Litli Bergþór - 01.06.2021, Page 16
16 Litli-Bergþór
Undirrituð var kosin formaður FEBB á aðal
fundi þ. 11. apríl 2019. Covid19 farald ur
inn setti strik í reikninginn þegar halda átti
aðal fund 2020 og var honum að lokum frestað til
næsta árs. Enn var Covid í byrjun árs 2021, en
þeg ar fjöldatakmörkun var komin upp í 20 manns,
ákváðum við að hespa aðalfundinum af þann 10.
mars fyrir árin 2019 og 2020.
Heilmiklar breytingar urðu í stjórn að þessu
sinni, Svavar Sveinsson lét af störfum sem gjald
keri og Sigurbjörg á Galtalæk sem ritari. Eins hætti
Áslaug Jóhannesdóttir sem meðstjórnandi, Sig
urður Erlendsson sem endurskoðandi (eftir 24 ár!)
og Kristinn Antonsson sem varaendurskoðandi.
Þökkum við þeim öllum kærlega fyrir vel unnin
störf.
Í stjórn FEBB eru núna:
Elín Siggeirsdóttir, formaður.
Tók við af Guðna Lýðssyni 2019.
Bjarni Kristinsson, ritari.
Tók við af Sigurbjörgu Snorradóttur 2021.
Svava Theodórsdóttir, gjaldkeri.
Tók við af Svavari A Sveinssyni 2021.
Ólafur Jónasson hélt áfram sem meðstjórnandi.
Hann er búinn að vera um árabil.
Geirþrúður Sighvatsdóttir, meðstjórnandi.
Tók við af Áslaugu Jóhannesdóttur 2021.
Nanna Mjöll Atladóttir, endurskoðandi.
Tók við af Sigurði Erlendssyni 2021.
Brynhildur Njálsdóttir, endurskoðandi til vara,
en hún tók við af Kristni Antonssyni 2021.
Eins og við er að búast var félagsstarfið í
lágmarki síðasta árið vegna faraldursins, en
ýmislegt gerðum við samt.
Árið 2019 gekk starfið sinn vanagang með
vikulegum fimmtudagssamkomum og leikfimi
á þriðjudögum, einni leikhúsferð, skemmtiferð í
Borgarfjörð og ferð í boði Kvenfélagsins. Einnig
voru oftast sérstakir gestir fyrsta fimmtudag í
hverjum mánuði, t.d. sögðu þau Páll og Dröfn,
sem þá bjuggu enn í Kvistholti, frá ferð sinni til
Kúbu og sýndu myndir og Pétur Skarphéðinsson
læknir kom og ræddi sögu Laugarás læknishéraðs.
Á fyrsta fundi haustsins þ. 26. sept. 2019,
heiðruðum við heiðursmennina þá Sigurð heitinn
Þorsteinsson á Heiði, sem varð 95 ára daginn áður
og Sigurjón Kristinsson, sem varð 85 ára fyrr í
mánuðinum.
Félag eldri borgara
í Biskupstungum
Sigurði Erlendssyni, fráfarandi endurskoðanda, þökkuð góð störf.
Sigurbjörgu, fráfarandi ritara, þökkuð góð störf. Svavari Sveinssyni, fráfarandi gjaldkera, þökkuð góð störf.