvæntist Trausta Kristjáns- syni sem er látinn. Börn þeirra eru Ágústa Björk, Arnbjörg, Helena og Kristján. Ágústa er gift Azy Neily og þau eiga soninn Adam Sami Naily, Ágústa Björg átti einn son frá fyrra sambandi, Óskar Mána. Arnbjörg er gift Guð- jóni B. Guðbjörnssyni, sonur þeirra er Jón Trausti Guð- jónsson. Helena er gift Hauki Tómassyni. Helena á tvo syni, Trausta Rafn og Gunnar Héð- inn. Haukur á þrjár dætur frá fyrra hjónabandi, Söndru Dís, Lilju Dís og Rakel Dís. Krist- ján er giftur Guðrúnu Þór- isdóttir og eiga þau fjögur Í dag kveðjum við ástkæra móður okkar sem lést á hjúkr- unarheimilinu Seltjörn. Mamma var glögg og minnug og kunni frá mörgu að segja og glaðværð og jákvæðni var áber- andi í fari hennar. Þegar dauðinn kveður dyra fer ekki hjá því að maður staldrar við og íhugar lífið og tilveruna. Þú hafðir mikinn áhuga á saumaskap, enda varstu lærður klæðskeri. Þú sast ófáar stundir við saumavélina og saumaðir á okkur systkinin og síðar meir með þitt saumaherbergi þar sem þú vannst við saumaskap og saumaðir fyrir fólk alls staðar að, enda nákvæm og vandvirk. Þeg- ar þú hættir saumaskap fórstu að vinna hjá Pósti og síma um 1970. Þegar þú hættir þar vegna aldurs fórstu aftur að vinna við saumaskap í nokkur ár. Þú varst dugleg við að hvetja okkur til náms og erum við ævinlega þakklát fyrir það. Bókaáhugi þinn var mikill enda áttirðu mikið og gott safn af bókum. Fóruð þið systurnar, Ágústa og Ninní, á fornbókasöl- ur og keyptuð gamlar bækur sem þið létuð síðan binda inn. Ekki var tónlistaráhuginn minni hjá þér, þar áttirðu mikið af spól- um og síðan geisladiska sem þú hlustaðir mikið á. Mamma var fagurkeri og naut þess að hafa fallega hluti í kring- um sig eins og heimilið hennar var. Á heimili þínu var oft gest- kvæmt og alltaf vel tekið á móti gestum. Það var notalegt að koma til þín í kaffi, kökur og annað góðgæti sem þú barst allt- af á borð því þú áttir alltaf eitt- hvað fyrir alla. Mamma hafði yndi af að ferðast hvort heldur erlendis eða um landið sitt og var hún varla komin úr einni ferð þegar hún var farin að hugsa um þá næstu. Mamma fylgdist vel með, las mikið og hlustaði á sögur og út- varp og var ófeimin að láta skoð- anir sínar í ljós á mönnum og málefnum, en fyrst og síðast var hún áhugasöm um velferð fjöl- skyldu sinnar og fylgdist grannt með öllum afkomendum sínum. Elsku mamma, takk fyrir allt. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Sigríður Steinólfsdóttir og Jón Adólf Steinólfsson. Tengdamóðir mín hún Ágústa kvaddi þennan heim hinn 29. júní er hún hélt í síðustu ferð til sum- arlandsins, en ferðalög voru hennar líf og yndi. Eftir langa og farsæla ævi held ég að hún hafi farið alveg sátt í þessa ferð. Ég kynntist Ágústu þegar ég og dóttir hennar hún Sirrý fórum að stinga saman nefjum, síðan bjuggum við á heimili þeirra hjóna Ágústu og Steinólfs meðan við vorum í námi. Hún gat verið hvöss við tengdasoninn hér á fyrri árum, en við vorum alla tíð mestu mát- ar og alltaf þegar ég kom til hennar var fyrst talað um veðrið og veðurhorfur vegna starfa minna sem sjómaður vissi hún að veður skipti sjómenn alltaf miklu máli, síðan var það pólitíkin, þar var hún á heimavelli. Ég hef aldrei kynnst manneskju sem fylgdist eins mikið með pólitík og hún. Til marks um það var hún alveg með það á hreinu hverjir væru í bæjarstjórn Kópavogs og Reykjavíkur eftir síðustu sveit- arstjórnarkosningar, bæði nöfn og hverra manna það fólk væri þótt 96 ára væri orðin. Eins bar sveitamálin oft á góma en hún var fædd og uppal- in í Dölunum í Dalasýslu, þar var hennar hugur oft á æskuslóðum. Mikið var oft gaman að heyra hana lýsa sveitalífinu á hennar æskuárum, því fólki sem var fætt í byrjun síðustu aldar og varð líklegast vitni að mestu breyt- ingum sem orðið hafa í mann- kynssögunni. Þegar hún var ung var verið að leggja fyrstu vegina í Dalasýslu og vann hún sem kúskur þar við vegagerð tíu eða tólf ára. Ekki var sími, ekki raf- magn, bara kalt vatn og eldað á hlóðum. Ég minnist Ágústu sem vand- virkrar manneskju sem vildi skila hverju dagsverki vel og vandlega af hendi. Hún var lærð saumakona og klæðskeri og starfaði lengi við það auk þess að bera út póst í Kópavogi. Eftir miðjan aldur gat hún veitt sér það sem hún hafði alltaf þráð; að ferðast og afla sér fróðleiks. Hún ferðaðist mikið bæði um Evrópu og Norður-Ameríku og þá að mestu með Bændaferðum. Eftir hverja ferð raðaði hún myndum í albúm og skrifaði við hvar og hvenær hver mynd var tekin. Hún var marga vetur á Kanar- íeyjum og naut sín vel þar. Hún kom nokkrum sinnum með okk- ur hjónum til Spánar, Torre- vieja. Mér er minnisstæð ein ferð á stóran útimarkað þegar Ágústa var búin að fara bás úr bási og skoða og skoða, þá var eittvað farið að síga í mig og ég spurði: „Ágústa ætlarðu að versla eitt- hvað hérna?“ Hún svaraði: „Nei, nei, ég er bara að skoða sauma- skapinn og hann er bara nokkuð góður hjá þeim!“ Þarna var kom- in saumakonan Ágústa. Ég óska þér góðrar ferðar um þau lönd sem voru ei kunn. Nú getur þú ferðast, óhult um ókunn lönd. (Ægir Franzson) Það var heiður að fá að kynn- ast þér. Ægir Franzson. Amma mín var yndisleg kona. Blanda af hlýju, góðvild, hlátri og ást. Lét hún sig ávallt varða um mig og mína hagi sem og ann- arra ástvina. Hjarta mitt er fullt af ást og þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman. Viska þín, þekking og ferða- sögur þínar, sem þú deildir með mér um land okkar og þau lönd sem þú heimsóttir. Þú skildir eft- ir fallegar minningar hjá mér sem ég mun ávallt varðveita. Ég mun aldrei gleyma þegar pikkað var í bakið á mér, á bar einum á Benidorm. Þar varst þú komin uppábúin sem pönkari og með hanakamb og alles, á leið á grímuball með eldri borgurum. Eða sumarið sem ég vann með þér í póstinum og mér tókst að bera út heila götu vitlaust, þú brostir bara til mín og barst svo út með mér daginn eftir. Þú komst mér á sporið við að lesa Rauðu ástarseríuna, ég efast um að það séu margir sem létu binda hana inn eins og þú gerðir. Ég kveð þig elsku amma mín, megi englar vaka yfir þér. Draumur dala eru við dagar lífs og hlýju. Báðum megin hlið við hlið hefst upp sól að nýju. (Stefán Finnsson) Margrét Hrönn Ægisdóttir. Ég var stödd á Spáni þegar ég fékk símtal um að yndislega amma mín hefði kvatt þennan heim. Mér fannst svo erfitt að geta ekki komið til þín og kveðja en ég gerði það á annan hátt. Ég og litlu stelpurnar þínar Margrét og Birna fórum í fallega messu og sátum við ströndina og horfðum á uppáhaldstrén þín sem voru pálmatré og hlustuðum á fugla- söng og hugsuðum til þín og rifj- uðum upp góðar minningar með þér. Mér finnst svo dýrmætt hvað við áttum yndislega fallegt og náið samband, ég og þú. Mér er svo minnisstætt þegar við fórum árið 2015 í yndislega ferð til Ítalíu, ég, þú og mamma og áttum yndislega daga við Gardavatnið. Þar fórum við sam- an í fullt af skoðunarferðum, vín- smökkun í rosalega flottan kast- ala og útsýnið okkar frá hótelherberginu okkar var svo fallegt að það minnti helst á mál- verk. Þessi ferð var ómetanleg í fallega minningabankann minn. Einnig eru mjög minnisstæð- ar allar Spánarferðirnar okkar í Moshlíð sem voru yndislegar og þar leið þér svo vel. Fyrsta ferð- in í Moshlíðina hjá þér var árið 2006 til að kanna aðstæður þar sem litla fjölskyldan mín var flutt til Spánar. Ég er endalaust þakklát fyrir það að við áttum svona mikið, gott og fallegt samband, elsku amma mín, einnig að stelpurnar mínar áttu svona gott samband við langömmu sína og tala nú ekki um langalangömmugullin þín sem þú náðir að kynnast, eiga góðar stundir með, kyssa og knúsa í kaf. Ég er og verð alltaf stelpan þín eins og þú kallaðir mig alltaf. Elska þig og sakna, elsku amma mín, og er endalaust þakklát fyrir allt okkar. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Stelpan þín Steinunn. Elsku amma lang, kraftakon- an okkra allra. Það verður skrítið að geta ekki kíkt við í súkkulaðimola og knús. Það var alltaf svo gott að koma til ömmu lang í Vogatung- una og aldrei fór maður svangur út. Lu kex með smjöri og osti var okkar uppáhalds. Við vorum ekki alveg til í heitu mjólkina sem þú varst alltaf að reyna færa okkur svo við afþökkuðum pent. Alltaf varstu að brasa eitthvað hvort sem það var sumar eða vetur. Annaðhvort varstu á fjórum fót- um að reyta arfa eða fyrir utan að brjóta ís og auðvitað var skvísan alltaf í gallabuxum. Allt- af var gott að spjalla við þig um daginn og veginn, en þegar þú byrjaðir að tala um pólitíkina… úff þá reyndum við nú að skipta um umræðuefni. Við erum svo innilega þakklátar að þú hafir náð að kynnast litlu krílunum og hvað þá að fá langalangömmu á fremsta bekk í skírn þeirra beggja rétt áður en þú kvaddir. Engil eigum við á himni, sem gætir okkar úr fjarska Hvíldu í friði elsku langamma, ávallt í okkar hjarta. Þínar stelpur, Sonja Lára, Kristín Sólborg og Margrét Líf. Ágústa F Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.