Litli Bergþór - 01.06.2021, Side 37

Litli Bergþór - 01.06.2021, Side 37
Litli-Bergþór 37 Upp úr fyrsta áratug 20. aldar var til félagsskapur sem gekk undir nafninu „Nafn- lausa fjelagið“. Nafnlausa fjelagið er undan- fari Ferða félags Íslands (FÍ) og gaf afrakstur starfsemi sinnar til byggingar sæluhússins í Hvítárnesi þegar félagið var lagt niður og sameinað FÍ. Stofn endur Nafnlausa fjelagsins voru nokkrir ungir menn í Reykjavík sem áttu það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á útilegum og ferðalögum þeim tengdum. Allt frá æsku vissi ég að hann afi minn, Einar Pétursson (1892-1961), hafði verið meðlimur í þessu félagi en vissi ekkert sérstaklega mikið um hvað félagið hafði á stefnuskrá sinni nema að tilgangurinn var að kanna fáfarnar slóðir á Íslandi og hálendisferðir voru mikið áhugamál hjá þeim. Því miður, þá hef ég ekki nema nokkur minningarbrot sem tengjast þessu merka félagi. Einar afi minn var sá Einar sem var tekinn til yfirheyrslu af danska yfirvaldinu 12. júní árið 1913 þegar að hann reri á einmennings kappróðrabáti sínum í kringum herskipið Islands Falk þar sem skipið lá á legu sinni í Reykjavíkurhöfn. Afi var með fánann Hvítbláinn í stafni bátsins en ekki þann danska og það fór heldur betur fyrir brjóstið á skipherra Islands Falk sem gerði fánann upptækan og það hafði ýmsa eftirmála í för með sér sem ekki verður skrifað um í þessari grein. Nafnlausa fjelagið var fá mennt félag, stofnað þann 11. ágúst 1916 af nokkrum ungum mönn ­ um sem áttu það sameigin legt að hafa gaman af að fara í göngu ferðir um helgar og ferðast inn í óbyggðir og fjar lægar sveitir í sumar leyfum sínum. Svæðin sem þeir fóru aðallega um og könnuðu voru fáfarin og afskekkt svæði eins og Reykjanesskaginn, Þingvellir, Uxahryggir og Ok. Einnig svæðin í kringum Langjökul, Hvítárnes og Kerlingafjöll. Skýringuna á nafngiftinni á félaginu segir Skúli Skúlason ritstjóri vera þá að stofnendur félagsins voru að búa sig undir sumarleyfisferðalag og keyptu sér sameiginlega í nestið í versluninni Liverpool við Vesturgötu. Í stað þess að skrifa á reikninginn nöfn allra þátttakenda var kosið að láta Nafnlausa fjelagið Nafnlausa fjelagið

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.