Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 53

Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 53
Litli-Bergþór 53 Bjarna frá Geysi) og „Mín sál þinn söngur hljómi“ (kirkjuleg tónlist). Þar fyrir utan voru gefnir út ófáir geisladiskar með upptökum af tónleikum fyrir kórfélagana. Kórferðir. Kórinn bjó við þau hlunnindi að hafa farar stjóra innan sinna raða, sem var Hólm- fríður Bjarna dóttir, þáverandi kona Hilmars Arnar. Nutum við góðs af því og fljótlega var farið að tala um utanlands ferð. Ekki var þó farið langt í fyrstu „utan landsferðinni“, heldur haldið til Vest mannaeyja vorið 1997, þar sem sungið var á tónleikum ásamt Mos fells kórnum og gist eina nótt. Í október 1998 var haldið í skemmtilega kór ferð til Þýskalands og Frakklands þar sem sungnir voru tónleikar í borginni Leiwen í Mósel dalnum og aðrir í borginni Barr í Alsace í Frakklandi. Svo vel þótti kórinn standa sig þar að honum var boðið að koma aftur til Frakklands ári síðar og syngja á ráðstefnu geðlækna á vegum Evrópuráðsins! Svo góðu boði var ekki hægt að hafna, svo ári seinna, í október 1999, var kórinn aftur kominn til borgarinnar Rouffach í vínræktarhéraðinu Alsace í Frakklandi, og með í för var vinkona okkar, söngdívan Diddú, Keli maður hennar hornleikari og Kári Þormar með­ leikari. Þar mætti kórinn í fínar móttökur, tón­ leikar voru í gamalli virðulegri kirkju og gala­ kvöld verður og söngur í ævintýrahöll, og allt gekk það eins og í sögu. En fyrst við vorum nú komin út fyrir landsteinana skellti kórinn sér áfram til Ítalíu, þar sem dvalið var við Garda­ vatnið, sungið þar á einum tónleikum auk þess sem skotist var í dagstúra til Feneyja og Verona. Í Verona naut kórinn sérstakrar leiðsagnar Diddúar og Kela, sem bjuggu þar um árabil. Allt var þetta mjög eftir minnilegt og skemmtilegt og má lesa ferða sögur þessara tveggja kórferða í Litla­ Bergþóri 3. tbl 1998 og 3. tbl. 1999. Gunnar Þórðarson og Hilmar Örn fyrir flutning Brynjólfsmessu Gunnars í Keflavík. Hilmar Örn og Haukur Guðlaugsson fyrrverandi söngmálastjóri fyrir utan Skálholtskirkju á kveðjutónleikum Hilmars í sept. 2008. Tónleikar í Slóveníu - gula dressið. Skálholtskórinn á tónleikum í Þýskalandi árið 1998 – grænu vestin.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.