Skólavarðan - 2021, Síða 53
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 53
Sköpun / SKÓLINN
Í Fellaskóla í Reykjavík leit
skemmtilegt verkefni dags-
ins ljós þegar listagallerí
sem ber nafnið Listafell var
opnað með viðhöfn þann
29. janúar sl. Á sýningunni
sem nú er í gangi sýna nemendur í 5.-10.
bekk verk sín úr skapandi smiðjum í
skólanum. Með galleríinu opnast nýjar
leiðir fyrir sköpunargleðina og hefur
hugmyndin verið lengi í gerjun.
„Ég hef haft þessa hugmynd í
vinnslu í langan tíma en hún náði
fyrst flugi núna þegar ráðinn var inn
deildarstjóri í sköpun og tónlist við
skólann. Þá kom inn aðili, hún Inga
Björg Stefánsdóttir deildarstjóri, sem
hafði svigrúm til að móta verkefnið og
framkvæma, en í kringum eitt gallerí
eru ófá handtök,“ segir Greta Sigríður
Guðmundsdóttir, myndmenntakennari
við Fellaskóla.
„Galleríið er hugarfóstur
og samstarfsverkefni list- og
verkgreinakennara; í textíl, hönnun
og smíði, matreiðslu og myndmennt,
og það er virkilega ánægjulegt að sjá
hvað nemendur hafa tekið þessu vel.
Við teygðum okkur niður á miðstigið og
lotum nemenda lýkur með því að verk
þeirra eru sýnd í galleríinu. Viðtökur
hafa verið virkilega góðar og jákvæðar
og nemendum finnst spennandi að sjá
verkin sín uppi á vegg eða stillt upp.“
„Þegar við opnuðum fyrstu
sýninguna þá var þetta alvöru – ávörp,
formleg opnun, borði og veitingar sem
nemendur í matreiðslu sáu um. Það er
ánægjulegt hvað list- og verkgreinar fá
aukinn sýnileika í skólastarfinu með
þessu verkefni og Listafell er komið til að
vera,“ segir Greta Sigríður.
Viðtökur hafa verið
virkilega góðar og já-
kvæðar og nemend-
um finnst spennandi
að sjá verkin sín uppi
á vegg eða stillt upp.
List- og verknám í Fellaskóla
Listafell opnar nýjar leiðir
fyrir sköpunargleðina
Myndir frá fyrstu sýningunni í Listafelli.