Skólavarðan - 2021, Qupperneq 45
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 45
Smásögur / NEMANDINN
Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir
3. bekk Menntaskólanum á
Ísafirði
X Umsögn dómnefndar: Þessi saga er
yfirveguð og hörð árás á heimskulegar
staðalímyndir sem oft eru framhalds-
skólanemum erfiðar. Þannig hefur það
verið lengi og nútíminn getur ekki hælt
sér af framförum á því sviði. Í skjóli
tæknidýrkunar og nafni frelsisástar
er afar hæpnum upplýsingum og
skilgreiningum stöðugt
miðlað til framhalds-
skólanema.
Á framhaldsskólaaldrinum
þroskast nemendur og breytast hratt og
þurfa að svara því hverjir þeir telja að
þeir séu og hvernig þeir ætli að verða. Sú
unga og skörulega aðalpersóna sem hér
er lýst berst fyrir þeim mannréttindum
að skilgreina stöðu sína sjálf. Ætli megi
ekki kalla það frelsisbaráttu?
Hver er ég eiginlega?
Í dag er í fyrsta sinn í langan tíma sem
mér líður raunverulega vel, ég er ekki
undir neinni pressu og það er ekki
verið að setja óraunhæfar kröfur á mig.
Undanfarið hef ég verið týnd, einhleyp,
einmana og eirðarlaus, já, eins og
hlaðvarpsþátturinn heitir.
En þegar fólk er í þessum
aðstæðum þá er því ávallt ráðlagt að
finna sjálft sig. Hver er ég? Ég, það er
skrítið orð. Þegar fólk spyr mig þá er
stutta svarið: ,,ég er ósköp venjuleg 17
ára stelpa”. Vill fólk vita hver áhuga-
málin mín eru ef það spyr mig? Þá gæti
ég svarað: ,,ég er ósköp venjulegur
óperusöngnemi og harmonikkuleikari
sem spilar körfubolta” en þetta er ekki
stutt lýsing á sama einstaklingnum.
Kannski væri hægt að segja frá því
sem ég geri í lífinu, þá gæti ég sagt:
,, ég er nemandi í menntaskóla og
tónlistarskóla, starfsmaður á leikskóla,
ræstingakona og körfuboltaþjálfari fyrir
börn í grunnskóla” en þarna erum við
aftur komin með svar sem er aðeins of
langt.
Þegar fólk skráir sig inn á
stefnumótasíðu þá eru þetta einu
lýsingarnar sem eru gefnar upp. Fólk
hefur ekki hugmynd um hver mín
persónueinkenni eru eða hvernig
ég lít út í raunveruleikanum. Ef ég
myndi skrifa: ,,ég er laglegasta dama
Vestfjarða, með háa greindarvísitölu
og fyndnasta manneskja sem ég þekki”
þá tel ég miklar líkur á því að einhver
ungur piparsveinn muni rakleiðis eyða
mínum aðgangi í burtu. Mér líður eins
og ég verði einhleyp að eilífu þar sem
útlit mitt þykir ekki vera aðlaðandi
og heillandi fyrir meðal Jón. Þrátt
fyrir margs konar tilraunir virðist það
ómögulegt fyrir glæsikvendið mig að
næla mér í maka, það þýðir samt ekki
að ég ætli að hætta, eða hvað?
Í dagsins amstri reyni ég að vinna
gegn staðalímyndum nútímans og geri
það með glæsibrag. Ég get sagt með
stolti að ég er ég sjálf hverja einustu
mínútu sólarhringsins, alla daga ársins.
Er það ekki afrek út af fyrir sig, að þurfa
ekki að fela sig undir einhverri grímu
til þess að reyna að þóknast einhverjum
öðrum? Ég held það allavega, en það
hefur ekki alltaf verið svoleiðis hjá mér,
ég hagaði mér eins og hundur og sleikti
upp alla í kringum mig bara til þess
að mér myndi líða eins og ég tilheyrði
hóp. Það var ekki fyrr en í 9. bekk sem
ég loksins gat tekið af mér þungar
byrðar sem gríman var, mikið var það
gott. Ég eignaðist þá loksins í fyrsta
sinn trúnaðarvini og ég byrjaði á fullu í
félagslífinu.
Tíminn fyrir 9. bekk var mjög erf-
iður fyrir mig andlega og líkamlega. Til
að byrja með er ég bogamaður eða des-
emberbarn og til þess að setja punktinn
yfir i-ið þá er ég fædd föstudaginn 13.
desember. Ef þið viljið að börnin ykkar
verði auðvelt skotmark þá myndi ég
fæða þau föstudaginn 13. desember.
Ég lærði það ekki fyrr en í síðustu viku
í sögutíma hvað raunverulega gerðist
á föstudeginum 13. og af hverju sá
dagur er talinn vera óhappadagur.
Mjög furðulegt að tengja eitthvað sem
gerðist löngu áður en Ísland var numið
við óheppni á þessum tiltekna degi. Ég
var mjög bráðþroska og var orðin stærri
en mömmur jafnaldra minna þegar ég
var í 4.bekk, var alltaf stærsta stelpan
í bekknum og örugglega háværust
líka. Mér hefur aldrei fundist ég vera
falleg, aldrei á minni 17 ára ævi, það
er rosalega langur tími. Ég hef aldrei
verið með mjóan maga og fíngert hár
eins og hinar stelpurnar í bekknum
mínum voru, þær voru allar mjög
fíngerðar og með mjúka húð, síðan stóð
ég við hliðina á þeim lítandi út eins og
mamma þeirra með barnsandlit.
Þessi líkami sem mér hefur verið
úthlutað hefur alltaf sinnt vinnunni
sinni sem líkama vel, en að vera flottur
sýnum ábyggilega aldrei. Það sem
samkomubannið gaf mér var það að ég
lærði að elska líkamann minn og þótt
mér finnist ég ekki vera falleg þá elska
ég mig samt sem áður. Það er mjög
stórt skref í því að reyna að finna út
hver maður sjálfur sé í raun og veru
að elska líkaman sinn.
Nú er ég bara að reyna að einbeita
mér að skólanum, en ég er einmitt á
mínu síðasta ári í menntaskóla, og
reyna að sinna öllum mínum áhuga-
málum sem ég taldi upp áðan en auk
þess þá skráði ég mig í allar nefndir
sem mögulega hægt var að skrá sig í
og er að vinna í því að stofna 2 nýjar
nefndir, eða réttara sagt að endurvekja
þær. Samt langar mig sjúklega mikið
í kærasta, enda eru margir jafnaldrar
mínir í sambandi.
Ég hef verið að velta fyrir mér
undanfarið, hvers vegna er ég einhleyp?
Þá byrja ég að þylja upp alls konar
hluti. Ég er kannski ekki það falleg eða
nógu mikil gella, ég er allt of hávær
og of mikil brussa, ég er fyrir ofan
meðalhæð og er í yfirþyngd samkvæmt
BMI stuðlinum. En þegar ég er búin að
brjóta mig of mikið niður og er farin að
háskæla og vil vera alein og öskra Bird
set free og Alive með Sia, þá fæ ég mig
til þess að senda á eldri systur mína
sem er mín besta vinkona. Ef ég skoða
yfir samskiptin okkar á Messenger
þá hef ég ábyggilega sent 30 sinnum
á hana: „Hæ, afhverju er ég ekki eins
falleg og hinar stelpurnar?“. Í dag hristi
ég hausinn og vill helst hitta þessa
gömlu mig og segja henni frá því hvað
ég er í alvörunni best í heimi.
Hvað með það að ég sé hávær, ég
er allavega ekki að öskra.
Hvað með það að ég sé brussa, er
ekki önnur hver manneskja klaufi og á
erfitt með fínhreyfingar?
Hvað með það að ég sé ekki mesta
gella í heimi, ég er svo skemmtileg og
klár að það jafnar það bara út.
Hvað með það að ég sé hávaxin,
það er bara ótrúlega gott að vera
hávaxinn ef maður er í körfubolta.
Hvað með það að ég standist
ekki BMI-stuðulinn, það er líka mjög
óraunhæfur stuðull og brýtur niður
stelpur á mínum aldri sem eru ekki eins
og fyrirsæturnar.
Ég er bara ótrúlega fyndin og falleg
þrátt fyrir að uppfylla ekki þessar kröfur
sem samfélagið gefur mér. Og hvað með
það þótt ég sé einhleyp, ég er allavega
ekki að falla í skólanum eða leiðast út í
fíkniefni. Auk þess held ég að ég sé búin
að finna út hver ég er.
Ég. Stelpa. Femínisti. Ísfirðingur.
Körfuboltakona. Nemandi. Söngkona.
Harmonikkuleikari. Aðgerðasinni.
Fyndin. Skemmtileg. Ákveðin. Hávaxin.
Einhleyp. Opin. Hávær. Brussa.
Gagnkynhneigð. Starfsmaður. Þjálfari.
Systir. Dóttir. Frænka. Vinkona.
Mágkona. Ég er ég.