Litli Bergþór - 01.06.2021, Qupperneq 54
54 Litli-Bergþór
Enn var farið í kórferð í ágúst 2003 og nú til
Slóveníu. Í hópnum voru aftur söngkonan okkar
dá sam lega, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) og
fjölskylda hennar, þau Þorkell Jóelsson (Keli)
horn leikari, dæturnar Valdís og Salóme trompet
leikarar og Melkorka litla 5 ára og Anna Sigríður
Helga dóttir söng kona. Meðleikari í ferðinni var
Kári Þormar. Aðaltónleikar kórsins í ferðinni voru
á listahátíð í borginni Piran í Slóveníu, en einnig
söng kórinn á Tyrólastað í þorpinu Begunje í
norður Slóveníu og í borginni Slovenija Gradec
ásamt slóvenskum karlakór, sem hafði heim sótt
okkur til Íslands nokkru fyrr. (Nánari lýsing-
ar á ævintýrum kórfélaga, tónleikunum, dropa
steinshellum, skemmti siglingum o.fl. má lesa í
LB 3. tbl. 2003).
Árið 2007 fór kórinn í sína síðustu ferð sem
Skálholtskór Hilmars. Farið var til Ítalíu, þar sem
kórinn söng í móttöku fyrir páfann í Róm, sem var
vægast sagt sérstök og eftirminnileg lífsreynsla.
Sungið var í kaþólskum messum í
Pompei og Sorrento og farið í ævin
týraferðir til Caprí og Sikil eyjar.
Meðleikari okkar í ferðinni var
Steingrímur Þórhallsson, sem
var betri en enginn þegar kom að
ítölsk unni. Frá Palermo á Sikiley var
siglt norður með ströndum Ítalíu til
Genúa. Eins og alltaf gekk öll ferðin
eins og í sögu og allir skemmtu sér
vel, þó auðvitað svifi viss skuggi
breytinganna í Skálholti yfir vötn -
um. Nánar má lesa um þessa ferð
í LB 1. tbl. 2008.
Enn áttu félagar í Skál holts
kórn um eftir að fara í eina kór
ferð sam an, til Berlínar, árið
2009. Þá var kórinn reyndar
Svo var slett úr klaufunum: Bragi, Loftur, Íris, Helga María og Linda í
skemmtisiglingu við strendur Króatíu.
Önnur sigling á Bledvatni í Slóveníu: Diddú með Melkorku litlu, Heiða,
Perla og Rut.
Anna Sigga tekur lagið fyrir okkur hjá vínbóndanum. F.v. Sigurjón, Örn,
Jói, Hemmi, Tolli og Bragi.
Ég tefli
bara við páfann,
en syng ekki fyrir
hann!
Höfundur á hvolfþaki Péturskirkjunnar í Róm 2007.