Skólavarðan - 2021, Síða 37

Skólavarðan - 2021, Síða 37
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 37 Menntamálaráðherra / VIÐTAL S kólavarðan heimsótti Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, í ráðuneytið. Fundurinn fór fram síðdegis daginn sem jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga hófst. Stærsti skjálfti dagsins mældist 5,7 á Richter og skók höfuðborgarsvæðið og Reykjanesið. Upplifun af skjálfta morgunsins og eftirköstum var eðli málsins samkvæmt fyrsta umræðuefni fundarins. En þegar sú umræða var tæmd var Lilja spurð út í fyrstu sporin í stól menntamála- ráðherra fyrir rúmum þremur árum. „Menntamálin eru stærsta efnahags- mál þjóðarinnar. Það var staðföst trú mín áður en ég kom til starfa í menntamála- ráðuneytinu og þessi trú er enn sterkari í dag, ef eitthvað er,“ segir Lilja og bætir við: „ég nálgaðist verkefnin frá ýmsum hliðum, meðal annars með því að kynna mér hvaða menntakerfi á alþjóðavísu eru í fremstu röð þegar kemur að árangri og vellíðan nem- enda. Ég skoðaði markvisst hvaða atriði einkenna menntakerfi þar sem þessi tvö atriði skora hátt. Við vitum að börnunum okkar líður frekar vel í skólanum en við höfum á sama tíma séð það þegar gengi barna í lesskilningi og náttúruvísindum er skoðað að við höfum verið að dragast aftur út; það sama á ekki við í stærðfræði,“ segir Lilja og bætir við að hún vilji öllum stund- um vita hvar við stöndum í samanburði við aðra. „Á sama tíma verðum við alltaf að vera besta útgáfan af okkur sjálfum.“ „Ég vil nýta upplýsingar frekar en að þær verði eitt allsherjar leiðarljós. Ég vil vita hvar við stöndum í samanburði við aðra og nýta þá vitneskju til að finna leiðir til að gera okkar góða menntakerfi enn betra. Það kom mér á óvart hversu lítil samhæfing er í menntakerfinu. Það er í raun auðveldara að samhæfa efna- hagskerfið en menntakerfið, en að mínu mati er menntatölfræði að minnsta kosti jafn mikilvæg og hagtölur. Kennarastarfið er mikilvægasta starfið í efnahagslegu tilliti og markmiðið á að vera að búa til jöfn tækifæri fyrir öll börn. Ef börn fá ekki við- eigandi nám og/eða stuðning þá myndast ójöfnuður, sem leiðir til óstöðugleika og þá er þetta orðið efnahagsmál.“ Aðgerðir til að fjölga kennurum Kennaraskortur hefur verið áhyggjuefni mörg síðustu ár. Staðreyndin er að það vantar yfir þúsund leikskólakennara til starfa og verði ekkert að gert getur farið svo að eftir áratug skorti á þriðja þúsund kennara. Lilja tekur undir þetta. „Eitt það fyrsta sem blasti við mér hér í ráðuneytinu var yfirvofandi kennaraskortur Menntamálaráðherra Verðum að vera besta útgáfan af okkur sjálfum Menntamálaráðherra hefur haft í mörg horn að líta á kjörtímabil- inu; verkefnin hafa verið ærin og svo bættist við COVID-19 með ótal úrlausnarefnum. Menntastefna hefur í fyrsta skipti verið lögð fyrir Alþingi og stefnt er að því að hún taki gildi fyrir vorið. MYNDIR ANTON BRINK Að mínu viti eiga leik- og grunnskólar að vera okkar öflugustu skólastig því þar er grunnurinn lagður að öllu sem á eftir kemur.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.