Skólavarðan - 2021, Page 7
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 7
Fréttir / KENNARASAMBANDIÐ
Aukaþingi KÍ frestað –
þingað aftur í apríl
Kennarasamband Íslands
efndi til aukaþings dagana 26.
og 27. nóvember 2020. Efnt
var til aukaþingsins í samræmi
við samþykkt sem var gerð á
7. þingi KÍ sem fram fór í apríl
2018. Þar segir að skipa skuli
milliþinganefnd sem hafi það
hlutverk að fara yfir og endur-
skoða skipulag, starfsemi og
rekstur KÍ. Milliþinganefnd
var skipuð að loknu þinginu
2018 og skilaði hún skýrslu á
haustdögum 2020.
Á síðari degi aukaþings
var ákveðið að fresta þingi og
skyldi það haldið eigi síðar
en 30. apríl 2021. Tillaga um
frestun þings var lögð fram
af Ragnari Þór Péturssyni,
formanni KÍ, og hljóðaði svo:
Rafrænt aukaþing KÍ 26.-
27. nóvember samþykkir að
fresta þingstörfum og þar með
þeim dagskrárliðum sem eftir
eru. Þingi skal haldið áfram
að afloknum ársfundi KÍ eigi
síðar en 30. apríl 2021.
Vildu aukatíma til
undirbúnings
Greinargerð tillögunnar
hljóðar svo: Ítrekuð ósk hefur
komið fram á aukaþingi KÍ
um aukinn undirbúning og
umræðu þingfulltrúa vegna
tillagna milliþinganefndar
sem bárust seinna en áætlanir
stóðu til. Tillaga um að fresta
lagabreytingum til næsta
reglulegs þings var felld með
naumum meirihluta í gær
þann 26. nóvember. Ljóst er
að þingundirbúningur var
mjög misjafn í aðdraganda
þings og þótt stór hluti þings
telji sig tilbúinn í umræður
og afgreiðslu mála telur þing
rétt að gefa þeim aukinn tíma
sem þurfa. Sá tími skal nýttur
af stjórn KÍ til að stuðla að
málefnalegri umræðu með
reglulegum hætti á milli
aðildarfélaga fram að næsta
ársfundi og framhaldi þings.
Tillagan var borin
undir félagsmenn og fór
atkvæðagreiðsla þannig að
já sögðu 175, nei sögðu 20.
Niðurstaðan var afgerandi og
frestaði þingforsetinu þinginu
í kjölfarið.
Þar með lauk aukaþingi
KÍ í bili, þingi sem er sögulegt
fyrir þær sakir að slíkt þing
hefur ekki áður verið haldið
og þá fór þingið fram á netinu
sem er nýlunda en skýrist
auðvitað af COVID-19.
Framhaldsfundur
aukaþings fer fram á netinu
20. apríl, og geta félagsmenn
fylgst með framvindunni.
Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, hélt setningarávarp á Auka-
þingi. MYND/ANTON BRINK
Anna María Gunnarsdóttir gerði grein fyrir störfum skólamálaráðs á ársfundi KÍ sem fór fram sömu
daga og aukaþingið. MYND/ANTON BRINK
Kjaramolar
Félagar í FF – vissuð
þið?
X að þegar kennari er
veikur á hann að nýta orkuna
til að ná heilsu á ný? Hann
á ekki að kenna fögin sín í
fjarfundi.
X að ef þú tekur að þér
forfallakennslu sem stendur
lengur en í eina viku á að
greiða þér hana sem hlutfall
af vinnumati áfangans
en ekki einungis kenndar
kennslustundir?
X að kennari í hlutastarfi
sem tekur að sér reglubundna
viðbótarkennslu, t.d. yfir
eina önn, á að fá viðbótina
metna til starfshlutfalls til
viðbótar ráðningarhlutfalli,
en ekki greidda sem
yfirvinnu? Því fylgir aukið
hlutfall B-vinnuþáttar,
ávinnsla sumarorlofs,
aukinn veikindaréttur og
betri réttindi í Vísindasjóði
FF&FS.
Félagar í FL – vissuð
þið?
X að kennarar, háskóla-
menntaðir starfsmenn með
B. Ed í leikskólafræðum og
aðstoðarleikskólakennarar
fá metna starfsreynslu sem
ófaglærðir starfsmenn í
leikskólum? Einu skilyrðin
eru að hafa verið að lágmarki
í 50% starfi sem ófaglærður
starfsmaður og að skila inn
starfsvottorðum.
X að eftir 20 ára starf sem
kennari þá áttu að hækka um
einn launaflokk og færð þá
sjö flokka vegna reynslu.
Fyrir alla félagsmenn –
vissuð þið?
X að nú eiga allir félags-
menn í KÍ 30 daga orlofsrétt?
X að fæðingarorlofsréttur
er í dag 6 mánuðir á hvort
foreldri. Leyfilegt er að
framselja allt að 6 vikum til
maka.