Skólavarðan - 2021, Qupperneq 13
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 13
Birte Harksen / VIÐTAL
öðrum hefðbundnum leiðum. „Hann
náði samt furðulega mikilli útbreiðslu
í leikskólaheiminum og lög af honum
hafa líka verið spiluð í útvarpi við
og við. Nú þegar geisladiskar eru að
verða úreltir er hægt að sækja lögin af
disknum án endurgjalds á vefsvæðinu
Börn og tónlist. En ef einhver skyldi
ennþá vilja geisladisk er velkomið að
hafa samband við mig.“
Börn og tónlist
Það sem Birte er líklega þekktust fyrir
meðal leikskólakennara er vefsvæðið
hennar, Börn og tónlist eða bornogton-
list.net, sem hún stofnaði
fyrir tólf árum. Þar má
finna umfangsmikið safn
hugmynda að tónlistar-
tengdu starfi í leikskóla og
auk þess mörg lög og texta
sem Birte hefur búið til eða
þýtt. Á hverju ári bætast
margar nýjar síður við vefinn
enda hætta hugmyndirnar
ekki að flæða og hún hefur
gaman af því að lýsa þeim og
gera aðgengilegar, bæði fyrir
sjálfa sig og aðra í leit að
innblæstri.
„Ég hélt upphaflega að
þetta yrði síða þar sem fleiri
myndu setja inn hugmyndir
en það varð ekki raunin,“
segir Birte. „Þó hefur fólk
frá öðrum leikskólum stundum sent
mér hugmyndir og ég gert síðu um þær.
Stundum hef ég jafnvel farið í leikskól-
ann þeirra og tekið upp myndskeið
þar.“
Þegar Birte stofnaði síðuna var
hún ákveðin í því að hún ætti ekki bara
að vera textasafn heldur ætti að lýsa
því hvernig hægt væri að vinna með lög
og texta til að dýpka skilning barnanna
og auka þátttöku þeirra. Birte segir að
málörvun sé mjög ríkur þáttur í því
hvernig hún hagar tónlistarstarfinu,
enda er það greinilegt þegar vefurinn er
skoðaður. Þar er einnig að finna margs
konar hugmyndir um hvernig hægt er
að vinna með tónlist á fjölbreyttan hátt,
t.d. með hljóðfærum og hreyfingu. Þess
vegna eru á vefsvæðinu flokkar á borð
við „hljóðfæri og hljóðgjafar“, „hreyfing,
dans og leikir“ og „lög í samhengi.“
Birte segir hins vegar að flokkurinn
„fjölþjóðlegt“ sé í algeru uppáhaldi
því henni finnst svo gaman að læra
lög á erlendum tungumálum. „Ég gríp
alltaf tækifærið þegar nýtt barn með
erlendan bakgrunn kemur í leikskólann
og bið þá foreldrana um að kenna
mér barnalag eða vögguvísu á þeirra
tungumáli. Síðan æfi ég og æfi þangað
til ég er búin að leggja það á minnið og
oftar en ekki kenni ég öllum börnum
á deildinni að syngja lagið líka.“ Birte
nefnir sem dæmi að í haust hafi börnin
sungið saman barnalag frá Litháen sem
heitir Du gaideliai. „Þetta varð rosalega
vinsælt á deildinni. Börnin sungu
lagið öllum stundum, bæði inni og úti,
og ég er viss um að margir foreldrar
voru svolítið hissa heima þangað til ég
útskýrði hvað var í gangi.“
Minnisstæðasta dæmið um erlent
lag er samt þegar leikskólinn var að
taka á móti sýrlenskum strák árið 2016
og börnin á deildinni hans æfðu sig í
að syngja fallegt friðarlag á arabísku.
„Ég hafði lært það nokkrum árum
áður af vinkonu minni og þáverandi
starfssystur, Hodu Thabet.
Við sungum lagið síðan fyrir
strákinn og foreldra hans til
að bjóða þau velkomin. Þeim
þótti mjög vænt um það og
við á Urðarhóli erum alltaf
jafn hrifin af laginu þótt við
syngjum það oftast í íslensku
þýðingunni, en þá kallast það
Dropalagið.
Það er dásamleg leið til
að brjóta ísinn þegar maður
hittir fólk af erlendum
uppruna, hvort sem það er
gegnum leikskólann eða
annars staðar, að spyrja um
móðurmál þeirra og síðan
segja að maður þekki lag
á því tungumáli – og allt í
einu er fólk svo að syngja
saman þótt það þekkist ekki neitt. Það
að syngja saman skapar gleði, traust og
tengsl.“
Vináttuverkefnið hjá Barnaheill
Þar sem Birte starfar aðeins fjóra daga
vikunnar á Urðarhóli hefur hún tíma
aflögu fyrir önnur verkefni, eins og t.d.
að halda námskeið. Eitt námskeið sem
hún hefur haldið reglulega undanfarin
ár tengist Vináttuverkefni Barnaheilla
en það er forvarnaverkefni gegn einelti
og ætlað leikskólum, fyrstu bekkjum
grunnskóla, frístundaheimilum og
dagforeldrum.
„Verkefnið er upphaflega danskt
og heitir þar Fri for mobberi. Ég sá
auglýst námskeið í Danmörku sem
fjallaði um tónlistina í verkefninu og fór
út til að taka þátt í því. Ég var svo hrifin
og fannst tónlistarefnið svo frábært“.
Í framhaldi ræddi Birte við Barnaheill
og mælti með að þau héldu sams konar
námskeið hérna á Íslandi. Þeim fannst
það góð hugmynd og niðurstaðan varð
sú að þau báðu Birte um að halda eitt
til prufu. „Það gekk mjög vel svo að
þessu var haldið áfram.“ Síðar fóru
leikskólar að biðja um að fá hana til sín
á skipulagsdögum svo að allt starfsfólk-
ið gæti tekið þátt og Birte segir að það
finnist henni sérstaklega gaman, ekki
síst af því að það er svo mikið hópefli.
Stafagaldur
Eins og áður kom fram er tónlistar-
starfið ekki það eina sem Birte hefur
unnið að og þróað í gegnum árin. Nú í
vor opnaði hún vefsvæðið Stafagaldur
(stafagaldur.net) en það er ævintýra-
legur læsisvefur fyrir leikskóla þar sem
lögð er áhersla á leikmiðaða nálgun og
hljóðkerfisstyrkjandi sögur, leiki og ým-
iss konar skapandi starf í galdraramma.
Vinnan að vefsvæðinu hlaut styrk frá
Vísindasjóði FL og FSL og Þróunarsjóði
leikskóla Kópavogs.
Vefurinn spratt af þróunarverkefni
sem Birte vann fyrir allmörgum árum,
en þar skrifaði hún stafaævintýri um
vondan galdrakarl sem alltaf stelur
einhverju mikilvægu (eins og t.d. öllu
grænmeti í G-sögunni og hljóðfærum
í H-sögunni). Aðalpersónan í sögunni
er leikskólabarn með sama upphafsstaf
sem er skrifað inn í ævintýrið og leggur
af stað til kastala galdrakarlsins til að fá
hann til að skila því aftur sem hann stal.
Á leiðinni hjálpar barnið einhverjum
sem er í vandræðum og fær töfrapoka
að launum. Með hjálp töfrapokans
getur barnið leyst þraut sem galdra-
karlinn leggur fyrir, en oftast vill hann
fá tíu hluti sem byrja á upphafsbókstaf
barnsins.
Fyrir utan þessar sögustundir
er Birte líka tvisvar í viku með
Stafagaldurs-vinnustundir handa
elstu árgöngum leikskólans. Þær eru
skipulagðar í lotum. „Það hentar mér
mjög vel að fá að vera með þetta starf í
lotuvinnu þar sem það gefur mér færi
á að vinna samfellt með ákveðinn hóp
barna í fjórar vikur. Með hverjum hópi
get ég þá þróað nýjar hugmyndir og
kynnt þær jafnóðum á vefnum. Þannig
að alveg eins og á Börn og tónlist bætast
stöðugt nýjar síður og hugmyndir inn á
Stafagaldur. Ég vona að þetta vefsvæði
hljóti góðan hljómgrunn meðal leik-
skólafólks og að sem flestir geti fundið
þar innblástur.“
Birte segir að þetta skólaár
hafi verið sérlega spennandi vegna
þróunarinnar í sambandi við Stafagald-
ur. Hún kveðst vera þakklát fyrir að
leikskólastjórinn á Urðarhóli, Sigrún
Hulda Jónsdóttir, gefi henni svo frjálsar
hendur og treysti faglegum metnaði
hennar og kunnáttu. „Fyrir eldhuga eins
og mig er það nauðsynlegt til að halda
neistanum og starfsgleðinni að finna að
maður hafi svigrúm og sveigjanleika til
að móta eigið starf.“
Leikur að bókum og Birte- og
Immustundir
Annað sem hefur viðhaldið starfs-
gleðinni hjá Birte er samstarfið við
starfssysturina Ingibjörgu Ásdísi
Sveinsdóttur, eða Immu eins og
allir kalla hana á Urðarhóli. „Þegar við
Börnin hafa þörf
fyrir að við sýnum
þeim raunverulega
nærveru og um-
hyggju og að finna
að við njótum þess
að vera með þeim.