Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 23
Úr „Ljóðmyndalindum“ Gísla Sigurðssonar í Úthlíð:
Dagur við Kúðafljót
Þau fluttu með börn sín og búslóð á morgni síðustu aldar,
ung og hraust, en ekkert býli að hafa, utan eitt í mikilli fjarlægð,
allar götur vestur í Biskupstungum,
það var jafnvel lengra en til Amreku.
Úfið var Eldhraunið en kvíði þeirra var bundinn Kúðafljóti.
Þau komu að vaðinu snemma dags og höfðu ráðið sér fylgd
yfir fljótið, sem breytist frá degi til dags;
hér var um líf og dauða að tefla.
Fylgdarmaðurinn taldi ekki ráð að reyna við fljótið svo snemma
og reyndin var sú að hann þekkti það út í hörgul. Þau biðu.
Tóku ekki klyfjarnar ofan, en fóru af baki;
biðu í kulda og ausandi regni.
Þá leið á dag og útlitið fór að skána. Fylgdarmaðurinn vissi
um færar krókaleiðir án sandbleytu, en beljandi jökulvatnið
á miðjar síður. Á vönum vatnahesti
reið hann og Egill næstur á eftir.
Steinunn fylgdi þeim fast, negld við hestinn og hélt á kornabarni.
Fljótið virtist án enda, kvísl eftir kvísl og fyrst undir kvöld
komust þau yfir. Og þá kvartaði enginn
um kulda eða vosbúð og sult.
Þau vissu að þau voru hólpin, næstum komin til Amreku,
og þó voru fleiri vötn eftir, Skálm og önnur Jökulsá utar,
Markarfljót þarnæst og drjúgar sprænur
eins og Þjórsá og Hvítá.
Kvenfélag Biskupstungna sendir félögum
sínum og Sunnlendingum öllum óskir
um gott og gjöfult sumar
Litli-Bergþór 23