Skólavarðan - 2021, Qupperneq 21

Skólavarðan - 2021, Qupperneq 21
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 21 Tungumálanám / KENNARINN gerðar, háskólanum lokað og táragasi jafnvel hent inn í kennslustofur skólans,“ segir Hólmfríður og bætir við að þessi lífsreynsla hafi síðar hjálpað sér mjög við að skilja bókmenntir Rómönsku Ameríku á seinni hluta 20. aldar. „Bókmenntir urðu fljótlega mitt sérsvið og það að hafa verið á staðnum, hlustað á fólk og heyrt ótal mismunandi sjónarhorn varð styrkur þegar kom að því að skilja og miðla bókmenntum og menningu álfunnar.“ Þegar Hólmfríður sneri heim frá Argentínu lauk hún BA-prófi frá HÍ og bætti síðan við sig kennsluréttindum. Hún fór að kenna spænsku í Mennta- skólanum við Hamrahlíð auk þess að vinna hjá spænska ræðismanninum hér á landi. Á þessum árum var starfsemi STÍL orðin að veruleika, en samtökin voru stofnuð árið 1985. Hólmfríður tók á þessum árum þátt í því að koma félagi spænskukennara á laggirnar. Spænsk- unni óx ásmegin og það var hugur í kennurum auk þess sem menningar- starfsemi ýmiss konar blómstraði. Fáeinum árum síðar skipti Hólmfríður aftur um gír og skráði sig í meistaranám við háskólann í Austin í Texas. Hún hlaut Fulbright-styrk til námsins og þar sem hún hafði þegar lokið kennsluréttindanámi var henni boðin 50% kennarastaða við háskólann. Þar kenndi hún spænsku sem annað mál. „Þetta gekk allt upp en úti var gerð krafa um að ég sinnti 50% kennslu og fullu námi. Þarna lærði ég spænskuna með öðrum hætti því Bandaríkjamenn þurfa að takast á við önnur atriði tungumálsins en Íslendingar. Námsárin í Texas urðu fimm og voru bæði lærdóms- rík og ánægjuleg.“ Hólmfríður lauk bæði meistara- og doktorsprófi vestanhafs og lokaverkefni hennar fjallaði um bókmenntaverk argentínskra kvenna við árþúsundamót og mótun sjálfsmynda. Fyrstu skrefin í spænskukennslu „Ég hóf að kenna spænsku við Náms- flokka Reykjavíkur og síðar við MH. Til að byrja með stóð spænskunám og kennsla á brauðfótum enda var þetta tiltölulega ný námsgrein hér á landi. Spænskan var að ryðja sér rúms við hlið þýsku og frönsku sem þriðja tungumál í menntaskólum landsins. Spænskan varð fljótt vinsæl og á upphafsárunum vantaði menntað fólk til að kenna tungumálið. Það þurfti því að hafa uppi á þeim sem kunnu spænsku og efna til námskeiða með það að markmiði að setja saman hóp spænskukennara. Í kjölfarið fóru margir í spænskunám, sóttu sér menntun hérlendis og í spænskumælandi löndum. Vinsældir spænskunnar ruku upp á tíunda áratug síðustu aldar og héldust í ein tuttugu ár,“ segir Hólmfríður. Ástæður þess að spænskan náði svo miklum vinsældum segir Hólm- fríður vera tvíþættar. Í fyrsta lagi eigi Íslendingar frekar auðvelt með framburð tungumálsins, enda sérhljóðakerfin sambærileg. „Ef nemandi er fljótur að ná góðum tökum á framburði þá vex honum ásmegin í náminu,“ segir Hólmfríður. Hitt sem Hómfríður telur að skipti máli í þessu sambandi var aukin alþjóðavæðing í menningu og listum. Þetta kom fram í auknu framboði af tónlist, sjónvarpsþáttum og kvikmynd- um á spænsku. Margar kvikmyndir frá Spáni og Rómönsku Ameríku náðu vinsældum á þessum tíma, til dæmis kvikmyndir Pedro Almodóvars. „Þessi nýja menningarframleiðsla frá hinum spænskumælandi heimi barst hingað og kveikti bæði áhuga og forvitni margra.“ Að auki ferðaðist fólk víðar og fólki frá Rómönsku Ameríku hafði til dæmis fjölgað mjög í Bandaríkjunum og myndaði minnihlutahóp sem varð sífellt sýnilegri í bandarísku samfélagi og afþreyingarefni þaðan. Ástæða til að staldra við „Ég hef ákveðnar áhyggjur af stöðu þriðja máls og því að færri nemendur læra erlend tungumál en áður. Af þessari ástæðu finnst mér rétt að við stöldrum við og veltum upp hvort það geti verið að við séum á rangri leið með tungumála- kennsluna,“ segir Katrín Högnadóttir, þýsku- kennari við Menntaskólann á Egilsstöðum. „Ofuráhersla er á málfræðikennslu, en mín skoðun er sú að fjölbreytt sögu- og menningar- tengd kennsla ætti að vera mun fyrirferðarmeiri en raun ber vitni. Þannig tækju nemendur mögulega meira inn af fróðleik um land og þjóð og sæju í leiðinni fleiri tækifæri til að nota málið. Ég ætla auðvitað ekki að alhæfa um að þetta sé staðan alls staðar, en ég veit að víða er það staðreynd.“ Katrín segir að eftir styttingu náms til stúdentsprófs hafi efri áfangar erlendra tungumála víða dottið út. „Áður höfðu nemendur náð ákveðinni hæfni þegar þeir tóku þessa áfanga og gátu því kafað dýpra og á annan hátt ofan í fagið. Þegar það er ekki lengur möguleiki, þá fá nemendur ekki að kynnast þeirri hlið fagsins og fara því mikils á mis. Mögulega er þetta einn vinkillinn á því að nemendur velja síður erlend tungumál. Enn einn vinkillinn gæti líka verið stafræni heimurinn sem við höfum í höndunum alla daga. Við erum orðin svo vön því að geta bara flett upp því sem þarf og látið google-translate þýða það sem þarf, á því tungumáli sem þörf er á hverju sinni. Mögulega hefur þetta orðið til þess að nemendur velja ekki tungumálanám, þar sem síminn færir okkur jú það sem við biðjum hann um og hví þá að leggja á sig alla vinnuna sem því fylgir að læra nýtt tungumál? Sama hver ástæðan fyrir því er að færri velja tungumálanám nú en áður, þá finnst mér staða tungumálanáms áhyggjuefni. Vegna þess að tungumálin verða okkur nefnilega alltaf lyklar að umheiminum og öllum möguleikunum sem hann býður okkur upp á.“ Katrín er að lokum spurð hvernig hafi gengið að halda úti kennslu á tímum COVID-19. „Persónulega hefur mér fundist erfiðast að vera ekki í beinum tengslum við nemendur; að hitta þá ekki daglega í eigin persónu. Sam- skiptin eru svo óskaplega mikilvæg og gefa öllu svo miklu meiri dýpt. Einnig finnst mér áskorun að bjóða upp á fjölbreytt verkefni daglega og halda athygli og áhuga nemenda þegar hver og einn er heima hjá sér,“ segir Katrín Högnadóttir. Tungumálanám er öllum hollt og óend- anleg auðlind þekk- ingar og visku fyrir hvern og einn. Katrín Högnadóttir, þýsku- kennari við Menntaskólann á Egilsstöðum. Félagsstarf á tímum COVID-19 STÍL eru sem fyrr segir öflug landssamtök tungumálakennara. Kórónuveiran hefur haft sín áhrif á starf samtakanna eins og flest annað í samfélaginu. „Hefðbundið félagsstarf, svo sem námskeiða- og fyrirlestrahald, hefur legið niðri. Vinnustofur voru blásnar af í vetur. Að auki frestuðum við stórri alþjóðlegri ráðstefnu sem bar yfirskriftina Future of Languages, á síðasta ári. Stjórn STÍL hefur nú ákveðið að halda hana ekki fyrr en en í júní 2023. Er það gert í ljósi þess að það verður sennilega offramboð af ráðstefnum á næsta ári og því ákváðum við að bíða í þeirri von að okkar erlendu gestir geti notið þess að ferðast hingað til lands. Við horfum vongóð til framtíðar“ segir Hólmfríður.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.