Litli Bergþór - 01.06.2021, Side 45

Litli Bergþór - 01.06.2021, Side 45
Litli-Bergþór 45 Konur stunduðu ýmiskonar fjáröflun vegna söfnunarátaksins, seldu armbönd og súkkulaði og í nóvember stóðu kvenfélögin fyrir áheitabakstri á sörum og öðrum jólabakstri sem rann allt í „Gjöf til allra kvenna“ sem hlutur kvenfélagsins. Af öðrum málefnum sem Kvenfélagið styrkti má nefna að: Við gáfum Heilsugæslustöðinni í Laugarási nýtt ómtæki, tæki sem bæði nemur hjartslátt í fóstrum svo og æðaslátt í fótleggjum fólks á öllum aldri. Það kostaði tæplega 200 þús. kr. Tækið sem heilsugæslan notaðist við áður var úr sér gengið og farið að gefa villandi niðurstöður. Við styrktum Sjóðinn góða um kr. 200 þús. rétt fyrir jólin, en Sjóðurinn góði er samstarfsverkefni sóknarkirkja í Árnessýslu, Rauða krossins, félags­ þjónustu Árborgar, félagsþjónustu Árnesþings og ýmissa félagasamtaka í Árnessýslu. Þetta samstarf hefur staðið síðan árið 2008 og hefur þann tilgang að veita aðstoð fyrir jólahátíðina til handa þeim sem ekki eiga fyrir nauðþurftum. Við styrktum Félag eldri borgara í Biskups­ tungum með nýjum gardínum í Bergholt, rúm­ lega 120 þús. Sjúkrahússjóður SSK naut styrks frá okkur upp á kr. 124 þús. með kaupum á jóla­ kortum og kærleiksenglum. Við tókum þátt í kaupum á nýju hlaupabretti í Íþróttamiðstöðina í Reykholti með styrk upp á kr. 100 þús. Styrktum kaup á nýjum ljósaperum á Iðubrúna fyrir kr. 20 þús., gáfum 10. bekkingum í Bláskógaskóla í Reykholti bækurnar „Þú ert snillingur“ að verðmæti 24 þús. kr. Gáfum svo skólabörnum í sama skóla jólanammi í poka fyrir andvirði 24 þús. á jólaskemmtun þeirra sem haldin var utandyra í Haukadalsskógi. Að lokum má stefna styrk til SÁÁ upp á kr. 8 þús. Samtals námu bókaðir styrkir Kvenfélagsins á árinu 2020 til hinna mismunandi verkefna kr. 1.680.000. Við náðum að halda nokkra stjórnarfundi á árinu, tvo í kjötheimum eins og Páll Óskar kallar svo skemmtilega hefðbundna fundi þar sem fólk hittist og tvo í rafheimum, auk þess sem stjórnin talaði mikið saman í hóp á messenger. Fulltrúar kvenfélagsins tóku þátt í að halda óvenjulega 17. júní­ barnaútisamkomu 2020 í samvinnu við fulltrúa Ungmennafélagsins, Lions og æskulýðsdeild Hestamannafélagsins Loga, sem tókst vel í frábæru veðri. Við náðum að fara í mjög skemmtilega 19. júní ferð um Suðurland þar sem við heimsóttum Gamla bæinn/ Íslenska bæinn í Austur Meðalholtum, skoðuðum lifandi listasmiðju í Forsæti í Flóahreppi, EM heima gallerí á Selfossi þar sem framleiddir eru skartgripir, leirmunir og myndlist, Hespuhúsið, opna jurtalitunarvinnustofa í Ölfusi og enduðum í kvöldverði í Tryggvaskála. Virkilega skemmtileg ferð. Við skipulögðum einnig útiveru, Tölt í Tungunum, þar sem við tókum nokkrar göngur saman meðfram Tungufljóti og hittumst í kaffi að þeim loknum á þeim stað sem göngur enduðu. Sóttvarnarreglur voru að sjálfsögðu í hávegum hafðar í þessari samveru. Við vorum með áskoranir á netinu, göngu­ áskorun í takt við Heilsueflandi uppsveitir „Lát um það ganga“ og í framhaldinu göngu- og mynda- áskor un þar sem félagskonur tóku á göngu sinni um Tungurnar myndir af „línum“ í umhverfinu. Svo í desember tók stór hluti félagskvenna þátt í Að ventu leik kvenfélagsins þar sem í boði voru 3 góð ir vinningar fyrir það að birta myndir eða sögur af einhverju skemmtilegu sem tengdist jól­ unum. Tvær kvenfélagskonur urðu 60 ára á síðasta ári og fengu gjöf frá kvenfélaginu, en það er margra ára hefð fyrir því. Í smá Covid-glugga í vor náðum við svo að halda aðal fundinn okkar þ. 3. mars 2021 og var vel mætt. Í stjórn Kvenfélags Biskupstungna eru nú: Andrea Rafnar formaður, Margrét Baldurs­ dóttir ritari, Sigríður Emilía Eiríksdóttir gjald­ keri, Margrét Sverrisdóttir meðstjórnandi og vara formaður, Vala Oddsdóttir meðstjórnandi og vara menn eru þær Dagný Guðmundsdóttir og Sigríður Egilsdóttir. Fyrir veitinganefnd er Kjötheimar? rafheimar? ... þetta líst mér ekki heldur á. Frábær gönguhópur á Höfða í maí 2020.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.