Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 44

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 44
44 SKÓLAVARÐAN VOR 2021 NEMANDINN / Smásögur með viðarlista og kennararnir voru afskaplega strangir. Við vorum líka að læra um sagnir í íslensku.“ „Ég verð að fá að vita meira, en núna er stærðfræðitími. Það get ég sagt þér að Sigurður stærðfræðikennari er geggjað strangur.“ Eldur sagði síðustu orðin meðan hann stóð upp. Unglingarnir gengu frá diskunum sínum. Þórir hafði klárað alla pitsuna og þótti hún mjög gómsæt. Hún var allt öðruvísi en fiskurinn, súpurnar og kjötið sem hann var vanur. Best var samt pitsasósan, hugsaði hann, hún var úr ferskum tómötum. Unglingarnir gengu að stærð- fræðistofunni. Þau mættu á slaginu í tímann og voru fljót að setjast niður. Eldur settist við hliðina á Þóri en þeir sátu aftast. Eldur vildi nefnilega geta spurt Þóri að spurningum en það væri erfitt með Sigurð stranga, eins og hann var kallaður, sem kennara. Sigurður strangi var fljótur að taka eftir að nýr nemandi væri í bekknum og gekk til Þóris með handfylli af stærðfræðibókum. „Sæll, ég heiti Sigurður. Hér er ein reikningsbók og hér eru stærðfræðibækurnar sem við erum búin að reikna í ár.“ Þetta voru fjórar þykkar bækur sem voru fullar af hinum ýmsu stærðfræðidæmum frá rúmfræði til algebru, hugarreikningi til líkindareiknings. Þóri leist ekki vel á þetta. Þótt hann hefði alltaf lagt sig fram í náminu og staðið sig sómasam- lega, var stærðfræði varla hans besta fag. Þórir byrjaði að reikna á sama stað og Eldur var á. Þetta var níðþungt algebrudæmi með fullt af svigum og mínusum. Það tók Þóri næstum korter að leysa dæmið en ekki hjálpaði til að Eldur kom með hverja spurninguna á fætur annarri um ýmsa hluti. Þegar stærðfræðitíminn var búinn hélt bekkurinn að dönskustofunni. Dönskukennarinn var veikur svo þau fengu gat í síðasta tíma. Eldur og Sylvía vildu endilega sjá hvar geymslan var. Þórir leiddi þau þangað en Eldur sagði: „Er þetta þá heimsfræga geymslan?“ Þórir kinkaði kolli og reyndi að opna geymsluna en hún var læst. Því mátti búast við, hugsaði Þórir með sér. En hvernig ætti hann að komast til baka, til 1950, þar sem hann gæti hitt vini sína aftur. Eldur bauð Þóri að gista hjá sér í nótt en þeir í sameiningu með Sylvíu gætu komið með áætlun. Þegar þau komu heim til Elds spurði Þórir: „Heldur þú að móðir þín leyfi mér að gista hér í nótt?“ „Ég held ekki, við munum þurfa að fela þig í kjallaranum og gefa þér frosnar vöfflur í öll mál.“ Þórir varð óttasleginn en Eldur sá það. „Nei, ég var bara að grínast, mamma mín mun pottþétt leyfa mér það sko, hún er geggjað næs. En núna verðum við að koma með plan!“ Sylvía stakk upp á því að kannski gætu þau reynt að fá lykilinn að geymsl- unni frá Sigmari íslenskukennara. Þeim Eldi og Þóri fannst það vera góð hugmynd. Þórir vildi útfæra áætlunina meira en Sylvía stakk upp á að þau horfðu á bíómynd í staðinn. Þau sögðu Þóri að setjast í sófann í stofunni. Eldur hitaði upp poppkorn í örbylgjuofni og náði í þrjú stykki af Snickers og Sprite en á meðan setti Sylvía á mynd. Myndin sem varð fyrir valinu var Avengers Endgame. Þóri fannst myndin smá ruglingsleg en þetta var æðisleg upplifun. Auk þess voru veitingarnar unaðslegar, allt aðrar en hann var vanur að fá. Um leið og myndin var búin vildi Þórir ólmur horfa á aðra mynd, en Sylvía þurfti að fara á körfuboltaæfingu. Eldur hitaði upp pitsur fyrir þá tvo í örbylgjunni og þeir horfðu á tvær aðrar bíómyndir, Indiana Jones og Avatar. Þetta var það skemmtilegasta sem Þórir hafði nokkurn tímann gert. Þegar klukkan var orðin hálftólf, fóru þeir að hátta. Eldur lánaði Þóri náttföt en Þórir svaf á uppblásinni dýnu. Áður en Þórir sofnaði, hugsaði hann til fjölskyldu sinnar, foreldra og litlu systur. Þegar þeir vöknuðu voru þeir fljótir að klæða sig og fengu sér morgunmat. Eldur hellti Lucky Charms í tvær skálar, setti mjólk út á og rétti aðra til Þóris. Þóri fannst þetta morgunkorn svakalega gott og fékk sér þrisvar sinnum. Þeir flýttu sér síðan í skólann en fyrsti tími var samfélagsfræði. Eldur og Þórir settust hlið við hlið. Eldur var að kenna Þóri á einn af mörgu tölvuleikjunum á símanum hans þegar Jóna kennari kom inn. „Við ætlum að læra um fræga Íslendinga á 20. öldinni í þessari lotu. Í þessum tíma ætlum við að læra um Halldór Laxness. Hann var rithöfundur sem vann Nóbelsverðlaunin árið 1955.“ Um leið og síðustu orð Jónu fóru af vörum hennar öskraði Þórir afar hátt: „Í alvörunni?“ Allir hlógu að honum og þótti Þóri það vandræðalegt. Þórir talaði ekki meira í tímanum eftir þetta atvik en hlustaði með aðdáun á kennarann tala um rithöfundinn mikla. Eftir að tíminn var búinn gengu þeir í íslenskutíma. Á leiðinni þangað kom Sylvía upp að Þóri: „Það var gaman að kynnast þér, Þórir.“ Þórir svaraði henni og hún gaf honum fimmu. Allir nemendurnir fengu sér sæti og fimm mínútum síðar kom Sigmar íslenskukennari inn með köttinn sinn. Hann lagði frá sér stafla af prófum, sem var mjög þykkur, á kennaraborðið og setti líka frá sér aðra hluti eins og lyklana. Kötturinn hljóp um út um allt. Þá fékk Sylvía skyndilega hnerrakast. Þetta var ekki hluti af áætluninni, hugs- aði Þórir með sér, en þetta myndi virka. Hann þakkaði Eldi fyrir alla hjálpina. Sylvía hnerraði í sífellu og köttur- inn hljóp um trylltur og klóraði marga nemendur. Þá var tækifæri fyrir Þóri. Hann tók lyklana og náði að hlaupa út úr stofunni rétt áður en kötturinn hefði stungið sínum beittu klóm í hann. Þegar Þórir kom á ganginn hljóp hann eins og fætur toguðu að geymslunni. Það var enginn á ganginum fyrir utan húsvörðinn. Hann var afar gamall, að minnsta kosti á níræðisaldri, hugsaði Þórir með sér. Þegar Þórir komst að geymslunni prófaði hann alla lyklana, en enginn virkaði. Hann prófaði þá alla aftur. Kannski átti hann ekki að komast til baka, kannski voru örlög hans þannig. Það væri ekki svo slæmt. Þá kom gamli húsvörðurinn til hans, gangandi mjög hægt. Hann var með lykil í hendinni og opnaði dyrnar hægt. „Þú vilt komast til baka, því lofa ég þér.“ Gamli húsvörðurinn brosti til Þóris. Þóri fannst brosið kunnuglegt, hver gat þetta hafa verið? Þórir steig inn um dyrnar og húsvörðurinn var fljótur að loka á eftir honum. Þórir stóð inni í geymslunni hreyfingarlaus en eftir fimm mínútur byrjaði hún að titra. Sárið á olnboganum byrjaði að stinga aftur og allt í einu var hann haldandi á sáravatninu og bómullinni. Þegar titringurinn var búinn opnaði Þórir dyrnar. Það tókst! Hann sá rauðu veggina aftur og viðarlistana. Allt var eins og það átti að vera. Hann lék á alls oddi. Þrátt fyrir að margt væri gott við hinn heiminn, aðallega maturinn, var þetta hvar hann átti að vera, hugsaði Þórir með sér. Þórir hljóp inn í íslenskustofuna og þegar hann kom inn sagði Ingunn kennari: „Hvaða æsingur er á þér Þórir, sestu niður og haltu áfram með málfræðina. Ósköp varst þú nú lengi að þvo sárið, heilar tíu mínútur.“ Þórir var fljótur að svara kennaranum sínum: „Ég skal hefjast handa við málfræðina strax. Ferðin mín að þvo sárið mitt reyndist ekki vera svo slæm enda er ég með góða hugmynd að smásögu.“ „Í þessum tíma ætlum við að læra um Halldór Laxness. Hann var rithöfundur sem vann Nóbels- verðlaunin árið 1955.“ [...] Þórir talaði ekki meira í tímanum eftir þetta atvik en hlustaði með aðdáun á kennarann tala um rithöfundinn mikla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.