Skólavarðan - 2021, Qupperneq 51
Sagnaarfur / SKÓLARNIR
Athugið. Léttlestrarbækur merktar með gulum lit eru fyrir byrjendur
en bækur merktar með ljósbláum lit eru fyrir lengra komna.
NÝJAR léttlestrarbækur
M.v. bekkjarsett, eru léttlestrarbækurnar á tilboðsverði 790 kr. stk.
Pantanir sendist á tölvupóstfangið pantanir@odinsauga.com.
Bókin Skjáveiran dregur
upp gamansama en
jafnframt dökka mynd
af áhrifum of mikillar
skjánotkunar. Bókin er
tæki til að ræða skjátíma
barna og mikilvægi þess
að fara út að leika sér og
tala ekki bara við vinina í
gegnum síma. Hentar vel
til að æfa lestur.
Áhugasvið barna eru ólík
og mikilvægt að í boði
séu bækur sem ýta undir
löngun þeirra til að lesa.
Þessi bók hentar börnum
sem heillast af dýrum.
Í bókinni koma fram
forvitnilegar staðreyndir
um dýr.
Undraverð dýr 2 er svo
væntanleg fljótlega.
Eva elskar hamborgara.
Svo mikið að hún
keppir um það hver
getur torgað flestum
hamborgurum. Stuttur
texti á hverri blaðsíðu
auðveldar börnum lestur
bókarinnar. Að klára
að lesa bók fyllir börn
sjálfsöryggi og stolti.
Það er mikilvægt að
ræða einelti í skólum.
Í þessari bók er beint
sjónum að vanlíðan þess
sem leggur aðra í einelti.
Bekkurinn getur lesið
bókina saman og rætt
um einelti að því loknu.
Árnastofnun stýrir verkefninu
Handritin til barnanna sem komið
var á fót í tilefni af því að í vor
verður liðin hálf öld frá því að
fyrstu miðaldahandritin komu frá
Danmörku. Hægt var að senda
inn handrit í handritasamkeppni
á vegum Árnastofnunar og voru
grunnskólanemar hvattir til
að koma hugmyndum sínum í
handrit, hvort sem um var að
ræða texta, saumaskap/hannyrðir,
myndlist eða annað. Settar voru
fram leiðbeiningar og innblástur
fyrir kennara á vef verkefnisins og
allt gert til að gera samkeppnina
spennandi og aðgengilega fyrir
nemendur.
Síðasta vetrardag, miðviku-
daginn 21. apríl 2021, verður
streymi beint úr Hörpu kl. 10, þar
sem fram fer svokölluð hand-
ritaheimkomuhátíð. Hátíðin er
hugsuð fyrir grunnskólanema og
markmiðið með henni er að „færa
börnunum handritin“ með því að
kynna fyrir þeim mesta dýrgrip-
inn, Konungsbók eddukvæða.
Hátíðin er sett saman úr ýmsum
fjörlegum atriðum þar sem þátt
taka ýmsir góðkunningjar sem
ekki hafa áður tengt sig við
miðaldaarfinn og sögur hans.
Kennarar og nemendur eru
beðnir um að taka tímann frá og
sýna nemendum streymið sem
tekur rétt innan við eina kennslu-
stund. Sama dag verða veittar
viðurkenningar fyrir framúrskar-
andi handrit frá börnum. Þau
handrit koma öll til álita sem Ung-
mennahandritið 2021 en hvaða
handrit hlýtur þá nafnbót kemur
í ljós á verðlaunahátíðinni Sögur í
byrjun júní.
Fleira verður á dagskrá
þennan síðasta vetrardag og má
þar nefna að út kemur ný barna-
og fjölskyldubók um ævi og örlög
Möðruvallabókar eftir Arndísi
Þórarinsdóttur. Hornsteinn
verður auk þess lagður að Húsi
íslenskunnar sem verður áhuga-
verður áfangastaður skólafólks í
náinni framtíð, en ráðgert er að
húsið verði opnað með sýningu og
aðstöðu fyrir almenning haustið
2023.
Handritaheimkomuhátíð
verður streymt frá Hörpu