Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 5
Litli-Bergþór 5
Trjágróður hefur mikil áhrif á götumynd til fegrunar og skapar einnig ýmis heppilegt skilyrði með
því að skýla fyrir veðri og vindum, binda ryk og auka möguleika á útiveru. Því miður nær götumynd
þorpsins í sumum tilfellum ekki að njóta sín eins og staðan er í dag.
Sveitarfélagið ræður yfir miklu af því svæði sem þyrfti snyrtingar og grisjunar við. Nefni ég gróður
meðfram vegum, á opnum svæðum eins og til dæmis við Hverabrekku og inni á hverasvæðinu, á svæði
milli Varmagerðis og Heilsugæslunnar, svo eitthvað sé nefnt.
Nokkrir hafa tjáð sig um nauðsyn þess að hreinsa og loka skurðum milli lóða hér í þorpinu, dýr
hafa orðið sé að voða og hættulegt getur reynst börnum að fara um svæðið vegna opinna skurða. Eins
og staðan er í dag getur reynst mjög erfitt að fara í slíkar framkvæmdir á mörkum lóða vegna þess
trjágróðurs sem kominn er.
Í ljósi alls sem kemur fram hér að ofan tel ég nauðsynlegt að sveitarfélagið beiti sér fyrir því að tekið
verði á þessu máli hér í þorpinu, yfirvöld hér þurfa að draga vagninn og aðstoða lóðarhafa, til að eitthvað
verði úr framkvæmdum. Legg ég til að sveitarstjórn hafi, í samstarfi og samráði við Hagsmunafélag
Laugaráss, sem nú stendur til að stofna að nýju, samband við Skógrækt ríkisins og leiti leiða til að fá
stóran kurlara á svæðið og skipuleggi vinnu við snyrtingu, grisjun og kurlun þar sem þeim lóðarhöfum,
sem áhuga hafa, verði gert fært að breyta yfirbragði lóða sinna og þar með þorpsins alls með sem
minnstum tilkostnaði.
Sem íbúi í Laugarási tel það vera okkar allra hagur að þorpið okkar verði gróðursælt og snyrtilegt, að
umhverfið sé á öllum tíma aðlaðandi fyrir okkur íbúana og þá sem heimsækja það. Við viljum endilega
halda í góða og heilbrigða ímynd þorpsins í skóginum.
Sigurlaug Angantýsdóttir.