Morgunblaðið - 11.07.2022, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022
„ÉG VEIT EKKI HVORT ÞÚ VERÐUR
ÁNÆGÐUR Í VINNU HÉR. HÉR MÁ EKKI
NOTA VELLYKTANDI.“
„EF ÞÚ ÆTLAR AÐ GERA JÓGAÆFINGAR
Á HVERJU KVÖLDI VIL ÉG MITT EIGIÐ
SJÓNVARP.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera vitlaus í þig.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GANGA SKAL HÆGT UM
GLEÐINNAR DYR NEMA UM JÓLIN, GOTT
FÓLK!
KANNSKI
HLÓÐUM VIÐ OF
MIKLU Á ÞÁ!
„Íþróttir eiga hug minn allan – nú
í seinni tíma aðallega sem áhorfandi.
Ég get þó enn þá bæði gengið og far-
ið í sund. Annars hef ég áhuga á
ferðalögum, útivist og fólki al-
mennt.“ Þórarinn hélt upp á sjötugs-
afmælið um síðustu helgi ásamt
mági sínum sem varð sextugur þann
1. júlí síðastliðinn, en þeir fögnuðu
samtals 130 ára afmæli á Dúllubarn-
um í Stjörnuheimilinu.
Fjölskylda
Eiginkona Þórarins er Inga Ein-
arsdóttir, f. 6.11. 1953, sérkennari.
Foreldrar hennar voru Einar Ingi-
mundarson, f. 30.4. 1926, d. 5.8. 2012,
og Árnína Hildur Sigmundsdóttir, f.
19.1. 1927, d. 18.9. 2021. Þau voru
búsett í Keflavík. Þórarinn og Inga
eiga þrjú börn saman: 1) Atli Sveinn
Þórarinsson, f. 24.1. 1980, kennari og
knattspyrnuþjálfari, búsettur í
Árbæ. Hann á þrjá syni: Egill Gauti
Atlason, f. 14.10. 2002, Ari Valur
Atlason, f. 15.10. 2005, og Ívar Hrafn
Atlason, f. 21.8. 2008. 2) Kjartan Páll
Þórarinsson 12.1. 1982, smiður,
iþrótta- og tómstundafræðingur.
Maki hans er Harpa Ásgeirsdóttir, f.
15.1. 1986. Þau eru búsett á Húsavík
og eiga tvö börn: Ísabella Anna
Kjartansdóttir, f. 25.7. 2011, og
Lovísa Rut Kjartansdóttir, f. 29.10.
2016. 3) Þórdís Inga Þórarinsdóttir
18.10. 1988, ljósmyndari og há-
skólanemi, búsett í Reykjavík. Syst-
ir Þórarins er Auður Sveinsdóttir, f.
11.9. 1947. Foreldrar Þórarins voru
Sveinn Tryggvason, f. 12.8. 1916, d.
16.8. 1989, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs land-
búnaðarins, og Gerður Sigríður Þór-
arinsdóttir, f. 22.9. 1919, d. 12.5.
2009, húsfreyja. Þau voru búsett í
Reykjavík.
Þórarinn Egill
Sveinsson
Níelsína Abigael Ólafsdóttir
húsfreyja í Brautarholti, Kjós.,
Selfossi og síðar í Reykjavík
Daníel Benedikt Daníelsson
bókbindari, bóndi,
ljósmyndari o.fl.
Guðrún Daníelsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þórarinn Kjartansson
kaupmaður í Reykjavík
Gerður Sigríður Þórarinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðfinna Ísaksdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kjartan Árnason
húsbóndi í Reykjavík
Hlaðgerður Gísladóttir
húsfreyja í Hamrakoti
og Flankastöðum
Sveinn Gunnlaugsson
útvegsbóndi á
Flankastöðum,Miðneshr.
Sveinsína Sveinsdóttir
húsfreyja í Tryggvaskála á Akranesi
Tryggvi Benónýsson
sjómaður í Tryggvaskála á Akranesi
Guðbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Krossi
Benóný Jósefsson
bóndi á Krossi, Innri-Akraneshr., Borg.
Ætt Þórarins Egils Sveinssonar
Sveinn Tryggvason
búfræðingur, mjólkurfræðingur
og framkvæmdastjóri
framleiðsluráðs landbúnaðarins
Pétur Stefánsson laumaði til mín
þessari vísu sem varð til þegar
hann stóð upp úr stól og fann fyrir
nokkrum stirðleika í liðum.
Þá er indæl æskan frá,
eykst nú lífsins mæða.
Á mér tökum er að ná
ellikellan skæða.
Sjödægra Jóhannesar úr Kötlum
kom út 1955. Ég var þá í Mennta-
skólanum á Akureyri og við Ari
Jósefsson hrifumst mjög af bókinni
þótt vísurnar stæðu ekki í hljóð-
stöfum. „Ferskeytlur“ fórum við
með í tíma og ótíma:
Rennur gegnum hjarta mitt
blóðsins heita elfur:
upp í strauminn bylta sér
kaldir sorgarfiskar.
Út um tálknin japla þeir
þungum svörtum kvörnum
þar til eins og kolabotn
undir niðri verður.
Sit ég við hið rauða fljót
– stari niðrí djúpið
þar sem Gleði dóttir mínm
liggur nár í myrkri.
Annars var Ari snjall hagyrð-
ingur, þegar þannig lá á honum, og
kunni Þorstein Erlingsson meira og
minna utan bókar. Við ortum sam-
an „Mansöng úr rímum 20. aldar“.
Þar stendur:
Kærleiksbrímann kveikir þrá
kvunndagsgríman víkur frá;
einn ég hími inná krá
er að ríma ljóðin smá.
Ég fór upp í Biskupstungur á
þriðjudaginn. Ekki gat hjá því farið
að þessi vísa rifjaðist upp á leiðinni:
Lúpínan á fótum frá
fer á milli landanna.
Gul og rauð og græn og blá
hún gengur yfir sandana.
Hjá gráum steini gægist strá
og gróður allra handana.
Og þessi eftir Sturlu Friðriksson:
Nú hrjá okkur vonleysis vandræðin
við það, hve breytast öll landgæðin,
þar sem búfé var beitt
er nú blágrýti eitt
og búið að lúpína öll sandsvæðin.
Hér er limra eftir Jóhann S.
Hannesson:
Að uppruna erum við norsk,
að innræti meinleg og sposk,
en langt fram í ættir
minna útlit og hættir
á ýsu og steinbít og þorsk.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr Sjödægru og
lúpínuvæðingin E60
Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á
áklæði og grind.
Sérsmíðum allt eftir
pöntunum.
Stóll E60 orginal kr. 44.100
Retro borð 90 cm kr. 156.200
(eins og á mynd)
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is