Skólavarðan - 2021, Qupperneq 42

Skólavarðan - 2021, Qupperneq 42
42 SKÓLAVARÐAN VOR 2021 NEMANDINN / Smásögur Ragna María Sverrisdóttir 10. bekk Hagaskóla.  X Umsögn dómnefndar: Þetta er sniðug furðusaga um tímaflakk. Höfundurinn hefur aflað sér góðra upplýsinga, sennilega leitað til heimildarmanna, um löngu liðna tíma því „sáravatn“ er notað á fleiður og minnst er á að ógerilsneydd mjólk sé drykkjarhæf. Lýsingar á einkennum nútímans eiga hins vegar tvímælalaust rætur að rekja til ungu kynslóðarinnar. Kennarinn mætir of seint í tíma og er upptek- inn við að mynda köttinn sinn fyrir instagram! Kötturinn er semsé áhrifavaldur sem ekki má glata fylgjendum. Skýrastur er þó munurinn milli tímabila í lýsingum á mataræði. Smáatriði frásagnarinnar standast, hvort sem lýst er fortíð eða nútíð. Sagan sýnir á skemmtilegan hátt hvernig skáldskapur- inn getur horft á nútímann í spegli fortíðarinnar, og öfugt. Það blasir við þegar þessi saga er lesin að ritlist er einstaklega menntandi og mikilvægt viðfangsefni. Plokkfiskurinn og pitsan Árið er 1950 og skólabjalla Fálkaskóla hringdi - nú voru frímínútur búnar. Þórir hljóp eins og fætur toguðu til þess að verða ekki of seinn í íslenskutíma. Hann og nokkrir vinir hans, Jónas, Marteinn og Vigfús voru vanir að sparka á milli sín bolta hvenær sem tími gafst til en aðrir krakkar voru ýmist í snú snú eða eltingaleik. Þórir, sem var nú kominn í þrettán ára bekk, hengdi úlpuna sína á snaga og gekk frá skónum sínum í anddyri skólans, líkt og allir nemendur voru vanir að gera. Skólinn var reisulegur, á tveimur hæðum með urmul skólastofa. Veggirnir voru rauðmálaðir en það leit vel út með viðarlistunum, sem voru um allt húsið. Þórir hljóp fram hjá salnum þar sem skólastjórinn, Páll, var vanur að halda ræður. Þórir var fljótur að hugsa til plokkfisksins með kartöflum sem móðir hans ætlaði að búa til í hádegismat. Þórir hlakkaði til að borða dásamlega íslenska fiskinn og ef hann væri heppinn fengi hann kannski aftur á diskinn. Þórir var svo heltekinn af hádegisverðinum að hann rétt svo náði að stinga höndunum fram svo hann félli ekki kylliflatur á tröppurnar. Hann fékk sár á olnbogann en hristi það af sér, hljóp síðasta spölinn að stofunni og settist niður í sætið sitt rétt áður en Ingunn kennari byrjaði að lesa upp. Íslenskukennarinn hóf kennslustundina: „Í dag ætlum við að vinna blaðsíður 43-47 í málfræði og ef þið náið að klára megið þið skrifa stutta smásögu. Óreglulegu sagnirnar gætu þvælst fyrir ykkur en það verður hverjum að list sem hann leikur.“ Kennarinn leit yfir bekkinn en nemendurnir voru strax byrjaðir að taka upp bækurnar og margir hverjir með bros á vör. Börnin kepptust við það að vera fyrst að klára en verkefnin voru samt sem áður vel unnin. Þá leit Ingunn til Þóris sem var kominn langt með málfræðina. Það var blóð á olnboganum hans. „Þórir minn, viltu ekki fara inn í geymslu og setja sáravatn á undina?“ Rödd hennar var ákveðin en þetta hafði ekki verið spurning. „Það skal ég gera Ingunn, en ekki sá ég hversu stórt sárið var orðið.“ Þórir stökk upp úr sætinu sínu, gekk fram á gang og hélt um olnbogann uns hann kom að geymslunni. Hann hafði aldrei áður komið inn í hana enda var hún langt frá öllum stofunum. Þórir opnaði dyrnar varlega, eins og við einhverju vondu væri að búast. Hann steig hægt inn og leit á klukkuna, hún var fjórar mínútur í ellefu. Það var bara rúmlega einn Ísabella Kristín Káradóttir 7. bekk Fossvogsskóla.  X Umsögn dómnefndar: Einfaldar frásagnir leyna stundum á sér. Þegar lesið er milli línanna fjallar þessi saga um uppreisn og þroska. Hér er sagt frá gulum stígvélum sem aðalpersónan vill ekkert af vita. Þau eru frá mömmu, og hún týnir þeim viljandi og verður að ganga heim úr skólanum í blautum sokkum. Sagan segir einnig frá skrautlegri húfu sem sama stúlka hefur mikið dálæti á, vill jafnvel hafa á höfðinu í matarboðum, og er frá pabba. Stígvélin eru gagnleg en húfan gleður. Hún „týnir“ stígvélunum viljandi en húfunni óviljandi, en verður fegin þegar þessir gripir finnast. Gagnsemi og gleði eru mikilvægir hornsteinar í lífi okkar. Gulu stígvélin sanna gildi sitt þegar þau týnast en hverfulleiki hinnar fögru húfu afhjúpast, þegar hún hverfur. Gulu stígvélin Einn dag var stelpa sem fékk gul stígvél. Hún hataði þau strax þegar hún fékk þau. Næsta dag þegar hún var að fara í skólann var rosa mikil rigning og mamma hennar lét hana fara í stígvélin. Hún sagði mömmu sinni að hana langaði það ekki en mamma hennar sagði að hún þyrfti þess. Hún labbaði í skólann og var í gulu stígvélunum sínum. Hún var alveg í mesta og á hæsta stigi að vera pirruð. Hún labbaði inn í skólann og henti stígvélunum beint upp í skóhilluna. Eftir skóladaginn faldi hún stígvélin í skólanum. Hún labbaði heim á sokkunum og var glöð með það á endanum. En að sjálfsögðu urðu sokkarnir blautir og þegar hún kom heim var mamma hennar í mjög svo vondu skapi. Mamma hennar spurði hana strax hvar stígvélin hennar væru og hún svaraði með leiðum svip að einhver hefði tekið þau. Mamma hennar svaraði með glott á andlitinu: Ertu ekki bara búin að fela þau? Stelpan svaraði döpur á svip: Nei, mamma mín, ég gerði það ekki. Mamma hennar sagðist ætla að hringja í skólann. Nei, sagði stelpan. Nei, það er engin þörf á því, ég reyni að finna þau á morgun. Þegar hún kom í skólann spurði hún kennar- ann sinn hvort hann vissi hvar gulu stígvélin hennar væru. Kennarinn svaraði að hann vissi ekki hvar þau væru. Hún spurði bestu vinkonu sína hvort hún vissi hvar þau væru. Nei, hún var ekki búin að sjá nein gul stígvél. Eftir skóladaginn fór hún á staðinn þar sem gulu stígvélin áttu að vera. Hún kíkti en þau voru ekki þar. Hún leitaði að þeim og leitaði. Hún fór á skóganginn og sá gangavörðinn sem hélt á gulu stígvélunum. Gangavörðurinn sagði að hún ætti að setja skóna í skóhilluna eins og allir aðrir en ekki skilja þá eftir einhvers staðar. Stelp- an sagðist aldrei gera það aftur. Hún labbaði heim og sagði mömmu sinni að hún hefði fundið þau. Mamma hennar sagði að hún ætti næst að fara vel með það sem hún fær. Stelpan svaraði: Já, mamma mín, ég skal gera það. Jæja, það komu jól og hún fékk tvöfalda dúskahúfu frá pabba sínum. Eftir jólamatinn og skemmtilegt kvöld fór hún að sofa. Næsta dag fór hún í skólann glöð með dúskahúfuna sína. Hún var með hana alls staðar, meira að segja inni og í matarboði en auðvitað var sagt við hana að taka hana niður. Einn daginn var hún að labba í skólann og var auðvitað með húfuna. Hún var nýbúin í útikennslu og var að labba inn og var að hengja upp útifötin sín. Þegar hún ætlaði að ná í pennaveskið sitt sá hún hvergi húfuna sína. Hún byrjaði að leita og leita. Hún fann hana ekki þannig að hún fór til ganga- varðarins og þær leituðu saman og loks fundu þær húfuna. Gangavörðurinn sagði: Ekki týna meira dóti stelpa! Stelpan labbaði heim og valhoppaði af gleði yfir að hafa endurheimt dúskahúfuna sína.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.