Skólavarðan - 2021, Side 20

Skólavarðan - 2021, Side 20
20 SKÓLAVARÐAN VOR 2021 KENNARINN / Tungumálanám S pænska er annað tungumál Hólmfríðar og hefur verið frá því hún var ung kona. Við byrjum á að spyrja hvað varð til þess að Hólmfríður fór þessa leið. „Það má segja að þetta ævintýri hafi byrjað þegar ég fór ung að árum sem sjálfboðaliði til Rómönsku Ameríku, nánar tiltekið til Kostaríku. Ég dvaldi þar í tæp þrjú ár og kom heim altalandi á spænsku. Eftir heimkomu hóf ég nám í öldungadeild MH og svo í HÍ til að sækja mér formlega menntun í spænskunni,“ segir Hólmfríður. Þegar kom að því að taka síðasta árið í háskólanum valdi Hólmfríður að fara til Argentínu, eða eins og langt í burtu og mögulegt var, til að bæta við þekkingu sína og reynslu. Dvölin í Argentínu dróst á langinn. „Þetta var á níunda áratug síðustu aldar og eftir á áttaði ég mig á að ég hafði lifað mikla umbrotatíma, bæði í Kostaríku og Argentínu. Í Mið-Ameríku var byltingunni í Níkaragva nýlokið og andspyrnuöflin, voru af mikilli einurð að reyna að brjóta ný yfirvöld á bak aftur og borgarastyrjaldir geisuðu í nágranna- löndunum El Salvador og Gvatemala. Staðan í Argentínu var líka söguleg, herforingjastjórninni hafði verið steypt af stóli og ástandið í landinu var mjög ótryggt. Mótmælafundir voru daglegt brauð, tilraunir til valdaráns voru „Tungumálanám er þroskandi, það opnar augu okkar fyrir því að ekkert er svart og hvítt heldur afstætt,“ segir Hólmfríður Garðarsdóttir. Hún er prófessor í spænsku við HÍ og hefur aðsetur í Veröld Vigdísar. MYND: ANTON BRINK Tungumál eru lykill að heiminum Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í spænsku við Hugvísindasvið Háskóla Íslands hefur helgað líf sitt tungumálanámi og kennslu. Hólmfríður tók við formennsku í Samtökum tungumálakennara (STÍL) árið 2019.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.