Skólavarðan - 2021, Side 24

Skólavarðan - 2021, Side 24
24 SKÓLAVARÐAN VOR 2021 NÁM / Leikskólakennarar Þ að eru teikn á lofti um fjölgun leik- skólakennaranema í Háskóla Íslands. Milli áranna 2019 og 2020 fjölgaði leikskólakennaranemum umtalsvert, eða um 100% í bæði grunnnámi og meistaranámi. Nú eru rúmlega 400 nemendur í leikskólakennaranámi við Menntavísindasvið, 227 í B.Ed. námi og 190 nemendur í meistaranámi. Auk þess eru 24 nemendur í fagháskólanámi á Suðurnesjum og Suðurlandi. Samstarf um leikskólakennaranám Veturinn 2019-2020 var leikskóla- kennaranám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í sérstökum brenni- depli hjá stjórn sviðsins. Markvisst samtal hófst við sveitarfélög og skólaskrifstofur og könnun var gerð á meðal þeirra um áhuga á samstarfi um ýmsa þætti námsins. Vettvangsnám var endurskipulagt og hleypt af stokkunum þróunarverkefni sem styðja á betur við leikskólakennaranema með annað móðurmál en íslensku. Fagháskólanám fyrir starfsfólk leikskóla á Suðurnesjum og Suðurlandi hófst haustið 2020, mentorfyrirkomulag var tekið upp í náminu og stundatöflu var breytt með það í huga að efla námssamfélag leik- skólakennaranema, draga úr brottfalli og koma betur til móts við þá staðreynd að leikskólakennaranemar starfa langflestir í leikskólum, oft í nálægt 100% starfi. Á sama tíma var lögum um kennaranám breytt og svokölluð Master of Teaching-námsleið (meistaragráða án rannsóknarritgerðar) innleidd, sem hefur slegið í gegn hjá kennaranemum. Leiðarljós leikskólakennaranáms Rannsóknir sýna fram á að nemarnir eru fjölskyldufólk sem vinnur töluvert mikið með námi, oftast í leikskóla. Framvinda þeirra er hæg, brotthvarf úr námi töluvert og yfirgnæfandi meirihluti þeirra velur fjarnám sem hefur í för með sér að erfiðlega gengur að skapa námssamfélag, sem vitað er að skiptir sköpum hvað varðar ánægju og framvindu í háskólanámi. Með þessar upplýsingar í farteskinu setti námsleið í leikskólakennarafræðum fram leiðarljós:  X að vinna náið með skólaskrifstofum og leikskólavettvangnum að þróun náms og kennslu og uppbyggingu námssamfélags nemenda  X að leggja enn ríkari áherslu á vendikennslu og sveigjanlegt nám með nýtingu upplýsingatækni  X að þróa nýjar leiðir um vettvangsnám í samráði við nemendur og leikskóla  X að ráða inn hóp sam- starfskennara af vettvangi  X að vera í fararbroddi í fjölmenningarlegum kennslu- háttum  X að vinna með skólaskrif- stofum að þróun fagháskóla- náms sem víðast um landið  X að tryggja virkt náms- samfélag óháð búsetu með reglubundnum kennslu- stundum á morgnana, en þó þannig að leikskólar með marga nemendur í starfi eigi gott með að tryggja fasta afleysingu  X að dreifa vettvangsnámi yfir skólaveturinn til að gera leikskólavett- vangnum betur kleift að mæta fjarveru leikskólakennaranema með afleysingu.  X að staðbundnar námslotur verði skilvirkari og styttri og í einhverjum Háskóli Íslands Leikskólakennaranám í vexti tilvikum skoðað hvort kennarar Menntavísindasviðs geti farið í heimabyggð til kennslu nemendahópa. Fagháskólanám í leik- skólakennarafræðum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir er lektor við Menntavísinda- svið og hefur umsjón með námsleið í leikskólakennara- fræðum. Hún tók þátt í að skipuleggja Fagháskólanám í leikskólafræðum sem unnið er í nánu samstarfi við Keili og er einn af kennurum þeirra 24 nemenda sem hófu nám haustið 2020. „Þetta er frábær hópur nemenda, áhugasamur og samheldinn,“ segir Ingibjörg Ósk. En hvað er fagháskólanám? „Fagháskólanám er 60 eininga starfstengt nám á háskólastigi sem skilgreint er sem nám með vinnu. Markhópurinn er starfsfólk leikskóla sem hingað til hefur ekki stigið háskólanámsskrefið til fulls, oftast vegna þess að það uppfyllir ekki skilyrðin til þess. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem hafa langa Ég lít á þetta sem jafnréttismál líka, að stór kvennastétt fái tækifæri til að sýna fram á reynslu sína og þekkingu, eins og alkunna er í karllægari greinum, t.d. iðnnnámi.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.