Litli Bergþór - 01.06.2021, Side 26
26 Litli-Bergþór
Félagsmiðstöðin Zetor er fyrir nemendur í 8.
10. bekk í Bláskógaskóla á Laugavatni og
Reykholti og Kerhólskóla í Grímsnes og
Grafningshrepp. Þetta er eina félagsmiðstöðin á
landinu sem flakkar á milli staða og er því nafnið
Zetor tilvalið fyrir félagsmiðstöðina. Zetor er
með aðild að Samfés, sem eru frjáls félagasamtök
félags miðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi.
Alls eru um 40 nemendur sem sækja starf
félags miðstöðvarinnar og eru yfirleitt um 20-
30 unglingar sem mæta í hvert sinn. Auðvitað
hefur síðasta árið markast nokkuð af þessu Covid
ástandi og í um þrjár vikur fyrir jól lá mest allt
starf niðri vegna veirunnar nema opin hús, sem
voru nokkrum sinnum fyrir hvern
skóla fyrir sig.
Stefna Zetors er að hafa opna
dagskrá og leyfa krökkunum að
stjórna sjálf hvað er gert. Þau
eru í skipulögðu starfi yfir daginn
í skólanum og í íþróttum, tónlist o.fl.
eftir skóla. Er félagsmiðstöðin því
vettvangur til að slaka á og bara „chilla“
saman eða finna sér eitthvað að gera. Það
er þó yfirleitt alltaf eitthvað skipulagt
líka fyrir hópinn til að gera saman, eins
og að fara í íþróttahús, haldin hefur
verið kökukeppni og Kahoot keppni
(Kahoot er spurninga keppni sem
ýmist starfsmenn eða unglingarnir
skipu leggja) og við höfum haft ís
veislur, pizza veislur og pönnu
kökuveislur, sungið saman í sing star, haft popp
og bíó og fífa mót. Og oft förum við út í fótbolta
eða körfu bolta o.m.fl.
Zetor hefur líka tekið þátt í Söngkeppni Samfés,
Sam festingnum og er nýbúin að vera söngkeppni
hér í félagsmiðstöðinni hjá okkur, sem í ár var
netviðburður og streymt beint á youtube. Stóðu
krakkarnir sig allir frábærlega, en einhver þarf að
Félagsmiðstöðin Zetor
Zetor í Reykholti
Daníel Aron Bjarndal og Gunnar Tómasson pæla.
Við
tröllin höfum oft
opið hús í Bláfelli. Ég
segi ekki meir!