Skólavarðan - 2021, Síða 43

Skólavarðan - 2021, Síða 43
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 43 Smásögur / NEMANDINN klukkutími í hádegismat. Hann kveikti á ljósinu og hófst handa að leita að sáravatninu. Litla geymslan var full af öllum þeim hlutum sem enginn vissi almennilega hvað gera ætti við eins og aukabókum, klósettpappír og gögnum fyrri ára. Eftir tveggja mínútna leit finnur Þórir sáravatnið og bómull. Hann hellir smá vökva á bómullina og þurrkar yfir sárið. Þetta er afar vont, hugsar Þórir með sér, en ég mun lifa af. Skyndilega lokast dyrnar með látum. Þórir reynir allt sem hann getur til að opna þær, en hann getur það ekki. Klukkan slær ellefu. Þá titrar herbergið og Þórir heldur fast í hurðarhúninn, svo hann detti ekki. Eftir hálfa mínútu hættir skjálftinn. Hann reynir aftur að opna dyrnar og það tekst! Ekki varði gleðin lengi. Þórir gekk út um dyrnar en þær lokuðust á eftir honum. Hann reyndi að opna þær en þær voru læstar. Þá leit hann í kringum sig og vissi að ekki væri allt eins og það ætti að vera. Veggirnir voru ekki lengur rauðir heldur gráir og trélistarnir voru hvergi sjáanlegir. Á gólfinu voru plastumbúðir og matarleifar. Þóri fannst sérkennilegt að það væri matur á gólfinu. „Hvað er að gerast?“ hugsaði Þórir með sér. Þórir stóð eins og illa gerður hlutur rétt fyrir utan dyrnar að geymslunni. Enginn var á ganginum nema hann og húsvörðurinn. Eftir stutta stund heyrði Þórir rödd manns. „Hey, hvaða tíma áttu að vera í?“ Þórir svaraði hikandi: „Ég á að vera í íslenskutíma.“ Maðurinn var fljótur að svara Þóri: „Ég skal hjálpa þér að finna stofuna. Hvað, ertu í 8. bekk?“ „Ég veit það ekki alveg,“ svaraði Þórir feimnislega. „Ég er Ágúst skólastjóri.“ Áður en maðurinn gat lokið við orð sín greip Þórir fram í. „Nei, þú segir ekki satt. Páll er skólastjóri,“ sagði Þórir með hvössum tón. „Þessi var góður, Páll var skólastjóri í Fálkaskóla fyrir 70 árum.“ Þórir var grafalvarlegur á svipinn. Hvað var þessi maður að segja. Var hann ekki aðeins að spauga? „Komdu með mér í íslensku,“ sagði Ágúst glaður í bragði. Þeir gengu niður stigann þar sem voru myndir af þeim nemendum sem höfðu útskrifast - nýjasta myndin var frá 2020. Þórir varð felmtri sleginn. Nú vissi hann fyrir víst að hann hefði flakkað í tíma. Þegar þeir komu að íslenskustofunni sagði Ágúst skólastjóri Þóri að setjast í laust sæti. Kennarinn var ókominn. Þórir hikaði, hann var hræddur. Krakkarnir klæddust næstum öll einhverjum bláum buxum og peysum og bolum með einhverjum skrýtnum merkjum á en hann var sjálfur í svörtum buxum og skyrtu. Það voru líka nokkrir krakkar með litað hár, ýmist blátt eða bleikt. Þessi tíska var þveröfug við þá sem var í bekknum hans, hugsaði hann. Þórir settist niður í eina lausa sætið, við hliðina á strák sem var að stara á einhvern svartan rétthyrning með bláum skjá. Þórir starði á þetta skrýtna tæki. Hvað í heiminum var þetta? Strákurinn tók eftir undrun Þóris og tók til máls. „Átt þú ekki síma eða?“ „Nei, síma á ég ekki.“ Þórir svaraði næstum því umsvifalaust en hikaði á símaorðinu. „Hvað ertu frá einhverri eyðieyju, eða?“ „Nei.“ Þóri fannst þessi umræða frekar óþægileg. „Nei, ég er bara aðeins að djóka. Ég heiti Eldur, en þú?“ „Ég heiti Þórir. Er ekki íslenskutími?“ „Jú, en Sigmar kennari kemur alltaf seint.“ „Er það?“ spurði Þórir afar hissa. Kennararnir hans mættu alltaf á réttum tíma eða fyrr. Þórir leit í kringum sig, allir voru í þessum símum. Þá kom Sigmar kennari inn um dyragætt stofunnar haldandi á tebolla. „Afsakið krakkar, ég þurfti að fara með kettin- um mínum í gönguferð fyrir Instagramið mitt.“ Þá tók ein stelpa til orða: „Það er ekki í lagi að þú komir korteri of seint. Af hverju gast þú ekki bara farið eftir skóla?“ Já, hugsaði Þórir með sér, loksins einhver með réttu hugmyndina. „Sylvía, svona átt þú ekki að tala við kennarann þinn. Auk þess færðu ekki 55 followers á Instagram ef þú gerir ekki neitt, svo ég þarf að senda myndir af honum tvisvar á dag í hið minnsta,“ sagði hann meðan hann fékk sér sopa af teinu. Sigmar kennari fékk sér sæti við kennaraborðið og opnaði einhverja bók sem líktist þessum síma. Eftir aðeins eina mínútu var komin einhvers konar mynd á töfluna. „Ég er dálítið þreyttur í dag, eigum við ekki bara að horfa á eitthvað á Netflix?“ Krakkarnir virtust ánægðir og Sigmar setti á mynd um fótbolta. Þórir horfði á myndina með aðdáun, þetta var svo fallegt, hugsaði hann. Þetta var ólíkt því sem hann hafði nokkurn tímann séð. Eftir hálftíma stoppaði Sigmar skyndilega myndina: „Eigum við ekki bara að segja þetta gott í dag. Já, síðan verður lokapróf upp úr nafnorðum á morgun.“ Allir krakkarnir byrjuðu að standa upp og gengu út um dyrnar. Þórir elti þau og flýtti sér að spyrja Eld hvert allir væru að fara. „Við erum að fara í mat, eltu mig.“ Þeir gengu saman inn í matsal. Það hafði ekki verið matsalur í skóla Þóris og fannst honum þetta afar áhugavert. Kannski myndi hann fá plokkfisk, fiskibollur eða kjötsúpu, hugsaði Þórir með sér. Sú var ekki raunin. Í matinn var einhver skrýtinn rauður og gulur þríhyrningur með skinku á. Þórir fékk sér eina sneið af þessum þríhyrningi og settist á borð með Eldi, Sylvíu og nokkrum öðrum krökkum úr bekknum. Þau hétu Ásgeir, Lísa og Vigfús. Þóri fannst Vigfús vera líkur vini sínum sem hann var vanur að spila fótbolta með. „Hvað heitir afi þinn?“ „Ha?“ Vigfúsi fannst spurningin frekar skrýtin. Það var þögn á borðinu í dágóðan tíma eftir spurningu hans en síðan tók Þórir aftur til máls. „Hvað er það sem við erum að snæða?“ „Hvað, hefur þú aldrei borðað pitsu áður, Þórsi?“ spurði Eldur hlæjandi. „Það er Þórir og ekki kannast ég við pitsu-orðið.“ „En hvað með flatböku, hefurðu heyrt af henni?“ spurði Sylvía en varð furðu lostin þegar Þórir neitaði. Þórir rauf þögnina: „Lísa, af hverju ertu ekki með pitsu?“ Lísa var fljót að svara: „Ég er vegan.“ „Hvað er það?“ Þórir var enn og aftur ringlaður. „Ég borða ekki neinar afurðir af dýrum.“ Lísa svaraði ákveðnislega. „Færðu þá aldrei plokkfisk eða ógerilsneydda mjólk?“ „Nei, ég fæ mér aldrei plokkfisk, en hvað í heiminum er óger- ilsneydd mjólk?“ „Ja, það er mjólkin sem þú færð í sveitinni. Æi, sú sem ekki hefur verið unnið úr.“ Hinum á borðinu fannst þetta ógeðslegt og svipbrigði þeirra földu það ekki. „Þú veist ekki hvað símar eru og vegan. Annaðhvort ertu að rugla í okkur eða þú ert bara frá einhverri annarri plánetu!“ Hvernig átti Þórir að útskýra aðstöðuna sem hann var í? Hann var ekki frá annarri plánetu en honum fannst þessi pláneta samt vera allt önnur en sú sem hann hafði lifað á. Áður en hann náði að segja eitthvað tók Eldur til orða: „Þú ert örugglega frá svona 1930 og fórst í einhverja tímavél eins og í öllum þessum bíómyndum.“ Allir á borðinu hlógu fyrir utan Þóri. „1950,“ sagði Þórir. „Árið var 1950, ég var í þrettán ára bekk. Ég fékk sár á olnbogann og var að leita að sáravatni inni í geymslu. Það var einhvers konar titringur í geymslunni og þegar ég gekk út úr henni var allt breytt.“ Rödd Þóris var grafalvarleg. Það var þögn á borðinu. „Ég er með nokkrar spurningar um þetta. Fyrst, hvað í heiminum er sáravatn?“ Þórir var fljótur að útskýra fyrir Eldi hvað sáravatn væri. „Í öðru lagi, varstu í Fálkaskóla?“ „Já, það var ég. Skólinn var samt allt öðruvísi, bæði byggingin og kennslan. Hún var máluð rauð Þórir var svo heltek- inn af hádegisverðin- um að hann rétt svo náði að stinga höndunum fram svo hann félli ekki kylli- flatur á tröppurnar.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.