Skólavarðan - 2021, Side 48
48 SKÓLAVARÐAN VOR 2021
RADDIR / Samstarf
N orræna tungu-
málaætlunin
Nordplus Sprog
hefur í áraraðir
eflt norrænt
samstarf í
gegnum kraft tungumála. Áætlunin
veitir kennurum tækifæri til að styrkja
tengslanetið sitt með því að hitta kollega
sína víðs vegar á Norðurlöndunum
og kynnast nýjum kennsluaðferðum.
Nemendur fá einnig kost á því að
kynnast nýrri menningu, hvort sem það
er í nyrsta hluta Noregs eða vesturströnd
Grænlands. Dönskukennarar í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð taka þátt í sam-
starfsverkefninu Unge i Nordatlanten
þar sem þeir vinna náið með dönsku-
kennurum á Grænlandi og Færeyjum.
Verkefni af slíku tagi er „nemlig“ það
sem Nordplus samstarfið snýst um.
„Maður þekkir mann“ virkar
Sif Bjarnadóttir er ein af dönsku-
kennurum MH og nýtti hún ásamt
kollegum sínum Nordplus undirbún-
ingsstyrki til að koma verkefninu af
stað. „Ferðastyrkurinn gerði okkur
kleift að koma samstarfinu af stað, en
án hans hefði ekkert orðið úr því.“
Hugmyndin að því að tengja
verkefnið milli Íslands, Færeyja og
Grænlands kom til vegna sérstaks sam-
bands þjóðanna við danska tungumálið.
„Fyrsta skrefið var að finna
samstarfsaðila og það gerðum við
með því að hafa samband við dönsku-
kennara í menntaskólum í Færeyjum
og Grænlandi, því þar er danska ekki
móðurmál nemenda og við eigum margt
sameiginlegt með þessum þjóðum. Við
fundum dönskukennara í Menntaskól-
anum í Nuuk á heimasíðu skólans sem
var strax tilbúinn í samstarf en það var
snúnara að ná sambandi við færeyskan
menntaskóla. Það tókst þó að lokum
með aðferðinni „maður þekkir mann“
og þá fengum við jákvæð svör frá
Miðnámi í Kambsdal.“
Menningarfræðsla í gegnum dag-
legt líf
Samstarfið er til tveggja ára en
hugsunin er sú að nýta danska tungu-
málið til að efla menningartengsl milli
nemendanna. En þó er nálgunin ekki
síður sú að kynnast landi, þjóð og siðum
í Færeyjum og Grænlandi. Tengingin
á milli þjóðanna hefur svo verið þróuð
enn frekar innan veggja MH. „Í áfanga
í MH sem kenndur er á 3. þrepi hafa
nemendur unnið með efni frá Færeyjum
og Grænlandi, með áherslu á Grænland.
Þeirri vinnu lýkur með ritgerð eða
smásögu þar sem þemað er sjálfsmynd,
þjóðernisvitund og hvernig tungumálið
skiptir máli í því samhengi.“
Að sögn Sifjar voru nemendur
áhugasamir að fræðast betur um
nærfrændur okkar í Grænlandi og Fær-
eyjum. Nemendur í löndunum þremur
skiptust á myndskeiðum þar sem þau
sögðu frá daglegu lífi. „Það opnar huga
þeirra og þau geta speglað sig í daglegu
lífi hinna og séð að þau eiga margt
sameiginlegt.“
Faraldsfótur á norðurslóðum
Kennarar frá Menntaskólanum í Nuuk
og framhaldsskólanum Miðnámi í
Aðsend grein
Nemendur spegla sig í
daglegu lífi annarra
Kambsdal sóttu MH heim í septem-
ber 2019 með hjálp Nordplus sprog
styrksins. „Markmiðið með samstarfinu
er að koma á og efla tengsl milli okkar
kennaranna þar sem við höfum öll sama
leiðarljósið – að bæta kunnáttu nem-
enda okkar í heimsmálinu, dönsku.“
Heimsfaraldurinn hafði sitt að
segja í þessu verkefni líkt og víðar.
„Fundir okkar á Grænlandi og Færeyj-
um féllu niður vegna ferðabanns og allir
lögðust í híði og áttu nóg með að aðlaga
sig nýjum kennsluháttum og umhverfi
sökum COVID-19.“
Þrátt fyrir það bakslag er engan
bilbug að finna á Sif og dönskukennur-
unum í MH. „Við höfum ákveðið að
fresta öllum samskiptum þar til í vor og
vonandi getum við hist skólaárið 2021-
2022. Við hlökkum til að hitta kollega
okkar á Grænlandi og í Færeyjum þegar
af því verður. Það mun líka hleypa
krafti í samstarfið því það er mjög
lærdómsríkt að kynnast skólastarfi og
skólabrag í öðrum löndum.“
Nordplus – styrkir til samstarfsverkefna
Nordplus Sprog er ein af fimm undiráætlunum
Nordplus og stuðlar að miðlun norrænna tungu-
mála á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum.
Samstarfið er einkum sniðið að dönsku, norsku
og sænsku og miðað er við að minnsta kosti tvö
þátttökulönd í hverju verkefni. Næsti umsóknar-
frestur fyrir undirbúningsstyrki er 1. október 2021.
Undirbúningsstyrkir eru hugsaðir til að auðvelda
leit að samstarfsaðilum fyrir þróun umsókna í
Nordplus fyrir næsta frest, þann 1. febrúar 2022.
Nordplus hefur einnig fleiri áætlanir á sínum
snærum og eru tækifæri fyrir öll skólastig, sem og
samstarf þvert á skólastig. Hægt er að sækja um
styrki til þróunarverkefna, samstarfsneta, ferðalaga
svo sem nemendaskipta og kennaraheimsókna,
ásamt styrkjum fyrir þjálfun nema í starfsnámi og
undirbúningsheimsókna. Yfir 5.000 Íslendingar
hafa nýtt sér styrkjanet Nordplus hingað til. Ekki
hika við að hafa samband við landsskrifstofu Nord-
plus, en teymið þar er alltaf reiðubúið til aðstoðar.
Jóhann Páll
Ástvaldsson
sérfræðingur
hjá RANNÍS
Sif Bjarnadóttir
dönskukennari
við Mennta-
skólann við
Hamrahlíð