Skólavarðan - 2021, Page 47
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 47
Vinnuumhverfismál / KENNARSAMBANDIÐ
Hver skóli þarf að hafa
skýrar línur um hvar mörk
ofbeldis og hótana liggja. Mikil-
vægt er að allir, bæði starfsfólk
og nemendur, taki þátt í því að
smíða ramma utan um hugtökin
hótun og ofbeldi svo meðvitund
vakni meðal allra. Þegar allir vita
hvað er ofbeldi og hvenær hótun
er alvarleg verða mörkin skýrari.
Það hjálpar öllum þegar mörkin
eru ljós, sérstaklega börnum.
Rannsóknir á Norðurlöndunum
sýna að um leið og umræða um
hótanir og ofbeldi gegn kennur-
um fer af stað og mörk ofbeldis
eru skilgreind innan skóla,
fækkar atvikum og öryggi allra
eykst.
Viðbragðsáætlun
Viðbragðsáætlunina þarf að
virkja. Það er í valdi hvers skóla
að meta áhættuþáttinn ofbeldi
og hótanir og kynna æskileg
viðbrögð, hver gerir hvað og
hvernig. Um leið og allir vita
hvernig ber að bregðast við og
hvenær, líður öllum betur og
sálrænt öryggi eykst. Að virkja
viðbragðsáætlun merkir að fela
einhverjum umsjón með henni
og kynna hana meðal starfsfólks.
Einnig merkir það að allir vita að
til er viðbragðsáætlun og hvernig
ber að bregðast við atvikum af
þessu tagi. Fumlaus og skjót
viðbrögð geta einmitt afstýrt
þungum árekstrum. Viðbragðsá-
ætlun þarf að endurskoða árlega
enda þarf áhættumat að vera í
stöðugri þróun. Drög eða sniðmát
að viðbragðsáætlun má finna
aftast í pakkanum (6). Mikilvægt
er að vinna þetta skjal vandlega
og kynna það fyrir starfsfólki.
Sálrænt öryggi
Um leið og starfsfólk veit hvernig
ber að bregðast við þeim áhættu-
þáttum sem fyrirfinnast í skólanum
líður því betur og streita minnkar.
Sálrænt öryggi er hugtak sem hefur
verið notað í mannauðsstjórnun.
Rannsóknir hafa sýnt að í þeim
teymum þar sem ríkir sálrænt
öryggi verður til meiri þekking
meðal starfsfólks, það deilir frekar
reynslu og hugmyndum og lærir
þar með frekar hvert af öðru. Talað
hefur verið um að þekkingarmiðl-
un sé mest þar sem starfsfólk þori
að ræða mistök sín og deila þeim
þannig að allir innan hópsins geti
lært af þeim.
Oft er sálrænu öryggi ruglað
saman við traust. Í trausti felst t.d.
að treysta fagmennsku einhvers
á vinnustað en sálrænt öryggi
lýtur að því að starfsfólk segir
frá hugmyndum sínum, áliti á
úrlausnum verkefna og skoðunum
þrátt fyrir hættuna á faglegum
ágreiningi og veit að þeim er tekið
af opnum huga og þær ræddar.
Þetta má yfirfæra á vinnustaði.
Í stuttu máli eru einkenni
vinnustaðar þar sem starfsfólk
upplifir sálrænt öryggi þau að
starfsfólk er upplýst. Til eru skýrar
viðbragðsáætlanir og starfs-
lýsingar, vinnustaðurinn telst
heilbrigður og samskipti allra,
bæði stjórnenda og starfsfólks, eru
opin, einlæg og góð. Gagnkvæm
virðing ríkir og jafnrétti er sýnilegt
bæði í orði og verki. Rannsóknir
sýna að starfsánægja er meiri
á vinnustöðum þar sem ríkir
sálrænt öryggi, frammistaða betri
og fólk helgar sig frekar starfi og
vinnustað. Hér er því til mikils að
vinna.