Skólavarðan - 2021, Side 16

Skólavarðan - 2021, Side 16
16 SKÓLAVARÐAN VOR 2021 ERLENT / Fordómar Borgþór Arngrímsson skrifar Ef danskur grunnskólakennari væri spurður hvort hægt væri að bæta við einum pilti í bekkinn fer svarið í mörgum tilvikum eftir nafni piltsins. Ef hann heitir Mathias er mun líklegra að kennarinn svari játandi en ef pilturinn heitir Yousuf. Þetta lýsir viðhorfi margra Dana til fólks af erlendum uppruna. Í byrjun október ár hvert birtir danska hagstofan nýjar tölur um íbúafjölda Danmerkur. Nýjustu tölurnar, frá október 2020, sýna að þá voru íbúar landsins, fólk með löglega búsetu, 5.8 milljónir. Af þessum fjölda voru rúmlega 14%, eða 814 þúsund, innflytjendur eða afkomendur innflytjenda. Meira en helmingur þessa hóps, 522 þúsund (8.9% íbúa landsins) á uppruna í löndum sem ekki teljast til Vesturlanda. Af einstökum þjóðernum er fólk sem á uppruna í Tyrklandi stærsti hópurinn, rúmlega 65 þúsund, næsti fjölmennasti hópurinn er af sýrlenskum uppruna, um það bil 45 þúsund, og þar á eftir fólk með uppruna í Írak, Líbanon og Pakistan. Árið 1980 var um það bil 1% íbúa Dan- merkur fólk frá löndum utan Vesturlanda en í dag er hlutfallið eins og áður sagði 8.9%. Þetta er mikil breyting á 40 árum. Mismunandi ástæður Ástæður þess að fólki af erlendum uppruna hefur fjölgað jafn mikið í Danmörku og raun ber vitni eru margar og mismunandi. Undir lok heimsstyrjaldarinnar síðari voru um það bil 238 þúsund Þjóðverjar í Danmörku. Þeir höfðu flúið Þýskaland nasismans en sneru flestir til baka eftir að stríðinu lauk; voru sem sagt flóttamenn tímabundið. Á sjötta áratug síðustu aldar, eftir innrás Sovétríkjanna í Ungverjaland, flýðu 200 þúsund Ungverjar til annarra landa. Af þessum hópi settust um það bil 1.400 að í Danmörku og fæstir þeirra sneru aftur heim. Frekar Mathias en Yousuf

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.