Skólavarðan - 2021, Side 6

Skólavarðan - 2021, Side 6
6 SKÓLAVARÐAN VOR 2021 KENNARASAMBANDIÐ / Fréttir Fyrstu nemendur Menntavísindasviðs Háskóla Íslands með MT-próf í kennaranámi útskrifuð- ust í febrúar. Um er að ræða 120 eininga meist- arapróf til kennsluréttinda þar sem nemendur taka námskeið til 30 eininga í stað þess að vinna jafnstórt lokaverkefni. Í hinum fyrsta útskriftarhópi er m.a. Guð- mundur Lárus Guðmundsson og á vef háskólans er rætt við hann um námið. „Ég var byrjaður á meistararitgerð en átti erfitt með að tengja við hana. Að eiga kost á að dýpka þekkingu sína með því að taka námskeið í stað ritgerðar finnst mér hafa gefið mér mikið. Þegar nemandi er þátttakandi í námskeiði þá ræðir maður náms- efnið við aðra og sér fleiri hliðar á málunum. Þetta er að mínu mati mjög mikilvæg viðbót við kennaranámið því ég hugsa að það séu margir í svipuðum sporum og ég. Efnið sem ég var kominn með í ritgerðina fór samt ekki til spillis því ég gat nýtt það í ýmis verkefni. Ég mæli heilshugar með MT-námsleiðum því þær skapa tækifæri á aukinni kunnáttu á þeim sviðum sem kennarar telja að komi þeim vel í starfi.“ Guðmundur hefur síðustu tvö ár starfað sem umsjónarkennari í Háteigsskóla og nálgast hann kennsluna með aðferðum leiðsagnarnáms, en sú kennsluaðferð er mikið notuð í skólanum. Hann sjálfur átti ekki farsæla skólagöngu og varð það einmitt til þess að hafa áhrif á starfsvalið. „Ég var ákaflega rólegur nemandi með ógreinda lesblindu. Ég týndist í hópnum og fékk ekki þann stuðning sem ég þurfti. Upplifun mín af grunnskólaárunum hafði mikil áhrif á val mitt á kennaranámi. Mig langaði að geta tekið þátt í því að styðja við börn á skólagöngunni, leggja mitt af mörkum við að halda utan um nemendur sem eiga í erfiðleikum og passa umfram allt að enginn gleymist. Öll börn geta lært en það er undir okkur komið að hvetja þau til dáða og vera þeim góðar fyrirmyndir. Þótt skólaganga mín hafi verið þyrnum stráð þá gafst ég ekki upp og hélt áfram námi. Mín lexía, sem ég tek með mér í kennslu til nemenda minna, er að láta aldrei deigan síga þótt vindar blási,“ segir Guðmundur. Guðmundur gefur góð ráð til nýútskrifaðra kennara á vef háskólans. „Það er eðlilegt að fyrsta árið í kennslu sé krefjandi og það er ótrúlega mikið sem þarf að taka inn. Engir tveir dagar eru eins og það gerir það að verkum að ég mæti til vinnunnar fullur tilhlökkunar alla daga. Ekki hika við að fá aðstoð frá samstarfsfólki varðandi kennslu, samskipti og starfið. Ég elska starfið mitt, vinnustaðinn minn, nemendur mína og samstarfsfólkið mitt því í vinnunni er ég bara ég sjálfur og allir leyfa mér að vera það. Þetta kann að hljóma klisjukennt en að fara í kennaranám er besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu,“ segir Guðmundur Lárus Guðmundsson kennari. „Ég mæli heilshugar með MT-námsleiðum því þær skapa tækifæri á aukinni kunnáttu á þeim sviðum sem kennarar telja að komi þeim vel í starfi.“ Fyrstu kennararnir með MT-gráðu útskrifaðir Guðmundur Lárus Guðmundsson, nýútskrifaður kennari frá Háskóla Íslands. MYND/KRISTINN INGVARSSON KÍ leiðir NLS þetta árið Formennska í Norrænu kennarasam- tökunum, NLS, er á borði Kennara- sambandsins þetta árið. Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, gegnir embætti formanns NLS. NLS er samstarfsvettvangur norrænna stéttarfélaga kennara á öllum skólastigum. Innan vébanda NLS eru sautján stéttarfélög með um 600 þúsund félaga í Danmörku, Færeyjum, Íslandi, Finnlandi, Grænlandi, Noregi og Svíþjóð. Eitt meginhlutverk samtakanna er að stuðla að þróun skólamála og auka vegsemd kennarastarfsins í samfé- laginu. Árlegu sumarnámskeiði NLS sem halda átti hérlendis á sumri komanda hefur verið frestað um eitt ár en því var einnig frestað á síðasta ári. Ástæðan er að sjálfsögðu COVID-19. Fyrirhugað er hins vegar rafrænt málþing um tengsl kennarafélaga og rannsókna á skólastarfi. Auk þess er fyrirhugað að halda fundi í „sektoradeildum NLS“ næsta haust. Nýjungar hjá Orlofssjóði Orlofssjóður KÍ hefur fest kaup á íbúðum við Hafnarstræti á Akureyri og í gamla gagnfræðaskólanum á Siglufirði. Sú breyting hefur orðið í Reykjavík að nú á Orlofssjóður tíu íbúða hús við Vörðuleiti en húsin tvö, sem margir félagsmenn þekkja, við Sóleyjargötu hafa verið seld. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein formanns Orlofs- sjóðs, Samúels Arnar Erlingssonar á síðu 34. „OKÍ stefnir nú á að fjárfesta í íbúðum í þéttbýliskjörnum í sem flestum landshlutum og sækist eftir skiptileigu og samvinnu við aðra sjóði til að auka fjölbreytni. Þá er hafin mark- viss vinna við að undirbúa byggingu nýrra húsa á lóðum sjóðsins á orlofs- svæðunum við Flúðir, þar sem þrjú ný hús voru tekin í notkun fyrir hálfu öðru ári,“ skrifar Samúel jafnframt í grein sinni. Sjá síður 32, 33 og 34.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.