Skólavarðan - 2021, Qupperneq 14
14 SKÓLAVARÐAN VOR 2021
VIÐTAL / Birte Harksen
Imma byrjuðum að vinna á deild saman
kom strax í ljós að við hugsuðum á mjög
svipaðan hátt og það varð okkur mikil
hvatning.“ Þær fóru að vinna saman
verkefni sem heitir Leikur að bókum
með styrk frá Kópavogsbæ. Það gat af
sér samnefnt vefsvæði (leikuradbokum.
net) sem nú er nýorðið 10 ára.
Leikur að bókum er einföld leið til
að vinna með barnabækur svo að sagan
nái djúpum tökum á börnunum því að
þau leika hana aftur og aftur. Fyrst er
bókin sögð eða lesin en síðan fer leik-
urinn af stað. Börnin velja sér hlutverk
sögupersónanna og leika söguna á sinn
hátt. Í hvert sinn sem sagan er leikin
skipta börnin um hlutverk. „Það er
alltaf gaman að sjá hvernig hver hópur
þróar söguna áfram í sína eigin átt,“
segir Birte. „Leikur að bókum er eitt
það skemmtilegasta sem ég geri því að
hér fæ ég að leika með börnunum og
tengslin sem myndast við þau eru svo
dýrmæt.“
Annað samstarfsverkefni þeirra
Immu varð til í upphafi Covid-tímabils-
ins þegar samkomubannið var sett á.
Það eru sögu- og tónlistarstundir fyrir
börn sem þær kalla Birte- og Immu-
stundir. Hingað til hafa þær gert 15
slíka þætti, og er hver með sitt þema, en
þá má finna á YouTube.
„Okkur Immu fannst svo skrýtið
að geta ekki verið í samskiptum við
Urðarhólsbörnin svona lengi, nema þau
fáu sem voru í sóttvarnahólfi okkar. Til
að halda tengslum við hin börnin, og
líka við foreldrana, fengum við þá hug-
mynd að nýta dagana þegar við þurftum
ekki að mæta í vinnu til að taka upp og
klippa þessar Birte- og Immustundir.
Það tók auðvitað mjög langan tíma en
við skemmtum okkur svo konunglega
við að gera þessa þætti að það var alveg
þess virði. Það skemmtilegasta var
líklega þegar við gerðum nornaþáttinn
þar sem við brugguðum galdraseið og
þegar við drukkum hann var ég allt í
einu komin með langt nef og Imma með
stór eyru og síðan breyttumst við í asna
og frosk.“
Áhuginn
Birte er spurð hvað henni finnist
mikilvægast í kennslu leikskólabarna.
„Leikurinn er aðalmálið. Börnin læra
best í gegnum leik, þegar þau hafa
gaman og gleyma sér, eru virk og fá að
læra á sínum eigin forsendum. Nálgun
okkar leikskólakennara verður að mínu
mati að vera miðuð við leik. Síðan
verður hver kennari að finna leið sem
passar við persónuleika hans því að það
sem er auðveld og frábær leið fyrir mig
er ekki endilega eitthvað sem hentar
öllum. Hins vegar ættu allir kennarar
með tímanum helst að verða æ meira
meðvitaðir um styrkleika sína og nota þá
til fulls.“
Birte nefnir líka tengslin sem
mikilvægan þátt í kennslu leikskóla-
barna. „Börnin hafa þörf fyrir að við
sýnum þeim raunverulega nærveru og
umhyggju og að finna að við njótum
þess að vera með þeim. Börnin sýna
mér á hverjum degi að þeim þykir vænt
um mig og ég er viss um að þau finna að
mér finnst líka vænt um þau.“
Birte er áhugasöm um starfið og
það er auðheyrt þegar hún talar um
það. „Ég er alltaf á fullu. Ég er með létt
geð; ég fæ stundum tilfinningasveiflur
og kemst í uppnám en yfirleitt get ég
vaknað fersk næsta dag. Sumir dagar
eru auðvitað erfiðir í leikskólanum og
stundum er maður búinn að nota alla
orkuna en ég er sem betur fer fljót að
hlaða aftur batteríin. Ég upplifi gleði í
samveru með börnunum og frá þeim
tengslum sem skapast. Ég er með þeim í
leik. Við speglum hvert annað. Þau brosa
og ég brosi og ég hlæ og þau hlæja.
Ég er heppin að vinna við það
sem gleður mig. Ég hugsaði með mér í
byrjun að ég myndi snúa aftur í grunn-
skólakennsluna þegar við flyttum aftur
til Danmerkur, en nú er ég leikskóla-
kennari af lífi og sál og elska þar fyrir
utan að búa á Íslandi.“
„Leikurinn er aðal-
málið. Börnin læra
best í gegnum
leik,“ segir Birte.