Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 46

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 46
46 SKÓLAVARÐAN VOR 2021 KENNARASAMBANDIÐ / Vinnuumhverfismál Meta þarf í hvert sinn hve nákvæm skráning er viðhöfð og hvort allt skjalið sé notað. Réttindi starfsfólks ber að virða. Ef ekki er til skráning vegna atviks þar sem áverkar koma fram síðar getur starfsmaður tapað rétti til bóta þar sem atvikaskráning hefur sönnunargildi. Áhættumat Samkvæmt vinnuverndarlögum ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem byggð er á áhættu- mati. Stuðla þarf að öryggi allra sem í skólanum starfa. Ofbeldi og/eða hótun er áhættuþáttur í vinnuumhverfi starfsfólks skóla sem ekki má vanmeta. Gæta þarf að mörkum hvers og eins og ræða hvar mörkin liggja. Óformleg könnun vinnuumhverfisnefndar KÍ 2019 leiddi í ljós að meira en helmingur grunnskólakennara taldi sig hafa lent í ofbeldisatviki á starfsævinni. Fjöldinn er sláandi en sýnir líka mikilvægi þess að ræða hvar þessi mörk liggja. Hvað er ofbeldi og hvað eru pústrar, hvenær er munnsöfnuður orðinn að andlegu ofbeldi eða hótun? Hvenær er ráðlegt að ganga á milli og aðskilja nemendur í slag? Það gerir starfsfólk skóla umhugsunarlaust og sem betur fer, en getur hlotið skaða af. Um þetta allt þarf að myndast sameiginlegur skilningur sem gera þarf opinberan innan skólasam- félagsins alls, að foreldrum meðtöldum. Áhættumat útlistar hvar hættan er falin, gefur okkur tækifæri til að ræða áhættuþætti og undirbúa okkur bæði andlega og líkamlega til að takast á við þá með réttum hætti. Í sniðmátinu má bæði finna mat á hótunum og ofbeldi (2) og þarfagrein- ingu fyrir áhættumat (3). Starfsfólk tekur þátt í vinnslu matsins enda er starfsfólk beðið um að ræða sín á milli fjóra þætti sem snúa að atvikum. Um- ræður geta farið fram innan deilda eða á starfsmannafundum svo fá megi fram niðurstöður. Eftir hópavinnuna verður einhver að vera ábyrgur fyrir því að vinna úr niðurstöðunum svo nýta megi þær í frekari vinnu við áhættumatið. Þarfagreining fyrir áhættumat er eins konar gátlisti sem stjórnandi getur nýtt til að sjá hvert vinnan stefni og hverju sé lokið. Þetta eyðublað má draga fram reglulega í ferlinu og eftir það svo sjá megi hvað er á döfinni. Sálræn skyndihjálp Sálræn skyndihjálp hefur ekki farið hátt. Við höfum auðvitað stutt við þá sem lenda í árekstrum og hjálpað en höfum við gert það markvisst? Sálræn skyndihjálp nær til þess að vera vakandi fyrir breyttri hegðun, lesa hegðun þess hóps sem saman er kominn og aðstoða eftir þörfum. Við þurfum að vera tilbúin að koma einstaklingum út úr aðstæðum sem skapast og vita hvert á að fara. Þegar farið er í gegnum skref sálrænnar skyndihjálpar er heppilegt að skrá niður málavexti sem nýta má í atvikaskráningu. Mikilvægt er að stjórnandi sé upplýstur frá upphafi og viðbragðsáætlanir og verkferlar virkjaðir. Forvarnir Um leið og farið er að ræða þá áhættuþætti sem finnast innan skóla eru forvarnir hafnar. Meðvitundin ein skilar okkur áleiðis en ekki á leiðarenda. Mikilvægt er að allt starfsfólk skólans taki þátt í undirbúningi áhættumatsins og að unnið sé markvisst að því að bæta sálrænt öryggi starfsfólks og nemenda. Oft er talað um forvarnaátak en forvarnir verða að vera stöðugar. Átak getur jú leitt til bóta en hvað gerist þegar því er lokið? Þegar hætt er að ræða það sem bæta þarf? Meðvitund skiptir hér öllu. Á meðan allir eru vakandi fyrir þeim áhættuþáttum sem finnast og þeir eru ræddir reglulega (hér dugar kannski að setja málið á dagskrá eins til tveggja funda á ári eftir að viðbragðsáætlunin er virkjuð) þá er markmiðinu náð. Í sniðmátinu má finna leiðarvísi og tillögu að upphafi starfsmannafundar. Oft er betra að stjórnandi finni þá leið sem hentar starfsfólkinu og ekki er mælt með því að textinn sé lesinn blindandi af blaðinu (5) þar sem laga þarf hann að aðstæðum innan hvers skóla. Spurningarnar eru til viðmiðunar en markmiðið er alltaf að fá starfsfólk til að ræða áhættuþáttinn ofbeldi og hótanir. Að virkja viðbragðsáætlun og bæta sálrænt öryggi Hvar liggja mörkin? Á vef Kennara- sambandsins má finna sniðmát fyrir atvikaskrán- ingu, áhættu- mat og viðbragðsáætlun vegna ofbeldis í skólum bæði fyrir skólastjórnendur og starfsfólk í skólum. Enn fremur má finna gagnlegar upplýsingar um efnið á sama stað, sem og upplýsingar um fyrirbyggjandi aðgerðir vegna endurtekins ofbeldis. Sniðmát vegna ofbeldismála er frá 2020 og hefur mælst vel fyrir. Sniðmátið er í stöðugri endurskoðun og kom ný útgáfa á vef KÍ núna í febrúar. Stjórnendur, trúnað- armenn og allt starfsfólk skóla er hvatt til að kynna sér efnið. Mikilvægt er að skólar nýti sér verkfærin, vinni áhættumatið og virki viðbragðsáætlun. Sniðmát fyrir stjórnendur er eins og gefur að skilja aðeins yfir- gripsmeira en sniðmát fyrir starfsfólk en sömu efnisþætti er að finna í þeim báðum. Í sniðmáti fyrir starfsfólk skóla eru fjórir efnisþættir en sex í sniðmáti fyrir stjórnendur. Þeir eru: 1. Atvikaskráningarblöð 2. Undirbúningur áhættumats 3. Þarfagreining fyrir áhættumat 4. Leiðbeiningar um sálræna skyndihjálp 5. Leiðbeiningar fyrir starfsmanna- fund 6. Sniðmát að viðbragðsáætlun Atvikaskráning Atvikaskráning hefur aldrei verið mikilvægari, bæði vegna réttinda starfsfólks og í sögulegu tilliti. Skráning atvika, stórra sem smárra, þarf að vera vani innan allra skóla. Atvikaskráning er á ábyrgð stjórnanda sem getur falið öðrum utanumhald. Lögð er áhersla á að atvikaskráning sé nákvæm svo læra megi sem mest af atviki og viðbrögðum. Sigrún Birna Björnsdóttir sérfræðingur í jafnréttis- og vinnuum- hverfismálum hjá KÍ. Rannsóknir hafa sýnt að í þeim teymum þar sem ríkir sál- rænt öryggi verður til meiri þekking meðal starfsfólks, það deil- ir frekar reynslu og hugmyndum og lærir þar með frekar hvert af öðru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.