Skólavarðan - 2021, Side 30
30 SKÓLAVARÐAN VOR 2021
KENNARASAMBANDIÐ / Rannsóknir
D rög að nýrri
menntastefnu
liggja nú fyrir
í samráðsgátt
stjórnvalda.
Mjög mikilvægt
er að þegar kemur að umræðum um
slíka stefnu hafi kennarar skýra sýn
varðandi tilgang menntunar. Ekki er
síður mikilvægt að þeir geti sjálfir mót-
að sér stefnu, byggða á ákveðinni sýn.
Átök um hverjir eigi að ráða þróun
skólastarfs eru ekki ný af nálinni;
hvort það séu fræðimenn í háskólum
eða kennararnir sjálfir. Síðustu 50 ár
eða svo hefur kennaramenntun breyst
mikið, rannsóknir á skólastarfi aukist
og stjórnvöld leggja sífellt meiri áherslu
á hvað þurfi að rannsaka. Það er því
aðkallandi að kennarastéttin sjálf standi
fyrir þróun þekkingar. Eins eru gerðar
vaxandi kröfur til kennarasamtaka um
að rökstyðja skoðanir og stefnur með
því að byggja á rannsóknum. Þessu
hafa erlend systursamtök okkar svarað
með því að leggja sífellt meiri áherslu
á hinn faglega þátt í starfi kennarans
og kennarasamtaka, sem og á samstarf
kennara og fræðimanna um þróun
skólastarfs.
Stofnun sjóðsins í samræmi við
skólastefnu
Á síðasta þingi KÍ vorið 2018 var
eftir nokkra stefnumótun árin á undan
samþykkt að stofna Rannsóknasjóð KÍ.
Það var gert til að fjármagna rannsóknir
sem taka mið af stéttinni sjálfri og
leggja áherslu á viðfangsefni sem
spretta upp úr daglegri önn skólastarfs-
ins. Stofnun þessa sjóðs var í samræmi
við þá skólastefnu sem þá var mörkuð
um að efla þyrfti rannsóknir á menntun
og skólastarfi og auka þátttöku félags-
manna í rannsóknum.
Með stofnun sjóðsins tók KÍ sér
stöðu sem mikilvægur samstarfsaðili
á sviði menntavísinda og sem félaga-
samtök sem leggja sitt af mörkum til
að þróa stéttina áfram. Á þinginu var
samþykkt að framlag í sjóðinn yrði
fimm milljónir króna á ári og að hann
ætti að taka til starfa í ársbyrjun 2019.
Rannsóknasjóður KÍ var síðan
stofnaður í kjölfar þingsins í samræmi
við þingsamþykktina. Markmið sjóðsins
er að veita styrki til rannsókna sem
styðja við skólastarf og dagleg störf
félagsmanna í skólum, þróa nýja
fræðiþekkingu og stuðla að auknum
gæðum í skólastarfi.
Dæmi um rannsóknir á daglegu
starfi félagsmanna í skólum gætu
verið margvíslegt samstarf, svo sem
teyma eða hópa í skólum og milli
skóla, samstarf skóla og háskóla,
starfendarannsóknir og rannsóknir
á starfsþróun, jafningjamati fag-
manna, sjálfsmati, aðstæðum nýliða,
starfstengdri leiðsögn nema og nýliða
og starfsaðstæðum í kennslu, svo eitt-
hvað sé nefnt. Rannsóknir á breytilegu
hlutverki menntunar gætu tengst
markmiðum laga um alhliða þroska
og menntun nemenda og þýðingu
menntunar fyrir börn og ungmenni
varðandi áframhaldandi menntun og
störf á vinnumarkaði. Ný viðfangsefni,
áherslur og starfsaðferðir gætu t.a.m.
verið áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar eða
COVID-19 á almenna menntun, hvernig
kennarar takast á við faglega umræðu,
endurnýjun og samþætting faggreina
eða námssviða, svo dæmi séu tekin.
Áhuginn á sjóðnum mikill
Veturinn 2018- 2019 setti stjórnin
sér reglur og viðmið um hvernig
meta skyldi umsóknir. Áherslusvið
voru byggð á reglunum. Allar þessar
upplýsingar má nálgast á heimasíðu KÍ.
Við mótun reglnanna var það haft að
leiðarljósi að allir félagsmenn gætu sótt
í sjóðinn og að tengsl verkefnanna við
kennarastarfið og vettvang væru sterk.
Sjóðstjórnin auglýsti í fyrsta sinn
eftir umsóknum vorið 2019 og bárust
48 umsóknir í sjóðinn. Heildarupphæð
umsókna var liðlega 55 milljónir.
Þann 29. maí 2019 var úthlutað
úr sjóðnum í fyrsta skipti og fengu
sex rannsóknir styrk. Rannsóknirnar
tengdust athugun á kennsluaðferðum,
innleiðingu leiðsagnarnáms bæði í
framhaldsskóla og grunnskólum, efl-
ingu nemenda með annað móðurmál en
íslensku í gegnum listsköpun í grunn-
og framhaldsskólum, rannsókn á stærð
og notkun leikrýmis í leikskólum og
starfsþróun í skapandi stærðfræði
í grunnskólum. Þessum verkefnum
er flestum lokið eða að ljúka og hafa
Rannsóknasjóður KÍ
Hvatning til að skoða skóla-
starfið með öðrum gleraugum
Rannsóknasjóður KÍ tók til starfa í byrjun árs 2019 en stofnað var til hans á þingi KÍ árið 2018. Úthlutað
hefur verið tvisvar úr sjóðnum, til alls sex rannsóknarverkefna.
Anna María
Gunnarsdóttir
Sjóðurinn í hnotskurn
Stjórn sjóðsins er að mestu skipuð fulltrúum úr
Skólamálaráði KÍ. Formaður sjóðstjórnar er Anna
María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ.
Að auki sitja í stjórninni Anna Kristín Sigurðardóttir,
prófessor við HÍ, fulltrúi háskólastigs; Alma Oddgeirs-
dóttir, fulltrúi framhaldsskólastigs; Hjördís Albertsdótt-
ir, fulltrúi grunnskólastigs; Hulda Jóhannsdóttir, fulltrúi
leikskólastigs og Ingunn Ósk Sturludóttir fyrir hönd
tónlistarskóla.
Varamenn eru: Ragnar Þór Pétursson formaður
KÍ og Guðjón H. Hauksson fyrir framhaldsskólastig,
Aðalbjörg Stefánsdóttir fyrir grunnskólastig, Sveinlaug
Sigurðardóttir fyrir leikskólastig og Sigrún Grendal
fyrir tónlistarskóla.
rannsóknirnar sjálfar eða efni um þær
verið birtar á vef Kennarasambandsins.
Þann 8. júní 2020 var úthlutað
úr sjóðnum öðru sinni. Að þessu sinni
voru umsóknir 27 og var sótt um
tæplega 30 milljónir alls.
Aftur voru sex rannsóknir styrktar
og lýkur þeim væntanlega á þessu
ári eða því næsta. Þrjár af þessum
rannsóknum tengjast skólastarfi og
COVID-19. Ein tengist starfi leið-
sagnarkennara, ein leikefni í leikskól-
um út frá kynjafræðilegu sjónarhorni og
ein áskorunum í starfsþróun kennara.
Reynsla þessara tveggja ára af
Rannsóknasjóði KÍ sýnir að á honum er
mikill áhugi og fyrir hann er mikil þörf
og hefur hann nú strax orðið til að efla
tengsl kennara við fræðavettvanginn. Á
næsta reglulega þingi KÍ árið 2022 mun
stjórn KÍ leggja fyrir greinargerð þar
sem mat er lagt á starfsemi sjóðsins og
gagnsemi hans fyrir skólastarf og störf
félagsmanna í skólum.
Íslenskt skólastarf á sér fjölmargar
hliðar og auðvitað verður það aldrei svo
að þessi litli sjóður geti styrkt allar þær
rannsóknir sem gerðar eru. En það sem
hægt er að gera með honum er mik-
ilsvert. Það er að hvetja þau sem hafa
gert kennarastarfið, þetta mikilvæga
starf, að sínu til að skoða skólastarf með
aðeins öðrum gleraugum og vera virk í
þróunarstarfi sem verður skólastarfi til
hagsbóta.