Skólavarðan - 2021, Page 25

Skólavarðan - 2021, Page 25
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 25 Leikskólakennarar / NÁM reynslu, hafa lokið leikskólaliðabrú eða hafa tekið einhvern hluta af námi til stúdentsprófs. Námið er byggt upp þannig að allar teknar einingar nýtast nemendum til áframhaldandi náms til B.Ed. gráðu. Í vetur hafa 24 nemendur af Suðurnesjum og Suðurlandi stundað nám í Fagháskólanum og námið er skipulagt í nánu samstarfi við Keili. Þaðan fá nemendur námsráðgjöf og annan stuðning og þetta hefur gengið afskaplega vel, enda unnið með vettvangnum og skólaskrifstofunum, sem og háskólafélögum í heimabyggð.“ Samtal um fagið – leikskólafræði og fjölmenning Kristín Karlsdóttir, dósent í menntun- arfræðum ungra barna, er áhugamann- eskja um fjölmenningarlega kennslu- hætti innan háskóla sem og leikskóla. Hún sótti um í samfélagsverkefnasjóð HÍ og fékk styrk til að efla samtal við leikskólavettvanginn um stuðning við starfsfólk leikskóla af erlendum uppruna. „Eitt af því sem við vildum einnig þróa var aukinn stuðningur við nemendur okkar sem hafa annað heimamál en íslensku. Starfsmanna- hópur leikskóla er margbreytilegur og í náminu okkar höfum við talsverða reynslu af því að koma til móts við þarfir nemenda sem hafa annað móðurmál. En við höfum ekki boðið þeim upp á sérstakt námskeið, fyrr en nú. Ég fékk til liðs við mig fjóra frábæra menntunarfræðinga sem einnig eru af erlendum uppruna, þau Artem Ingmar Benediktsson, Renötu Emilsson Pesková, Önju Katarzynu Wozniczka og Susan Rafik Hama. Við byrjuðum með tilraunaverkefni haustið 2020 en frá síðustu áramótum er í boði fyrir alla leikskólakennaranema að velja 5 eininga námskeið sem heitir Samtal um fagið – leikskólafræði og fjölmenning. Við fengum svo til liðs við okkur Önnu Magneu Hreinsdóttur, aðjúnkt í leikskólafræðum, og sendum öllum skólaskrifstofum um land allt bréf þar sem við bjóðum upp á samtal um leik- skólakennaranámið. Viðbrögðin hafa vægast sagt verið góð, og það er mikil eftirspurn eftir því að kynnast náminu og áherslum þess. Samtalið nýtist einnig á báða bóga og er ekki síður gagnlegt fyrir okkur á Menntavísinda- sviði þar sem aukin innsýn í aðstæður á hverjum stað hjálpar til við að finna lausnir við hæfi, m.a. til að þróa námið í takt við þarfir samfélagsins.“ Raunfærnimat í leikskólakennara- námi Stefna Háskóla Íslands er að þróa raunfærnimat á háskólastigi og undir- búningur þess er hafinn. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, segir að skýrt hafi komið fram í samtali sviðsins við leikskólavettvanginn að fólk með mikla starfsreynslu úr leikskólum ætti að fá notið reynslu sinnar þegar kæmi að háskólanámi í leikskólafræð- um. „Það mælir mjög margt með því að fyrsta námsleiðin innan háskólans sem þrói og taki upp raunfærnimat sé leikskólakennaranámið. Nem- endur okkar búa margir yfir mikilli starfsreynslu, jafnvel stjórnunarreynslu sem deildarstjórar um árabil. Leikskóla- kennarar telja einungis um þriðjung alls starfsfólks leikskóla hér á landi; þetta er alvarleg staða og brýnt að fjölga þeim sem velja leikskólakennaranám.“ „Dæmi er um starfsfólk sem valið hefur leikskólann sem lífstíðarstarfs- vettvang, en uppfyllir ekki inntökuskil- yrði í háskólanám eða veigrar sér hrein- lega við því að takast á við fimm ára háskólanám frá byrjunarreit. Þetta er mikið réttlætismál, að meta reynsluna með einhverju móti þegar reynslumikill leikskólastarfsmaður ákveður að hefja nám í leikskólakennarafræðum. Ég lít á þetta sem jafnréttismál líka, að stór kvennastétt fái tækifæri til að sýna fram á reynslu sína og þekkingu, eins og alkunna er í karllægari greinum, t.d. iðnnámi. Stefnt er að því að tilrauna- verkefni geti hafist á næsta skólaári en þetta er risavaxið verkefni og verður unnið í nánu samstarfi við námsleið í leikskólakennarafræðum, kennslusvið háskólans, Fræðslumiðstöð atvinnu- lífsins og Félag leikskólakennara,“ segir Kolbrún. Að færa út landamæri þekkingar Námsleið í leikskólakennarafræðum fékk fjögurra milljóna króna styrk úr kennslumálasjóði Háskóla Íslands fyrir veturinn 2020-2021 til að styrkja vett- vangsnám og samtal við leikskólavett- vanginn. Svava Björg Mörk, aðjúnkt og doktorsnemi, er ein af þeim sem leiðir þetta mikilvæga verkefni sem miðar að því að stórefla samstarf háskóla – og leikskólakennara um leiðsögn leikskóla- kennaranema. „Við viljum færa út landamæri þekkingar, ýta undir þróun okkar eigin kennsluhátta og kennslumenningar, hanna nýtt verklag og virkja nýja þekkingu í bæði leik- og háskólum sem vinna saman. Það er stundum talað um „þriðja svæðið“ í kennaramenntun, þar sem leiðsagnarkennarar í leikskólum, kennaranemar og við sem kennum kennaranemum sköpum saman nýja þekkingu. Þetta er alveg sérstaklega mikilvægt í leikskólakennaranáminu því nemarnir okkar eru margir hverjir kjölfestustarfsfólk leikskólanna nú þegar, en ekki síður er mikilvægt að tengjast vettvangi af enn meiri krafti þegar fimmta árið í kennaranáminu er orðið 50% starfsnám.“ Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, lekt- or við Menntavísindasvið, segir að nú um mundir eigi námsleiðin aftur samtal við sveitarfélögin um námið: „Það er mikilvægt að meta reynsluna af þessum breytingum og hlusta á raddir nemenda og vettvangs. Það verður alltaf áskorun að þróa nám með starfi og samtalið er mikilvægt í þeim efnum.” Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavís- indasviðs, Kristín Karlsdóttir, dósent í menntunar- fræðum ungra barna, Ingibjörg Ósk Sigurðar- dóttir, lektor við Menntavísindasvið, og Svava Björg Mörk, aðjúnkt og doktorsnemi

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.